Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.10.2000, Qupperneq 4
Klifur
Sjálfsbjörg á Húsavík og
nágrenni 40 ára
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á
Húsavík og nágrenni, var
stofnað þann 20. júní 1960, og
varð því fertugt síðastliðið vor.
Fyrsti formaður þess var Jón Þór
Buch, á Einarsstöðum í Reykja-
hverfi.
Þegar þetta er skrifað hef ég ekki í
höndunum nöfn hinna er skipuðu
fyrstu stjómina, en á þessum tíma-
mótum skal þakkað öllum frumherj-
um félagsins sem inntu af hendi
brautryðjendastarfið, sem við njót-
um góðs af í dag. Fljótlega keypti
Sjálfsbjörg sitt húsnæði, neðri hæð í
húsinu Snælandi, sem síðar varð Ar-
gata 12. A tímabili rak félagið þar
vinnustofu, sem nú myndi vera köll-
uð „vemdaður vinnustaður."
Það er ekki létt að halda uppi fé-
lagstarfi í fámennum félögum, það
hefur að sjálfsögðu verið barátta
gegnum árin, og er það enn. En ekki
þýðir að láta deigan síga. Félagið
reynir eftir bestu getu, að fylgjast
með því, sem máli skiptir fyrir
hreyfihamlaða en þar er oft við
ramman reip að draga.
Eg hef þá bjargföstu trú, að félagið
hafi áfram skyldum að gegna, og
skipti talsverðu máli fyrir umhverfi
sitt - fatlaða, sem ófatlaða. Og þó við
séum fá, og náum kannski aldrei
fram öllu því sem við vildum og
þyrftum, þá stendur sú staðreynd
óhögguð, að engin keðja er sterkari
en veikasti hlekkurinn. Stöndum á
verði!
CríaiQ & Greitt
BIRGÐAVERSL UN
seit & sent
Stjórn Sjálfsbjargar á Húsavík. Aftari röðf.v. Brynhildur Bjarnadóttir, formaður;
Brynjar Halldórsson, ritari; María Oskarsdóttir, meðstjórnandi og Hermann
Larsen, gjaldkeri. Fremri röð f.v.: Ag^nar Kári Sœvarsson, varaformaður og
Kristbjörn Oskarsson, meðstjórnandi. A myndina vantar Ingunni Halldórsdóttur.
Sjálfsbjörg á Húsavík og nágr.
sendir sínar fjörutíu ára baráttu-
kveðjur til allra landssambandsfé-
laga Sjálfsbjargar, svo og þeirra, er
starfa fyrir þá er minna mega sín.
Lifið heil.
Brynhildur Bjarnadóttir
formaður.
Flaggað við Snœland, félagsheimili Sjálfsbjargar við Árgötu 12 á Húsavík, þegar
haldið var upp á 40 ára afmœli félagsins 9. september síðastliðinn. Sjálfsbjörg,
Isf. fœrði félaginu fánastöng að gjöf sem sést þó ekki á þessari mynd.
4