Morgunblaðið - 31.12.2021, Side 50

Morgunblaðið - 31.12.2021, Side 50
50 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2021 England Manchester United – Burnley................ 3:1 - Jóhann Berg Guðmundsson lék allan leikinn með Burnley. Staðan: Manch. City 20 16 2 2 51:12 50 Chelsea 20 12 6 2 43:14 42 Liverpool 19 12 5 2 50:16 41 Arsenal 19 11 2 6 32:23 35 West Ham 19 9 4 6 34:25 31 Manch. Utd 18 9 4 5 30:26 31 Tottenham 17 9 3 5 22:20 30 Wolves 18 7 4 7 13:14 25 Leicester 18 7 4 7 31:33 25 Brighton 18 5 9 4 17:18 24 Crystal Palace 19 5 8 6 27:27 23 Aston Villa 18 7 1 10 24:28 22 Southampton 19 4 9 6 20:29 21 Brentford 18 5 5 8 21:25 20 Everton 17 5 4 8 21:29 19 Leeds 18 3 7 8 18:36 16 Watford 17 4 1 12 22:35 13 Burnley 16 1 8 7 15:24 11 Newcastle 19 1 8 10 19:42 11 Norwich City 19 2 4 13 8:42 10 B-deild: Bournemouth – Cardiff............................ 3:0 Bristol City – QPR ................................... 1:2 Nottingham F. – Huddersfield ............... 0:1 Stoke – Derby........................................... 1:2 Staða efstu liða: Bournemouth 25 14 7 4 41:20 49 Fulham 23 13 6 4 51:19 45 Blackburn 24 13 6 5 43:28 45 WBA 24 11 8 5 30:18 41 Middlesbrough 25 11 6 8 29:24 39 Huddersfield 25 11 6 8 32:29 39 QPR 23 11 5 7 35:29 38 Stoke City 23 10 5 8 27:23 35 Nottingham F. 25 9 7 9 32:28 34 Katar Al-Arabi – Umm Salal ............................. 0:2 - Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn með Al-Arabi. >;(//24)3;( Svíþjóð Önnered – Skövde ............................... 29:29 - Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði 5 mörk fyrir Skövde. Kristianstad – Västerås...................... 24:21 - Andrea Jacobsen skoraði þrjú mörk fyr- ir Kristianstad. Danmörk GOG – Aalborg .................................... 38:35 - Viktori Gísla Hallgrímssyni tókst ekki að verja skot í marki GOG. - Aron Pálmarsson skoraði þrjú mörk fyr- ir Aalborg og gaf sex stoðsendingar. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari liðsins. Mót karla í Póllandi Túnis – Japan....................................... 36:31 - Dagur Sigurðsson þjálfar Japan. Pólland – Holland................................ 33:27 - Erlingur Richardsson þjálfar Holland. _ Lokastaðan: Túnis 4, Pólland 4, Holland 2, Japan 2. . E(;R&:=/D Subway-deild karla Keflavík – Njarðvík.............................. 74:78 Staðan: Keflavík 11 9 2 971:892 18 Þór Þ. 11 8 3 1063:964 16 Grindavík 11 7 4 915:899 14 Njarðvík 10 7 3 938:833 14 Tindastóll 10 6 4 852:868 12 Valur 10 6 4 800:792 12 KR 10 5 5 907:920 10 Stjarnan 10 5 5 896:879 10 Breiðablik 11 4 7 1162:1148 8 ÍR 10 3 7 869:931 6 Vestri 10 2 8 796:871 4 Þór Ak. 10 0 10 738:910 0 Subway-deild kvenna Fjölnir – Valur ...................................... 99:70 Staðan: Njarðvík 11 9 2 750:680 18 Fjölnir 12 9 3 1008:907 18 Valur 11 7 4 849:812 14 Haukar 8 4 4 544:531 8 Keflavík 10 4 6 795:781 8 Grindavík 12 3 9 877:1000 6 Breiðablik 10 1 9 696:808 2 NBA-deildin Detroit – New York.............................. 85:94 Indiana – Charlotte .......................... 108:116 Boston – LA Clippers .......................... 82:91 Chicago – Atlanta ............................. 131:117 Memphis – LA Lakers....................... 104:99 Phoenix – Oklahoma City .................. 115:97 Portland – Utah ................................ 105:120 Sacramento – Dallas ............................ 95:94 >73G,&:=/D KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild kvenna: Ísafjörður: Vestri – Aþena/UMFK ...... S16 Höllin Ak.: Þór Ak. – Ármann................ S18 UM HELGINA! Mario Matasovic fór mikinn fyrir Njarðvík þegar liðið vann afar sterkan sigur gegn toppliði Kefla- víkur í úrvalsdeild karla í körfu- knattleik, Subway-deildinni, í Blue-höllinni í Keflavík í 11. um- ferð deildarinnar í gær. Leiknum lauk með 78:74-sigri Njarðvíkur en Matasovic skoraði 19 stig í leiknum og tók átta frá- köst. Njarðvíkingar leiddu 23:14 eftir fyrsta leikhluta en Keflvíkingum tókst að minnka forskot Njarðvík- inga í sex stig í öðrum leikhluta og var staðan 41:35, Njarðvík í vil, í hálfleik. Keflvíkingar byrjuðu síð- ari hálfleikinn af miklum krafti og tókst að minnka forskot Njarðvík- inga í þrjú stig í þriðja leikhluta í 52:55. Njarðvíkingar byrjuðu fjórða leikhluta af krafti og náðu mest níu stiga forskoti í fjórða leik- hluta, 68:58, og Keflvíkingum tókst ekki að snúa leiknum sér í vil eftir það þrátt fyrir hetjulega baráttu. Fotios Lampropoulos var stiga- hæstur í liði Njarðvíkur með 21 stig og ellefu fráköst og Haukur Helgi Pálsson skoraði 12 stig. Jaka Brodnik átti stórleik fyrir Keflavík, skoraði 31 stig og tók sautján fráköst, og Dominykas Milka skoraði 16 stig og tók sjö fráköst. Njarðvík fer með sigrinum upp í fjórða sæti deildarinnar í 14 stig en Keflavík er sem fyrr í efsta sætinu með 18 stig. Njarðvík vann nágrannaslaginn - Annað tap Keflavíkur á tímabilinu Morgunblaðið/Árni Sæberg Drjúgur Njarðvíkingurinn Mario Matasovic byrjaði á bekknum gegn Kefla- vík en átti frábæra innkomu af bekknum og skoraði 19 stig í Blue-höllinni. Körfuknattleikskappinn Zoran Vrkic er genginn til liðs við Tinda- stól og mun leika með liðinu út yf- irstandandi tímabil. Zoran, sem er 34 ára gamall, er króatískur fram- herji sem lék síðast með Alkar í heimalandi sínu en hann hefur einnig leikið á Spáni og á Grikk- landi á ferlinum. Þá hefur Thomas Massamba yfirgefið félagið en hann skoraði 9 stig, tók fimm fráköst og gaf fimm stoðsendingar að með- altali í leik á fyrri hluta tímabilsins. Tindastóll er með 12 stig í fjórða sæti úrvalsdeildarinnar. Króati til Tindastóls Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Þjálfari Baldur Þór Ragnarsson hefur stýrt Tindastóli frá 2019. Ísland er komið í níunda sætið á styrkleikalista Evrópu yfir sterk- ustu deildir álfunnar í knattspyrnu kvenna eftir stigasöfnun Breiða- bliks og Vals í Meistaradeild kvenna á yfirstandandi keppn- istímabili. Ísland var í tólfta sæti fyrir þetta tímabil og það færði ís- lenskum liðum tvö sæti í nýrri út- gáfu af Meistaradeildinni 2021-22. Stigin sem Breiðablik og Valur kræktu í dugðu til að lyfta Íslandi enn ofar, eða úr tólfta sætinu í það níunda eins og staðan er núna í árs- lok. Ísland í níunda sæti í Evrópu Morgunblaðið/Kristinn Magnúss. 3 Breiðablik vann þrjá leiki í 1. og 2. umferð Meistaradeildarinnar í ár. Cristiano Ronaldo var í lykilhlut- verki hjá Manchester United þgear liðið vann þægilegan sigur gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Old Trafford í Man- chester í gær. Leiknum lauk með 3:1-sigri Unit- ed en Ronaldo lagði upp mark og skoraði í leiknum. Scott McTominay kom United yf- ir strax á 8. mínútu með frábæru skoti utan teigs eftir eftir sendingu frá Ronaldo og Ben Mee fyrirliði Burnley varð svo fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 27. mínútu. Ronaldo bætti svo við þriðja marki United á 35. mínútu þegar hann fylgdi eftir langskoti McTom- inays áður en Aaron Lennon minnkaði muninn fyrir Burnley með laglegu einstaklingsframtaki á 38. mínútu. United fer með sigrinum upp í sjötta sæti deildarinnar í 31 stig en Jóhann Berg Guðmundsson, sem lék allan leikinn með Burnley, og liðsfélagar hans eru áfram í fallsæti með 11 stig. AFP Markaskorarar Cristiano Ronaldo fagnar marki sínu ásamt Scott McTom- inay sem skoraði sitt fyrsta mark í úrvalsdeildinni á tímabilinu í gær. Fjögurra marka veisla í Manchester Dagný Lísa Davíðsdóttir átti stór- leik fyrir Fjölni þegar liðið vann stórsigur gegn Íslandsmeisturum Vals í úrvalsdeild kvenna í körfu- knattleik í Dalhúsum í Grafarvogi í 14. umferð deildarinnar í gær. Leiknum lauk með 99:70-sigri Fjölnis en Dagný Lísa skoraði 23 stig, tók sjö fráköst og gaf þrjár stoðsendingar í leiknum. Fjölnir byrjaði leikinn af krafti og komst í 12:3 eftir fjögurra mín- útna leik, en Valskonur unnu sig vel inn í leikinn og var staðan 20:19, Fjölni í vil, eftir fyrsta leik- hluta. Fjölniskonur áttu frábæran loka- sprett eftir jafnan annan leikhluta þar sem þær skoruðu 18 stig í röð og var staðan 44 :33 í hálfleik, Fjölni í vil. Fjölniskonur bókstaflega völtuðu svo yfir Valskonur í þriðja leik- hluta þar sem þær skoruðu 30 stig gegn 16 stigum Valskvenna og Grafarvogsliðið leiddi 74:49 fyrir fjórða leikhluta. Valskonur voru aldrei líklegar til þess að snúa leiknum sér í vil í fjórða og síðasta leikhlutanum og Grafarvogsliðið fagnaði öruggum sigri í leikslok. Aliyah Mazyck skoraði 19 stig og tók fjórtán fráköst fyrir Fjölni og Sanja Orozovic skoraði 16 stig og tók átta fráköst. Ásta Júlía Grímsdóttir var stiga- hæst Vals með 18 stig og fjórtán fráköst og Ameryst Alston skoraði 14 stig. Fjölnir er með 18 stig, líkt og Njarðvík, í öðru sæti deildarinnar eftir tólf leiki en Valur er í þriðja sætinu með 14 stig eftir ellefu leiki. Fjölnir valtaði yfir Íslandsmeistarana Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Átök Valskonan Ásta Júlía Grímsdóttir, til vinstri, og Fjölniskonan Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir, til hægri, eigast við í Grafarvoginum í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.