Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.10.2000, Page 5

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.10.2000, Page 5
Klifur Siálfsbjörg. landssamband fatlaðra: Hættir afgreiðslu P-merkja Stæöiskort ryrírhreyTiharníaða Gilrlir til: 00.00.0000 Nr.: 000-0000-00000 ÚKjefandi: 000000000000000000 Lögreglustjórinn í Reykjavík og sýslumenn víðs vegar um landið sjá nú um af- greiðslu kortanna en ríkislögreglustjóri er útgáfuaðili. Umsóknareyðublöð fást hjá lögreglustjóra og sýslumönnum. Þann 5. júní 2000 tók í gildi reglugerð um útgáfu og notk- un stæðiskorta fyrir hreyfi- hamlaða. Frá og með þeim degi hætti Sjálfsbjörg lsf. að afgreiða P- merki en þau merki sem gefin höfðu verið út fyrir gildistöku reglugerðar- innar eru í gildi þar til dagsetning rennur út. Lögreglustjórinn í Reykjavík og sýslumenn víðs vegar um landið sjá nú um afgreiðslu kortanna en ríkis- lögreglustjóri er útgáfuaðili. Um- sóknareyðublöð fást hjá lögreglu- stjóra og sýslumönnum. Um er að ræða tvö eyðublöð annað fyrir lækni og hitt sem umsækjandi fyllir sjálfur út. Umsóknum skal skilað til lög- reglustjóra/sýslumanns þar sem um- sækjandi á lögheimili eða dvelur að jafnaði. Umsóknareyðublöð fyrir stæðiskortin má einnig fá hjá Sjálfs- björg, landssambandi fatlaðra, Há- túni 12 í Reykjavík svo og aðildarfé- lögum landssambandsins um allt land. Miklar breytingar hafa verið gerð- ar á útliti kortsins og gildir það nú einnig í ríkjum Evrópusambandsins. Þetta verður að teljast mikil framför því gömlu merkin giltu ekki í öðrum löndum. Aðrar jákvæðar breytingar eru að kortin eru gefin út á einstak- linga en ekki bifreið þannig að við- komandi á að geta notað það í hvaða bifreið sem er. Kortin eru sem fyrr gefin út til fimm ára en einnig er möguleiki að fá kort sem gildir í skemmri tíma, gerist þess þörf. Sjálfsbjörg hefur ekki alveg sleppt hendinni af kortunum því fulltrúi samtakanna situr í sérstakri úrskurð- arnefnd sem dómsmálaráðherra skipar. Þessari nefnd er meðal ann- ars ætlað að fjalla um synjanir á út- Klifur á Veraldarvefnum Isumar var gerð tilraun til að birta fréttablaðið Klifur á vefnum okkar á svokölluðu pdf. formi en þá lítur blaðið út eins og það kemur úr prent- smiðju. Því miður gafst þetta ekki vel. Blaðið okkar er ein- faldlega of stórt. Það tók lang- an tíma að fá það fram og var í raun ekki nema fyrir öflugustu vélar með háhraða sambandi. Við höfum því ákveðið að hætta að birta blaðið í þessu formi og taka í staðinn upp gamla formið þ.e.a.s. að birta einungis texta blaðsins á vefn- um sem venjulegan HTML texta. Þeir sem vilja hins vegar fá blaðið sent í áskrift eru beðnir um að setja sig í samband við skrifstofu Sjálfsbjargar, lands- sambands fatlaðra í síma 552 - 9133. F.h. útgáfunefndar Sjálfsbjargar, Jón Eiríksson. Brandari Hafnfirðingur nokkur var spurður að því hvað þeir vœru margir bræðurnir. Ekki stóð á svarinu: Það er ég, Hebbi, Gunni og Valdi pabbi. Og mamma er elst af okkur bræðrunum! 5

x

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra
https://timarit.is/publication/1653

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.