Morgunblaðið - 31.12.2021, Side 44

Morgunblaðið - 31.12.2021, Side 44
44 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2021 Samúðarkveðja Ég sendi þer samúð mína því sálin sem núna dó svo lofsverð mun lengi sýna ljósið sem þarna bjó. Er lofum við ljósið bjarta á leið sem er stundum myrk þá þökkum við þessu hjarta sem þráði að veita styrk. Guðrún Ásgeirsdóttir ✝ Guðrún Ásgeirsdóttir fæddist 21. júní 1946. Hún lést 3. desem- ber 2021. Hún vann mestan sinn starfsaldur í Landsbanka Íslands. Í tómstundum sínum lærði hún að mála á postulín. Hún hafði einnig mikinn áhuga á ferðalögum, fór meðal annars til Kína, Indlands, Ísraels, Egypta- lands, Bandaríkjanna og víða um Evrópu. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Nú hjartað er hætt að tifa en hlý eru okkar tár því minningar munu lifa í meira en þúsund ár. (Kristján Hreinsson) Blessuð sé minning þín, hvíl í friði elsku systir. Sigurður og Anna Edda. Kær vinur okkar hjóna og reyndar okkar allra í fjöl- skyldunni er kvaddur í dag. Okkur langar að skrifa fáein kveðjuorð og þakka fyrir alla samveru og góð kynni. Við Jóhann, eða Kúddi eins og við æskuvinir hans kölluðum hann, þekktumst allt frá sex og sjö ára aldri. Allt frá því að við byrjuðum í barnaskóla saman sem var farskóli í sveitinni okk- ar fyrir vestan. Sveitin var Múlasveit sem nú heitir Reyk- hólahreppur. Kennarinn, sem var föðursystir Kúdda, lagði all- an sinn metnað í að kenna okk- ur börnunum fræðin. Skólavin- átta okkar Kúdda var til staðar allt til hinsta dags. Við vonum að nú sé bara hlé og að við hitt- umst hjá góðum guði. Kúddi var mjög ljúfur í lund og átti mjög auðvelt með að um- gangast fólk. Við munum ekki Jóhann Gunnar Jóhannesson ✝ Jóhann Gunnar Jóhannesson fæddist 15. ágúst 1938. Hann lést 14. desember 2021. Útför hans fór fram 21. desember 2021. eftir því að hafa séð hann skeyta skapi, hvorki á æskuárum fyrir vestan né sem ná- grannar hér í Hafnarfirði, en Kúddi og Sóley eru meðal bestu vina okkar hjóna. Garð- ar var í sveit á næsta bæ við Kúdda fyrir vestan og áttu þeir alltaf góð sam- skipti. Þeir fóru til að mynda oft saman í göngur meðfram sjávarsíðunni meðan hægt var, en því miður hrakaði heilsu vin- ar okkar allt of hratt. Við eigum margar góðar minningar um góða samveru og hlýja vináttu milli okkar og þeirra hjóna. Við þökkum þér kæri vinur fyrir öll árin sem við höfum þekkst. Við vitum að þú hefur átt góða heimkomu hjá guði, eins góður maður og þú varst. Við biðjum góðan guð að geyma þig og vottum Sóleyju konu þinni, börnum, barnabörnum og öllum ættingjum okkar innileg- ustu samúð. Ásta Jónsdóttir, Garðar Kristjánsson. Við þökkum innilega fyrir hlýhug, hluttekningu og vinarþel við andlát hjartfólgins afa okkar og föður, STYRMIS GUNNARSSONAR Hulda Dóra Styrmisdóttir, Hanna Guðrún Styrmisdóttir Styrmir Hjalti Haraldsson Ágúst Páll Haraldsson Thurayn Harri Hönnuson Thant Myint-U Jóhannes Árni Haraldsson Okkar ástkæra, GUÐNÝ BJARNVEIG SIGVALDADÓTTIR, Kveldúlfsgötu 3, Borgarnesi, lést á heimili sínu 20. desember. Útförin fer fram frá Borgarneskirkju miðvikudaginn 5. janúar klukkan 14. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug. Vigdís Guðrún Sigvaldadóttir Sigvaldi Arnar Hjaltason Jónný Hekla Hjaltadóttir Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ANNA HJARTARDÓTTIR, Þrastartjörn 10, Njarðvík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þriðjudaginn 7. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fyrir hönd aðstandenda, Guðríður Hansdóttir Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, EYJA ÞORSTEINA HALLDÓRSDÓTTIR, lést þriðjudaginn 21. desember á HSU í Vestmannaeyjum í faðmi fjölskyldu. Útförin fer fram föstudaginn 7. janúar klukkan 13 í Landakirkju. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir athöfnina en henni verður streymt á vef Landakirkju, landakirkja.is. Finnbogi Halldórsson Halldór Jón Sævarsson Lilja Ólafsdóttir Fjóla Finnbogadóttir Fanney Finnbogadóttir Hannes Kristinn Sigurðsson og barnabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, VALDIMAR EIRÍKSSON, Reykási 27, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi föstudaginn 24. desember. Útför fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 3. janúar klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á streyma.is og þeir sem mæta verða að sýna neikvætt hraðpróf. Eiríkur Ari Valdimarsson Ragnheiður Á. Ólafsdóttir Valva Valdimarsdóttir Sigurður Eggert Halldóruson Þórdís Lísa Valdimarsdóttir Kristján Mar Þorsteinsson Tómas Helgi Valdimarsson Telma Sif Guðmundsdóttir og barnabörn Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, AUÐUR SIGURÐARDÓTTIR, Litlakrika 2a, Mosfellsbæ, lést á Landspítalanum mánudaginn 27. desember. Útför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 5. janúar klukkan 13. Vegna samkomutakmarkana takmarkast fjöldi viðstaddra við fjölskyldu, nána ættingja og vini. Streymt verður frá athöfninni á www.vimeo.com/660972818. Vigfús Þorsteinsson Þráinn Vigfússon Þórunn Vigfúsdóttir Reynir Sigurðsson Eiríkur Vigfússon Telma Halldórsdóttir ömmu- og langömmubörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, KRISTJANA KRISTJÁNSDÓTTIR sjúkraliði, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði mánudaginn 27. desember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Eva Sigurbjörnsdóttir Ásbjörn Þorgilsson Árni Sigurbjörnsson Andrea J. Ísólfsdóttir Jón Ingi Sigurbjörnsson Harpa S. Höskuldsdóttir Kristján Sigurbjörnsson Anna Lísa Gunnarsdóttir Margrét Birna Sigurbjörnsd. Hermann Ó. Hermannsson Anna Sigurbjörnsdóttir Bjarney Sigvaldadóttir barnabörn, langömmubörn og langalangömmubarn Elskuleg móðir okkar, INGIBJÖRG GARÐARSDÓTTIR, Aðalgötu 6, Reykjanesbæ, lést á Hjúkrunarheimilinu Víðihlíð laugardaginn 25. desember. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju þriðjudaginn 4. janúar klukkan 13. Jóhann Garðar Einarsson Þorleifur Einarsson Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN HELGADÓTTIR, Aflagranda 40, Reykjavík, lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu 26. desember. Útförin fer fram frá Neskirkju föstudaginn 7. janúar klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim er vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið. Útförinni verður streymt á Streyma.is. Hans Kristinsson Friðrik Þorbjörnsson Hulda Mjöll Hauksdóttir Helgi Þorbjörnsson ömmu- og langömmubörnin Ástkær eiginkona, móðir og tengdamóðir, INGIBJÖRG EGGERTSDÓTTIR kennari, Jörundarholti 230, Akranesi, lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild Landspítalans þriðjudaginn 28. desember. Útför verður auglýst síðar. Bestu þakkir til starfsfólks líknardeildar fyrir framúrskarandi störf. Stefán Skjaldarson Birta Stefánsdóttir Gréta Stefánsdóttir Rafn Kumar Bonifacius Sambýlismaður minn og vinur, GUNNAR ÞORSTEINSSON, formaður og fararstjóri fyrsta flugfélagsins, lést fimmtudaginn 2. desember. Útförin fór fram mánudaginn 13. desember. Erna Margrét Laugdal Ottósdóttir Hjartkær systir mín, MARÍA AÐALHEIÐUR SIGMUNDSDÓTTIR, lést á sjúkrahúsi á Spáni 22. desember. Sigfríður Ásbjörnsdóttir og fjölskylda Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, BENJAMÍN S. GUNNLAUGSSON, lést á Landspítalanum 22. desember. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 5. janúar klukkan 15. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur og vinir viðstaddir útför. Kristín María Benjamínsd. Sturla Jónsson Jónína Björg Benjamínsd. Fannar Óli Ólafsson og barnabörn Okkar ástkæra MARÍA GUÐMUNDSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur og leikkona, lést þriðjudaginn 14. desember. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju þriðjudaginn 4. janúar klukkan 13. Gestir eru beðnir um að framvísa neikvæðu hraðprófi. Streymt verður frá útförinni á https://beint.is/streymi/mariag Dóra G Wild Árni Árnason Pétur Hauksson Sylvia Ingibergsdóttir Þórður Hauksson Kristjana Fenger Magnús Hauksson Hrafnhildur Guðmundsdóttir Gerður Sif Hauksdóttir og fjölskyldur þeirra

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.