Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.10.2000, Blaðsíða 11
Klifur
„Ég elska að vinna
með börnum."
- segir Sigríður Ósk Geirsdóttir, semfékk vinnu ígegnum „Atvinnu með stuðningi.“
„Þetta hefur allt gengið að óskum og starfsfólkið hefur tekið mér vel,“ segir
Sigríður sem hér sést ásamt nokkrum börnum á leikskólanum Foldakoti þar sem
hún hefur starfað í tæpt ár. Mynd/kmh.
Sigríður Ósk Geirsdóttir var
búin að leita sér að vinnu í
langa tíma er henni var kynnt
verkefnið Atvinna með stuðningi.
Hún fékk vinnu fljótlega eftir það og
hefur nú unnið á leikskólanum
Foldakoti í Grafarvogi í tæpt ár.
Hún er yfir sig ánægð enda segist
hún ekki geta hugsað sér skemmti-
legri vinnu en að vinna með bömum.
Sigríður er haldin sjaldgæfum
sjúkdómi sem á íslensku hefur verið
kallaður vöðva- og taugakyrking.
Hann gerir það að verkum að vöðva-
svömn líkamans er sein og við-
brögðin því ekki sem skyldi. Sigríð-
ur á erfitt með ýmsar hreyfingar og
þreytist mjög fljótt. Hún á það t.d. til
að missa skyndilega mátt í fótum og
detta og verður því að fara mjög var-
lega. „Ég var 18 ára gömul þegar í
Ijós kom að ég var haldin þessum
sjúkdómi. Faðir minn slasaðist eftir
að hann missti mátt í fótunum og
datt illa. í kjölfarið vorum við systk-
inin send í rannsókn. Systir mín er
líka haldin þessu sjúkdómi en bróðir
okkar hefur alveg sloppið.“
Sigríður vann á Reykjalundi í 11
ár en varð að hætta þegar deildinni
sem hún vann á var lokað og öllu
starfsfólki sagt upp. „Ég var búin að
leita mér að vinnu í nokkum tíma,
hafði m.a. haft samband við Vinnu-
miðlun fatlaðra en það kom ekkert
út úr því. Þegar haft var samband
við mig frá Svæðisskrifstofu
Reykjavíkur og mér kynnt verkefnið
Atvinna með stuðningi leist mér
strax vel á það. Mér bauðst að vinna
á sjúkrahúsi en ég sagði að ég myndi
helst af öllu vilja vinna á leikskóla.
Ég hef alltaf verið mikið gefin fyrir
böm. Mamma er fóstra og þess
vegna þekki ég vel til starfsins sem
fram fer á leikskólum. Og þetta gekk
upp og ég var fljótlega komin í
vinnu.“
Allir jafnir á vinnustaðnum
Sigríður vinnur á Foldakoti alla daga
vikunnar frá kl. 9 til 13:30. Á
þriðjudögum og föstudögum fer hún
eftir vinnu á Dagvist Sjálfsbjargar
þar sem hún er til kl. 16. Hún notar
ferðaþjónustu fatlaðra til að komast
til og frá vinnu. Sigríður segir starf-
ið fjölbreytt og skemmtilegt. „Ég
byrja t.d. vinnudaginn á að leika við
bömin og síðan fer ég og hjálpa til í
eldhúsinu. Mér finnst afskaplega
skemmtilegt að vinna með bömum,
þau eru svo opin og hlý. Þetta hefur
allt gengið að óskum og starfsfólkið
hefur tekið mér vel. I byrjun vissi
það ekki hversu fötluð ég var, þan-
nig að það spurði mig alltaf hvort ég
treysti mér til að gera hina og þessa
hluti sem þurfti að gera. Ef það er
eitthvað sem ég treysti mér ekki til
að gera þá segi ég það strax og þá er
bara einhver annar sem gerir það.
Það em allir jafnir á þessum vinnu-
stað og vinnuandinn er góður. Mér
var einnig sagt að taka bömin ekki
upp nema ég treysti mér til að halda
á þeim. Sum þeirra tók ég upp þeg-
ar þau vom yngri, en ég get ekki
haldið á þeim núna þegar þau em
orðin svona stór. Ég bara leiði þau
og set þau á stólana. Það er líka
engin þörf á að halda stöðugt á böm-
um þegar þau em orðin svona stór,
þannig að þetta hindrar mig ekkert í
starfi.“
Krakkarnir spyrja mikið
Sigríður segir krakkana sömuleiðis
hafa tekið sér vel. „Ég er stundum
hrædd um að detta þegar þau em að
hlaupa til og frá en þá þarf bara að
11