Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.12.1997, Síða 9
9
Klifur
FFff-FRfEÐSLfi FYRIR FfiTUIÐfl
OG fiÐSTfíNDENDUR
SYSTKINANÁMSKEIÐ HAUST-
IÐ 1997.
Á vegum FFA var haldið námskeið
fyrir systkini fatlaðra dagana 17.
október til 13. nóvember s.l. í sam-
vinnu við Svæðisskrifstofu Reykja-
víkur og Reykjaness. Fulltrúi Styrkt-
arfélags vangefinna í FFA, María
Jónsdóttir félagsráðgjafi, hélt utan
um skipulagningu námskeiðsins.
Hugmyndir að baki systkinanám-
skeiðsins má rekja norður til Akur-
eyrar en s.l. vor stóð FFA fyrir slíku
námskeiði þar og þótti útkoman það
góð að ákveðið var að halda samsvar-
andi námskeið hér í Reykjavrk byggt
á þeirri reynslu og nýjum hugmynd-
um og áhersluþáttum bætt við.
Á námskeiðinu er talað um við-
horf, tilfinningar og samskipti bam-
anna til fatlaða systkinisins. Fjallað er
um tilfinningar gagnvart foreldrum
og eins rætt um hvemig eða hvort það
að eiga fatlað systkini hafi áhrif á
samband við vinina. Einnig er unnið
með t.d. myndir og leikþætti. Mark-
miðið er að hvert bam fái að tjá sig á
þann hátt sem hentar því best.
SYSTKINANÁMSKEIÐ í FEBR-
ÚAR 1998.
Reynslan af þessu fyrsta systkina-
námskeiði hér í Reykjavík var það
góð að ákveðið hefur verið að bjóða
upp á annað systkinanámskeið í febr-
úar 1998. Þeir sem hafa áhuga á að
taka þátt í því og eru á aldrinum 9-12
ára hafi samband
Systkinanámskeiðið er fyrir börn á
aldrinum 9-12 ára sem öll eiga það
sameiginlegt að eiga fatlað syskini.
í þetta sinn voru það 12 börn sem
tóku þátt og var þeim skipt í tvo
hópa yngri og eldri hóp. Það voru
2 leiðbeinendur með hverjum
hóp sem stýrðu vinnunni með
börnunum. Hittust þau tvisvar í
viku, í sex skipti, 1 1/2 klst. í
senn.
Markmið námskeiðsins er að:
• Veita bömunum tækifæri til að
hitta önnur börn sem eiga fötluð
systkini í skipulögðu og skemmtilegu
umhverfi.
• Gefa börnunum tækifæri til að
ræða saman á jákvæðan hátt með
jafnöldrum sínum um margt sem
tengist því að eiga fatlað systkini.
• Gefa bömunum sýn inn í það
hvemig takast megi á við þær marg-
breytilegu aðstæður sem fylgja því að
eiga fatlað systkini.
• Veita foreldrum og fagmönnum
tækifæri til að kynnast því hvemig er
í raun og veru að alast upp með fötl-
uðu systkini, þ.e. um þá sérstöku
gleði og áskorun í lífinu að alast upp
við slíkar aðstæður.
Eftirfarandi félagasamtök
eru aöilar aö FFA:
Landssamtökin Þroskahjálp,
Sjálfsbjörg landssamband
fatlaöra, Styrktarfélag lamaöra
og fatlaöra og
Styrktarfélag vangefinna.
fyrir 15. janúar á skrifstofu
FFA í síma 588-9390 eða á skrifstofu
Sjálfsbjargar l.s.f. í síma 552-9133.
FRÆÐSLUKVÖLD FYRIR FOR-
ELDRA HREYFIHAMLAÐRA
UNGLINGA.
Stefnt er að því að halda tvö
fræðslukvöld fyrir foreldra hreyfi-
hamlaðra unglinga í febrúar n.k. und-
ir yfirskriftinni; „Væntingar og fram-
tíðarsýn foreldra. Geta þeir stutt og
undirbúið jarðveginn til sjálfstæðis?“
Á dagskránni verða m.a. kynnt
ýmis stuðningsúrræði, eins og heimil-
ishjálp, heimahjúkrun, og liðveisla.
Rætt verður hvernig sú þjónusta virk-
ar og hvemig best sé að nýta sér hana
þannig að hún stuðli að fmmkvæði og
efli sjálfstæði einstaklingsins. Fjallað
verður um virkni og fæmi í daglegri
iðju. Fatlaðir einstaklingar munu
segja frá reynslu sinni af að flytja að
heiman. Unglingsárin verða almennt
til umræðu og rætt verður um hvað
felst í sjálfstæði, forræðishyggju, of-
verndun og um félagslega einangrun.
Umræður verða í minni hópum þar
sem þátttakendum gefst tækifæri til
að ræða sín mál og heyra reynslu ann-
arra. Einnig verður endurhæfingar-
íbúð Sjálfsbjargar kynnt og sagt frá
reynslu af henni.
Að undirbúningi standa ásamt
undirritaðri, María Þorsteinsdóttir fé-
lagsmálafulltrúi Sjálfsbjargar l.s.f.,
Erla Jónsdóttir félagsráðgjafi og
Valerie Harris iðjuþjálfi ,en þær eru
starfsmenn Sjálfsbjargarheimilisins
og endurhæfingaríbúðar Sjálfsbjarg-
ar.
Þeir sem hafa áhuga á að skrá sig á
námskeiðið, eða óska nánari upplýs-
inga, hafið gjarnan samband við Lilju
eða Maríu á skrifstofu Sjálfsbjargar,
landssambands fatlaðra í síma 552-
9133. Nánari dagsetningar verða
auglýstar síðar í Klifri og/eða í dag-
blöðunum.
KYNNING Á LÖGRÆÐISLÖG-
UNUM.
Stefnt er að því að halda kynningu
á lögræðislöginum í mars n.k. og
verður það nánar auglýst síðar.
Lilja Þorgeirsdóttir,
félagsmálafulltrúi
Fræðsla
fyrir iatlaða
og aðstandendur
FFA