Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.12.1997, Side 11

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.12.1997, Side 11
Klifur 11 fiðlöganarnámskeið á vegam Sjálfsbjargar l.s.f. handa þátttakendum. íþróttasamband fatlaðra var kynnt af Svani Ingvars- syni sundkappa og Sjálfsbjargarfé- laga í Amessýslu og Önnu Guðrúnu Sigurðardóttur starfsmanni Iþrótta- sambandsins, en hún er jafnframt for- maður Ný-ungar, ungliðahreyfingar Sjálfsbjargar. Starfsemi Sjálfsbjargar og Sjálfsbjargarhússins var kynnt af undirritaðri. Þrír fatlaðir einstaklingar sögðu opinskátt frá sinni reynslu af því að vera fatlaður og/eða fatlast. Hópefli var á dagskránni í umsjá Kjuregej Alexandra Argunova, en það hafði þau áhrif að hrista fólk saman og lífga upp á stemninguna. A laugardagskvöldinu var síðan góður matur og samvera þar sem var mikið sungið og spilað á gítar. Hópstjór- ar voru þau Kristín Jónsdóttir, taka tillit til kostnaðar. Þeir sem veikjast eða verða fyrir slysi fá endurhæfingu með áherslu á líkamlega þáttinn, en eftir að fólk út- skrifast af sjúkrahúsi eða af göngu- deild tekur oft við óöryggi og óvissa. Sumir geta ekki unnið sína venjulegu vinnu, aðrir þurfa að flytja í aðgengi- legra húsnæði, enn aðrir þurfa að skipuleggja fjármálin upp á nýtt, svo dæmi séu tekin. Það er einmitt þá sem fólki finnst oft tímabært að koma á aðlögunamámskeið, en þá getur það verið að horfast í augu við varanlega fötlun. Síðan má ekki gleyma því að margir eru ekki reiðubúnir fyrr en eft- ir nokkur ár, en geta samt haft gagn af Af þátttakendum voru nokkrir sem höfðu fæðst fatlaðir og einnig fólk sem hafði fatlast vegna slyss eða sjúkdóms. Var skipt í hópa á nám- skeiðinu til samræmis við það, en hópamir voru þrír. Námskeiðið var byggt upp með stuttum fyrir- lestrum og umræðum í hópunum þar sem fólk gat rætt um sín per- sónulegu mál, sagt frá reynslu sinni og einnig kynnst öðmm með svipaða reynslu. Það hefur sýnt sig á þessum námskeiðum að það er greinilega mikil þörf hjá fólki að ræða málin og heyra um reynslu annarra. Margir eiga í erfiðleikum með að finna einhvern til að tala opinskátt við um sína fötlun og reynslu af að takast á við kerfið og oft er auðveldara að ræða við fólk með svipaða reynslu. Á námskeiðinu var kynnt ýmis þjónusta og starfsemi sem tengist fötlun. Kristín Jónsdóttir starfsmaður ÖBÍ kynnti réttinda- og trygginga- málin. Tilfinningaleg viðbrögð við fötlun voru einnig til umræðu og fjallaði sálfræðingurinn Einar Hjör- leifsson um þau. Bauð hann einnig upp á einkaviðtöl ef fólk óskaði eftir því. Valerie Harris iðjuþjálfi var með innlegg um breytta virkni og færni í daglegri iðju og var með verkefni María Þor- steinsdóttir f é 1 a g s - málafull- trúi Sjálfs- bjargar l.s.f., ásamt undirritaðri. Eins og gefur að skilja þá er dag- skráin þétt skipuð og þátttakendur fá miklar upplýsingar á stuttum tíma. En þó þeir muni ekki, eða hafi ekki með- tekið allt á námskeiðinu, þá vita þeir betur hvert á að leita til að fá nánari upplýsingar varðandi ýmis réttindi og þjónustu. Það væri hægur leikur að lengja námskeiðið ef ekki þyrfti að svona námskeiði. Þó að fólk sé þá búið að kynna sér og fá vit- neskju um ýmislegt af því sem frætt er um, þá hefur það sýnt sig að það er alltaf eitthvað nýtt sem fólk lærir. Mörgum finnst þó hópstarfið gefa því mest, því að margir hafa ein- mitt þörf fyrir þennan félagslega stuðning innan um fólk þar sem ríkir gagnkvæmur skilningur. Lilja Þorgeirsdóttir, félagsmálafu lltrúi. Helgina 1 .-2. nóvember s.l. var haldið Aðlögunarnámskeið fyrir hreyfihamlaða og að- standendur. Sjálfsbjörg landssam- band fatlaðra stóð fyrir námskeiðinu og var það haldið í Dagvist Sjálfs- bjargarheimilisins, Hátúni 12, Reykjavík. Þetta námskeið er það sjötta í röðinni en hið fyrsta var hald- ið árið 1990. Alls komu 19 manns á námskeiðið og þess skal getið að óvenju góð þátttaka var af lands- byggðinni, eða 11 manns. Landssam- bandið greiddi ferðakostnað og gist- ingu fyrir fólk utan af landi og Sjálfs- bjargarfélögin greiddu þátttökugjöld- in í mörgum tilvikum.

x

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra
https://timarit.is/publication/1653

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.