Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.10.2000, Síða 9
Klifur
- framhald af bls. 7
tróðu þar upp með söng og hljóðfæri
af ýmsum gerðum, svo sem skálum,
sleifum, bollum, greiðum, regnhlíf-
um og hverju því sem hendi var
næst. Síðan var farið í ýmsa leiki.
Á föstudeginum var lífið tekið ró-
lega, til að safna orku fyrir Tívolíið
og heimferðina daginn eftir. Sumir
fóru samt aftur til Odder, leiðbein-
andinn með flugnabitið fór aftur til
læknis, komin með ígerð í sárið, aðr-
ir fóru í gönguferðir í dæmigerðri
danskri rigningu t.d. til að kaupa
kók, nammi og jarðarber (hm, af
hverju jarðarber?). Afgangurinn af
deginum, var sem sagt notaður til
þess að slappa af, ganga frá og taka
til. Bryndís kom sérstaklega frá
Köben til að hjálpa okkur að ganga
frá.
Haldið heim á leið
Laugardagur, haldið af stað heim til
íslands. Allir voru vaknaðir klukkan
7, klæddir og komnir á ról. Farið var
í síðasta skiptið upp í matsal til að
snæða morgunmat að hætti Dana.
Gamli Olle (ostur) var snæddur ofan
á nýbökuðu brauði og ýmislegt
fleira góðgæti. Strax eftir morgumat
var haldið til Kaupmannahafnar,
nánar tiltekið Tívolíið. Eftir hádeg-
isverð á Hard Rock voru allir mætt-
ir í Tívolígarðinn með armbönd og
prófuðu meirihlutann af tækjunum
með bros á vör.
Síðan var haldið upp á flugvöll þar
sem Nolli og Bryndís voru kvödd
með tár á hvörmum. Flugið gekk vel
og vorum við lent á íslandi klukk-
ann 23:30 að staðartíma. í Leifstöð-
inni kvöddumst við með söknuð í
hjarta. Frábær ferð var á enda.
Hópurinn styrktist til muna við
þessa ferð og er nú orðinn eins og
ein stór fjölskylda, jafnt unglingar
sem leiðbeinendur.
Fyrir hönd BUSLARA:
Arni, Lárus, Kolbrún,
Halla, Halli, Leifur, Brynja,
Aðalbjörg og Begga.
Sjálfsbiargarh úsið:
Nýjar gestaíbúðir
Teknar hafa verið í notkun
tvær nýjar gestaíbúðir í
Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni
12 um leið og hinar tvær sem áður
hafa gegnt þessu hlutverki voru
settar í almenna útleigu. Algengt
er að fólk utan að landi sem er að
leita sér lækninga eða sinna öðr-
um erindum í Reykjavík dvelji í
íbúðunum. Sjúkrarúm er í íbúðun-
‘flt
um svo og tvíbreiður svefnsófi er
því svefnpláss fyrir þrjá einstak-
linga. íbúðimar eru búnar öllum
helstu nauðsynjum og eru að-
gengilegar fólki í hjólastólum.
Gestir geta keypt sér máltíðir í
mötuneyti Sjálfsbjargarheimilis-
ins á sanngjömu verði.
Nánari upplýsingar eru veittar í
síma 552-9133
ISLANDSBANKIFBA
ERFÐAGREININC
9