Morgunblaðið - 31.12.2021, Side 45

Morgunblaðið - 31.12.2021, Side 45
MINNINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2021 ✝ Sigurður Her- mannsson fæddist 13. júní 1943 í Gerðakoti í Hjallasókn í Ölf- ushreppi. Sig- urður lést á Land- spítalanum hinn 17. nóvember 2019, eftir skamma legu. Foreldrar hans voru hjónin Sol- veig Sigurðardóttir, sem fædd- ist á Vötnum í Ölfusi, en ólst upp hjá foreldrum sínum á Þúfu í sömu sveit, húsfrú í Gerðakoti, f. 2. október 1898, d. 2. nóvember 1987 og Her- mann Eyjólfsson frá Króki í Hjallahverfi í Ölfusi, bóndi í Eyjólfur, f. 1927, fram- kvæmdastjóri Vinnufatagerðar Íslands, d. 2002. 2) Ragnar Sigurður, f. 1928, bifvélavirki á Selfossi, d. 2015. 3) Hermann Helgason, f. 1929, lögfræð- ingur í Reykjavík, kjörsonur Helga Eyjólfssonar, föður- bróður síns, d. 2009. 4) Ársæll, f. 1931, rafvirki í Hveragerði, d. 2008. 5) Guðbjörg Rósa, f. 1933, húsfrú í Reykjavík, d. 2014. 6) Marta Sigríður, f. 1934, húsfrú í Reykjavík. Sigurður tók við búi af for- eldrum sínum í Gerðakoti. Hafði hann blandaðan búskap fram eftir árum, en árið 1997 gerðist hann þar skógarbóndi og plantaði á annað hundrað þúsund trjám af ýmsum tegundum. Hann var kirkjuvörður og meðhjálpari í Hjallakirkju í áraraðir og sat lengi í sóknar- nefnd. Útför hans fór fram í kyrr- þey. Gerðakoti og kennari í Ölfusi og Hveragerði, hreppstjóri og oddviti Ölfus- hrepps, f. 1. júlí 1893, d. 17. mars 1973. Foreldrar Sol- veigar voru hjónin Sigurður Eyjólfs- son og Ragnheiður Björnsdóttir, sem bjuggu á Þúfu. Foreldrar Her- manns voru hjónin Eyjólfur bóndi á Ytri-Grímslæk í Ölfusi og Herdís Jónsdóttir frá Hrauni í Ölfusi. Sigurður var yngstur barna þeirra Solveigar og Hermanns, en þau voru í aldursröð: 1) Foreldrar Sigurðar voru af Bergsætt; afkomendur Magnús- ar ríka Beinteinssonar útvegs- bónda í Þorlákshöfn og Hólmfríð- ar ljósmóður Árnadóttur prests Sigurðssonar í Holti undir Eyja- fjöllum uppeldisdóttur síra Sig- urðar í Arnarbæli. Sigurður var því fjórði maður frá Jórunni ljós- móður Magnúsdóttur og Oddi Björnssyni í Þúfu. Þar bjó sama ættin frá því um 1750 og fram undir okkar daga. Varð Sigurði tilrætt um Þúfu-svipinn, sem hann kallaði svo. Jórunn var nafnkunn yfirsetukona í Ölfusi; þjóðsagnapersóna. Var í minnum haft er þau feðginin Magnús og Jórunn héldu með hvítvoðung til skírnar í Arnarbæli og sundriðu Nauteyrarálinn, hún 14 vetra með reifastranga í fangi. Þegar Hermann og Solveig brugðu búi tók Sigurður við og rækti í fjölda ára uns gerðist skógarbóndi. Að auki stundaði hann rannsóknir á því hversu gæfist að nota á landið aðskilj- anlegar tegundir og blöndur af áburði. Hann var einn fyrstur til þess að ljúka námi frá fræðslu- stofnuninni Grænum skógum vorið 2004. Sigurður var kirkjuvörður og meðhjálpari í Hjallakirkju. Í mörg horn var að líta: Lesa bæn- ina í upphafi messu og í lokin; kynda kirkjuna og halda í henni hæfilegum yl milli athafna; þrífa hana og sjá um, að vel væri geng- ið um guðshúsið; tryggja, að til væru kerti að hafa á altari, oblát- ur og messuvín, messu- og sálma- skrár eftir atvikum; slá kirkju- garðinn og snyrta leiði; líta eftir því að girðingin væri held. Þetta rækti Sigurður af alúð og sam- viskusemi. Hér um árið var Sigurði orðið ljóst að mála þyrfti kirkjuna utan. Hitt þóttist hann skynja að safnaðarbændur yrðu varla bráð- fljótir að taka við sér til þessa. Því brá hann á það ráð að vitja heimila í sókninni, þiggja kaffi- sopa og skeggræða í þessum óáreitna og hálf-geispandi tóni sem bændum er eiginlegur. Þar kom að hann hneigði talið að þeirri arfavitlausu hugmynd að fara að drífa Hjallakirkju farva. Þetta sagði Sigurður kjökurhlæj- andi og svo sem í framhjáhlaupi. Taldi hann sig sjaldan hafa orðið áskynja annarrar eins vitleysu og að láta sér detta í hug að fara að mála kirkjugreyið og það meira að segja um hábjargræðistím- ann! Og hristi höfuðið skríkjandi og dauðhneykslaður á þessu endemis rugli. Orðræða Sigurðar hafði þver- öfug áhrif á áheyrendurna. Þetta var í byrjun túnasláttar og um réttaleytið stóð hún Hjallakirkja stífmáluð á grænni grundinni engu líkari en hún væri stigin ofan af himnum, búin eins og brúður sem skartar fyrir manni sínum. Guð blessi minningu drengsins góða, Sigurðar Hermannssonar frá Gerðakoti. Gunnar Björnsson, pastor emeritus. Sigurður Hermannsson Mig langar til að minnast fallegu, hlýju og góðu Ingu með nokkrum orð- um. Þegar ég flutti á Seltjarn- arnesið fimm ára gömul var ég svo lánsöm að lenda í húsi við hliðina á Ingu og fjölskyldu og eignast þar með dýrmætu æskuvinkonu mína, hana Sig- rúnu, einkadóttur Ingu og Mumma. Inga hafði svo hlýja og fallega rödd og fallegt bros, hún hafði líka mjög góða nærveru. Man eftir því einu sinni þegar ég gisti hjá Sigrúnu, þá færði hún okkur morgunverð á bakka í rúmið. Mér leið eins og ég væri stödd í Inga H. Ágústsdóttir ✝ Inga H. Ágústsdóttir fæddist 14. sept- ember 1943. Hún lést 9. nóvember 2021. Útför hennar fór fram 20. desem- ber 2021. miðju ævintýri, þetta hafði ég aldrei áður upplifað! Inga kallaði mig Mössu, ég var Massan hennar, mér fannst það skemmtilegt og hlý- legt. Inga var húm- oristi og gerði óspart grín að sjálfri sér, hún sá léttleikann í tilver- unni. Inga var klár í að búa til hugguleg og hlýleg rými, hún var líka alltaf smart og vel tilhöfð sem mér fannst aðdáunarvert. Í veikindum sínum var Inga and- lega sterk og jákvæð, hún gaf sko engan afslátt á smartheitum þó svo að hún væri orðin lasin. Það finnst mér líka aðdáunarvert. Elsku Sigrún og fjölskylda, hjartans samúðarkveðjur. Blessuð sé minning þín, elsku Inga. Þín Massa, Margrét Leifsdóttir. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Bílar Nýr 2021 Nissan Leaf Tekna 40 kWh battery. Drægni um 270 km. Evrópubíll í fullri ábyrgð. Eigum hvíta, Dökk grá og svarta til afhend- ingar strax. Rúmri milljón undir listaverði á aðeins 4.150.000,- www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 10–18 virka daga. Húsviðhald Tek að mér ýmisskonar húsaviðhald og ýmis smærri verk- efni . Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Atvinnuauglýsingar Rað- og smáauglýsingar Nauðungarsala Hæfniskröfur: • Reynsla af verslunarstörfum • Góð þjónustulund • Stundvísi • Snyrtimennska • Góð íslensku kunnátta Hæfniskröfur: • Bílpróf • Reynsla sem nýtist í starfi • Stundvísi • Snyrtimennska • Góð íslensku kunnátta Einungis reyklausir einstaklingar eldri en 25 ára koma til greina. Umsóknir fyrir bæði störfin ásamt ferilskrá skal senda á atvinna@rafkaup.is fyrir 1$. j'%"'! 202# Sölumaður í verslun Starfsmaður á lager Óskum eftir að ráða sölumann í Rafvörumarkaðinn. Í starfinu felast öll almenn verslunarstörf,sölumennska, vöruframsetning og uppsetning, innkaup, áfylling ofl. Óskum eftir að ráða starfsmann á lager í Rafkaup. Í starfinu felast öll almenn lagerstörf, s.s. Vöruafgreiðsla til viðskiptavina, tiltekt og afgreiðsla pantana, vörumóttaka og frágangur, áfyllingar, vörutalningar, útkeyrsla og fleira. Vinnutími er virka daga frá kl. 09-18 og ein til tvær helgar í mánuði, laugardaga frá kl. 10-16 og sunnudag frá 12-16. Um fullt starf er að ræða. Vinnutími er alla virka daga frá kl. 8:00-17:00. Um fullt starf er að ræða. Annar stýrimaður Annar stýrimaður óskast á Málmey Sk 1 til afleysinga. Umsækjandi þarf að hafa tilskilin réttindi. Upplýsingar gefur skipstjóri í síma 848 8345. Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Ath. Grímuskylda er á uppboðum Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Hellisgata 18, Hafnarfjörður, fnr. 207-5316, þingl. eig. Hermann Ingi Guðbrandsson, gerðarbeiðandi Arion banki hf., fimmtudaginn 6. janúar nk. kl. 10:30. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 30. desember 2021 Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur fjölskyldunni samúð og hlýhug við fráfall og útför elsku pabba, tengdapabba og afa, KRISTINS GUÐMUNDSSONAR, Kidda á Látrum, sem lést í bílslysi við Hvallátra 14. nóvember. Jóna Vigdís Kristinsdóttir Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall SJAFNAR KRISTJÁNSDÓTTUR læknis, sem lést 19. nóvember. Sérstakar þakkir fá sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir og Lára Bryndís Eggertsdóttir organisti Neskirju. Einnig Ásta S. Sigurðardóttir og allt starfsfólk Vitatorgs fyrir ómælda hlýju og framúrskarandi starf. Fríða Bonnie Andersen Elísabet Kristjánsdóttir Margrét Kristjánsdóttir Bragi Kristjánsson Bjarnfríður Árnadóttir og fjölskyldur Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna fráfalls okkar ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, MATTHILDAR GESTSDÓTTUR, Lautasmára 3, Kópavogi. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Heru, líknarheimaþjónustu LSH, og kvennadeildar LSH fyrir góða umönnun og hlýhug. Við óskum þess að nýja árið færi ykkur öllum gleði, gæfu og góða heilsu. Þ. Björgvin Kristjánsson Kristján Björgvinsson Hrefna Gunnarsdóttir Matthildur Gunnarsdóttir Jóhann Gunnarsson Björgvin Smári Kristjánsson Iðunn Elva Ingibergsdóttir Þorgeir Örn Tryggvason Hulda Ósk Bergsteinsdóttir Gunnhildur Kristjánsdóttir Hekla Sóley, Snædís Lilja, Friðrik Hrafn og Harpa Sif

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.