Morgunblaðið - 31.12.2021, Qupperneq 48
48 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2021
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú hefur eytt of miklu fé að undan-
förnu og nú er komið nóg. Sláðu á þráðinn
til vinar sem þú veist að er í erfiðleikum.
20. apríl - 20. maí +
Naut Samstarfsfólkið er bæði samvinnu-
þýtt og hvetjandi þessa dagana. Haltu
dauðahaldi í trúna á sjálfa/n þig og mundu
að þú þarft ekki að vera fullkomin/n.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Það getur verið gaman að hafa
mannaforráð en þá því aðeins að þú farir
vel með vald þitt. Eyddu ekki tímanum í vol
og væl.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Leggðu allt kapp á að finna farsæla
lausn á heimatilbúnum vanda svo þú getir
sofið róleg/ur. Einhver gerir hosur sínar
grænar fyrir þér.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Það er nauðsynlegt að halda sig á
mottunni hvað fjárútlát varðar. Góður há-
degisgöngutúr getur gert kraftaverk og
hreinsað til í huganum.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Hver er sinnar gæfu smiður svo það
er í þínu valdi að velja milli þeirra mögu-
leika sem lífið býður upp á. Heimilið er þinn
griðastaður.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Dagurinn í dag er tilvalinn til að ein-
beita sér að börnum. Þú þarft á tilbreyt-
ingu að halda.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Fólk sem elskar þig í raun og
veru kippir sér ekki upp við það þótt þú
hvæsir á það svona endrum og sinnum.
Þreifaðu fyrir þér með nýja vinnu.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þótt það sé ekki í eðli þínu að
bæla niður tilfinningar þínar er rétt að þú
gerir það núna, í mjög stuttan tíma. Mundu
að ekkert er þess virði að missa heilsuna
fyrir það.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú þarfnast einhverrar örvunar.
Það krefst fórna og gtur kostað mikið erfiði
að láta drauma sína rætast.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú veist öðrum betur hvað þér
er fyrir bestu svo vertu óhrædd/ur við að
fara þínar eigin leiðir. Einbeittu þér að
markmiðum þínum.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Það er gott og blessað að leggja
fjölskyldu sinni lið, en varastu að létta öðr-
um lífið um of. Haltu ró þinni hvað sem á
dynur.
kvæmdastjóri flugrekstrarsviðs í
janúar 2013. „Þegar ég var í Kanada
kynntist ég Skúla Mogensen sem þá
var að reka OZ þar. Með okkur tókst
góður vinskapur og hann fékk mig til
að koma í stjórn Wow air 2011 og
síðan áfram í flugfélagið.“
Björn Ingi var hjá Wow air til
2015, en hefur síðan sinnt rekstrar-
ráðgjöf. Meðal annars tók hann að
sér hjá flutningsmiðluninni Schen-
Montréal í Kanada 2004-2006.
Frá 2008-2010 var Björn Ingi síð-
an framkvæmdastjóri Saltkaupa,
sem var stærsti innflytjandi salts til
fiskverkunar og hálkuvarna. „Mér
voru boðin mun betri laun og kjör en
ég hafði sem flugvallarstjóri svo ég
tók því boði.“ Það leið þó ekki á
löngu þar til Björn Ingi var aftur
kominn í flugbransann, en hann var
ráðinn hjá Wow air sem fram-
B
jörn Ingi Knútsson
Höiriis fæddist 31. des-
ember 1961 á Fæðing-
arheimilinu í Reykja-
vík. „Eftir áreiðan-
legum heimildum er ég síðasta
barnið sem fæddist á árinu 1961,
korter yfir átta um kvöldið,“ segir
Björn Ingi. Hann ólst upp í Keflavík
og var í sveit eitt sumar þegar hann
var níu ára í Otradal í Arnarfirði.
Björn Ingi gekk í Barnaskólann í
Keflavík og Gagnfræðaskólann þar,
en var síðasta veturinn í grunnskóla,
1976-77, í heimavistarskóla á Reykj-
um í Hrútafirði. Svo fór hann til sjós
sem vikapiltur í október 1977 hjá
Sambandinu á MS Mælifelli. Hann
lauk síðan prófi frá Stýrimannaskól-
anum árið 1984, prófi í skipamiðlun
frá London School of Foreign Trade
árið 1985 og prófi í skipa- og hafna-
rekstrarfræði frá University of
Wales í Cardiff árið 1987.
Björn starfaði hjá Skipadeild
Sambandsins og síðar Samskipum í
ýmsum stjórnunarstöðum til ársins
1996 og var eftir það framkvæmda-
stjóri hjá frönsku skipafélagi sem
heitir Sofrana Unilines, í Ástralíu og
á Nýja-Sjálandi til 1998. „Svo
ákváðum við fjölskyldan að flytja
heim til Íslands í október 1998.
Stelpan var komin á unglingsárin
svo það var annaðhvort að koma
heim eða verða andfætlingur.“
Björn var skipaður flugvallar-
stjóri á Keflavíkurflugvelli 1.1. 1999
og gegndi þeirri stöðu til 2008.
„Þetta eru vissulega ólík störf,“ seg-
ir Björn Ingi aðspurður, „en þarna
er í báðum tilfellum um að ræða
flutningafræði. Helsta breytingin
var sú að á Keflavíkurflugvelli var ég
embættismaður. Stærsta áskorunin
í starfinu var þegar varnarliðið fór,
því þá stýrði ég allri yfirtöku á
rekstri varnarliðsins, þ.m.t. slökkvi-
liðinu, snjómokstri og öllum tækja-
búnaði sem tilheyrði Bandaríkja-
her,“ en starfsmannafjöldinn fór úr
35 manns í 300 á þessum árum.
Björn Ingi fór í launalaust leyfi í eitt
og hálft ár og var á vegum íslenskra
stjórnvalda varaþingfulltrúi og þing-
fullrúi allra Norðurlandanna hjá
Alþjóðaflugmálastofnuninni í
ker að koma upp dreifi- og aðfanga-
kerfi Costco við komu verslunar-
innar til Íslands. Hann var tíma-
bundið forstöðumaður Keilis
flugakademíunnar og hafði það
verkefni að sameina Keili flug-
akademíu og Flugskóla Íslands.
Hann hefur einnig sinnt ýmsum
verkefnum fyrir Austurbrú ses, og
var ráðinn tímabundið yfirverkefna-
stjóri þar, en starfinu lýkur þar núna
um áramótin.
„Ég er bara rólegur í tíðinni núna,
það er búið að bjóða mér ákveðin
verkefni sem ég á eftir að taka af-
stöðu til. Næsti vettvangur er að
stofna Vínskólann við vatnið, en ég
hef verið einlægur vínáhugamaður í
áratugi og tekið alþjóðlegar próf-
gráður í vínfræðum. Ég er búinn að
eiga hús við Meðalfellsvatn í tæp 30
ár og var að byggja þar 38 fermetra
útiborðstofu. Meiningin er að taka
inn 10-12 manna hópa og vera með
fræðslu. Það er búið að stofna fyrir-
tækið sem heitir Vínskólinn við vatn-
ið, en starfsemi hefst ekki fyrr en
það er farið að sjá til lands í Covid.“
Björn Ingi stundar mikið útivist
og fjallgöngur, en hann gekk t.d. á
Snæfell í byrjun september. Hann
hefur verið í Oddfellowreglunni frá
2006 og verið yfirmeistari í sinni
Björn Ingi Knútsson rekstrarráðgjafi – 60 ára
Með börnunum Aron Grétar, Björn Ingi, Erna og Knútur Magnús.
Næsta skref að opna vínskóla
Vínsmökkun Björn Ingi hefur tekið alþjóðlegar gráður í vínfræðum.
Á Akureyri Björn Ingi, Rakel Linda
og Esja, sem er Golden Retriever.
Á morgun, 1. janúar, eiga 70 ára brúð-
kaupsafmæli hjónin Kristín Sturlu-
dóttir og Guðbjörn Björnsson. Þau
voru gift í Suðureyrarkirkju af séra
Jóhannesi Pálmasyni, sóknarpresti á
Suðureyri, 1. janúar 1952. Þau voru bú-
sett á Suðureyri til ársins 1984, þá
fluttu þau til Reykjavíkur og búa nú á
Sléttuvegi 13.
Á silfurbrúðkaupsafmæli þeirra barst
þeim þessi vísa, ort af séra Jóhannesi
Pálmasyni:
Í dag hljómar sætt ykkar silfraða bjalla
um sæmd þá er fylgdi ykkur leiðina alla.
Svo hljómi hún áfram uns gullhörpur
gjalla
og glitrandi demantar til ykkar falla.
Platínubrúðkaup
Eloflex
rafknúinn hjólastóll
fyrir fólk á ferðinni
Léttur rafknúinn
hjólastóll sem er fimur
í keyrslu og með góða
drægni.
Hentar notendum sem
þurfa einfaldan stól
sem auðvelt er að
ferðast með og setja
í skottið á bíl.
Fagfólk STOÐAR
veitir nánari
upplýsingar og ráðgjöf.
Trönuhrauni 8, Hafnafirði | Sími 565 2885 | stod.is
Reykjavík Guðni Þór Karólínuson fædd-
ist 19. febrúar 2021 kl. 02.03 á Landspít-
alanum í Reykjavík Hann vó 2.930 g og
var 49 cm langur. Móðir hans er Karólína
Þórunn Guðnadóttir.
Nýr borgari