Morgunblaðið - 31.12.2021, Síða 56
Starfsfólk Svefn & heilsu óskar
landsmönnum öllum gleðilegs
nýs árs og þakkar öll viðskiptin
á líðandi ári.
Allt fyrir góðan svefn
og betri heilsu
Í fimmta skiptið hefst nýtt ár í Reykjavík á upplestri
ljóða á vegum Bókmenntaborgarinnar. Lesturinn fer
fram í Gröndalshúsi á morgun, 1. janúar, milli kl. 10 og
17. Líkt og í fyrra sitja gestir heima vegna heimsfarald-
urs og nýársljóðalestrinum verður streymt á facebook-
síðu Bókmenntaborgar og á ruv.is. Meðal skáldanna
sem koma fram eru: Anne Carson, Bergsveinn Birgis-
son, Brynja Hjálmsdóttir, Eva Rún Snorradóttir, Gerður
Kristný, Haukur Ingvarsson, Ingólfur Eiríksson, Jakub
Stachowiak, Jón Kalman Stefánsson, Ragnar Helgi
Ólafsson, Soffía Bjarnadóttir, Þórarinn Eldjárn, Þórdís
Helgadóttir og Þórunn Jarla Valdimarsdóttir.
Nýársljóðalestur í Gröndalshúsi
FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 365. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
„Ég missti af átta mánuðum hjá landsliðinu og á meðan
gerbreyttist liðið. Ég verð aftur hálfgerður nýliði í
landsliðinu,“ segir Hörður Björgvin Magnússon, knatt-
spyrnumaður hjá CSKA í Moskvu, en hann er að komast
aftur af stað eftir að hafa verið frá keppni síðan í apríl
vegna meiðsla. »51
Ég verð aftur hálfgerður nýliði
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Siglfirðingurinn Sigurður Ásgríms-
son, yfirmaður séraðgerða og
sprengjueyðingarsveitar Landhelg-
isgæslunnar, lætur af störfum um
áramótin. Áhugamálin eru nokkur
og nú gefst meiri tími en áður til að
sinna þeim. Þar á meðal ljósmyndun
og vinnslu mynda, sem hann hefur
haft áhuga á frá barnsaldri. „Ég sé
líka fyrir mér að hafa meiri tíma í
golfið þegar fer að vora.“
Tilviljun réð því að Sigurður réðst
til Gæslunnar í fullt starf í lok árs
1989 eftir að hafa unnið mikið fyrir
hana sem rafvirki hjá raftækjaverk-
stæðinu Segli. Hann segir að þeir
sem hafi séð um rekstur skipanna
hafi jafnframt verið sprengisérfræð-
ingar stofnunarinnar og eftir að þeir
hafi boðið sér að fara til Danmerkur
og læra meðhöndlun á sprengjum
hjá danska hernum og sjóhernum og
gera þær óvirkar hafi ekki orðið aft-
ur snúið.
Fjölbreytt verkefni
Auk þess að vera rafvirkjameist-
ari hafði Sigurður lært stýritækni í
Rafiðnaðarskólanum og þegar Gæsl-
an fékk fyrstu tölvurnar kom það í
hlut deildarinnar að sjá um tölvu-
deildina til 2005. Vinnufélagarnir
voru jafnframt sprengisérfræðingar
bandaríska hersins á þessum tíma.
Eftir brottför hans 2006 tóku þeir
yfir sprengjugeymslur og verkstæði
sem tengdust hernum. „Banka-
hruninu fylgdi mikill niðurskurður,
hagræðing og skipulagsbreytingar,“
segir Sigurður. Ýmis verkefni hafi
verið færð undir deildina, meðal
annars til þess að koma í veg fyrir
uppsagnir. Þar á meðal hafi verið
umsjón kafara, valdbeitingar-
kennsla, þrekþjálfun áhafna skipa og
almenn skyndihjálp innan LHG. „Í
byrjun vorum við þrír en nú erum
við sex. Við höfum tekið að okkur
mörg störf eins og björgun flótta-
manna á Miðjarðarhafi, sprengju-
eyðingu í Írak og Líbanon og
kennslu í sprengjueyðingu í Jórd-
aníu, ná upp sokknum bátum, stöðva
mengun frá El Grillo, leit að fólki og
aðstoða lögreglu og björgunar-
sveitir.“
Starfið er ekki hættulaust, en Sig-
urður segir að áhersla sé lögð á góða
þjálfun, menn fari eftir ákveðnum
verkferlum, hvort sem farið sé um
borð í togara til að gera djúp-
sprengju óvirka eða inn í hús til að
fjarlægja og eyða gömlu og við-
kvæmu dínamíti. „Þetta eru verkefni
sem þarf að leysa og meðan á því
stendur er enginn tími til að hugsa
um neitt annað. En sem betur fer hef
ég ekki slasast, er enn með alla putt-
ana.“
Áhugi á sprengjum kviknaði á
unga aldri á Siglufirði. Sigurður seg-
ir að félagarnir hafi kynnt sér hvern-
ig búa mætti til púður og m.a. gert
tilraunir til að smíða eldflaugar úr
málmvindlahylkjum. „Það gekk ekki
vel að koma þeim á loft og ég man
sérstaklega eftir því, þegar ég var að
búa til kveikiþráð og þurrkaði hann
á ofninum inni í baðherberginu
heima!“
Sigurður flutti til Vestmannaeyja
1971, gekk í Björgunarfélag Vest-
mannaeyja og var nýbyrjaður í
slökkviliðinu þegar gosið hófst 1973.
Hann segir það hafa verið lærdóms-
ríkt og mikilvæga reynslu. „Fyrst
það fór ekki verr hefði ég ekki viljað
missa af því.“
Vinna sprengjusérfræðinga er
fyrst og fremst mannúðarstarf, að
sögn Sigurðar. Mikill tími fari í að
hreinsa fyrrverandi átakasvæði um
víða veröld. „Haldið hefur verið fram
að ef hætt yrði að framleiða jarð-
sprengjur og klasasprengjur, sem
aðallega örkumla og drepa saklausa
borgara þessara landa, tæki hreins-
unarstarf allra sprengjusérfræð-
ingja heims 80 ár.“ Hann leggur
áherslu á að hlutverk Gæslunnar sé
meðal annars að gæta efnahags-
lögsögunnar fyrir rányrkju fiski-
miða og mengun auk þess að sinna
björgun. Hann þakkar fyrir að hafa
fengið tækifæri til þess að vinna með
öllu því frábæra fólki sem þar starfi
og geta lagt sitt af mörkum. „Við
erum alltaf til taks, alltaf að hjálpa
einhverjum og það er mjög gefandi.“
Gefandi mannúðarstarf
- Sigurður Ásgrímsson hættir hjá Gæslunni vegna aldurs
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Lykilmenn Halldór Nellett skipherra, Sigurður Ásgrímsson og Jón Páll
Ásgeirsson stýrimaður lengst til hægri hafa látið af störfum á árinu.
Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, er annar frá hægri.
Hætta Sigurður vinnur við að ná
forsprengju úr aðalhleðslu tundur-
dufls um borð í togara.