Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.12.1997, Side 1

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.12.1997, Side 1
Orð í belg... Ágæti félagi. Um leið og ég set nokkrar jákvæðar línur á blað, óska ég þér gleðilegrar jólahátíðar í von um heillaríkt Sjálfsbjargarár 1998. Snemma á þessu ári gerðu Félagsmála- ráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfé- laga með sér tveggja ára samkomulag, um að koma á markvissu starfi á sviði ferli- og að- gengismála fatlaðra. Markmiðið er að hvetja sveitarfélögin til þess að sinna ferlimálum með skipulögðum hætti. Sjálfsbjörg bindur miklar vonir við þetta samkomulag og hvet ég öll félög okkar til að ræða við sínar sveitastjómir um málefnið. Ataksdagar Sjálfsbjargarfélagana hafa vissulega vakið athygli og er búið að vera sér- stakt átak hjá mörgum félögum. Lít ég þá til þeirrar áskorunar sem félagið á Húsavík, var upphafsaðili að. Félagið á Vopnafirði var með átaksdag í sumar og vom fyrirtækjum sem höfðu gert úrbætur veittar viðurkenningar. Vakti það undrun mína hvað mörg fyrirtæki í tiítölulega litlu sveitarfélagi, höfðu tekið til hendi í sínum garði. Ekki að allt væri full- komið, en samt til betri vegar, þannig að ástæða er til að láta velþóknun í ljós. Einnig er félagið á Akureyri með átak undir kjörorð- inu „Létt hurð - greið leið“. Félagið á höfuð- borgarsvæðinu hefur fengið byr undir báða vængi og á fulltrúa í ferlinefnd á vegum Reykjavíkurborgar. Félagsmálanefnd lands- sambandsins er einnig að undirbúa sérstakt átak sem beint verður til félaga sambandsins þegar þar að kemur. María félagsmálfulltrúi og ég lögðum leið okkar til Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, þar sem við gerðum grein fyrir, að Sjálfsbjörg, lsf., hefur mikinn hug á að fá tækifæri til að fylgj- ast með þeirri undirbúningsvinnu sem fram undan er í tengslum við flutning á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga í þeim til- gangi að vekja athygli á málefnum hreyfi- hamlaðra. Ahersla var lögð á eftirfarandi atriði. •Tryggja þarf sveitarfé- lögunum fjármagn til verksins. Einhvers kon- ar jöfnunaraðgerðir verða að koma til, því sér- tæk úrræði verða að vera fyrir hendi. •Jafnræði til þjónustu verður að tryggja. Það er algerlega óviðunandi að fólk þurfi að flýja úr sinni heimabyggð vegna aðstöðuleys- is og skorts á þjónustu. Sú þróun verður ekki stöðvuð ef ákveðin réttindi til þjónustu verða ekki skilgreind. Löggjöf er þó ekki nóg, held- ur þarf að veita henni aðhald. •Fagþekking þarf að vera til staðar. Hin smærri sveitarfélög verða að sameinast um þjónustuna til að geta ráðið starfsfólk með sérþekkingu. •Þjónustusvæði mega ekki verða það stór að hagurinn af „nálægð þjónustunnar" glatist. •Skýlaus krafa er að þær stofnanir sem taka að sér að sinna þjónustunni á vegum sveitarfélaganna verði aðgengilegar öllum. GuðríSur Ólafsdóttir formaður.

x

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra
https://timarit.is/publication/1653

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.