Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.10.2000, Side 15

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.10.2000, Side 15
Klifur þessi tími verðbréfabrasks síðustu ára, þar sem allt gengur út á að græða peninga með einhverjum hætti, hafa bitnað á hinum félags- legu viðhorfum í þjóðfélaginu. Ég tel að kjör öryrkja hafi verið snöggt- um betri en þau eru í dag þegar ég hætti á þingi, þó að mörg mál hafi unnist. Þá var alltaf reynt að halda þeirri meginreglu að öryrkjar væru þó að minnsta kosti á sambærilegum launum og lægst launaða fólkið í þjóðfélaginu. En síðan var það afn- umið. Ég verð að segja að ég hef orðið fyrir vonbrigðum með stjóm- völd á síðustu tíu ámm. Það ríkti kreppa á tímabili og þá hugsuðum við með okkur að kreppan gæti ekki annað en komið að einhverju leyti niður á öryrkjum líka, sem það svo sannarlega gjörði. En í uppsveiflu síðustu ára þá hefur hins vegar ver- ið lag að gera átak, en það hefur því miður ekki verið gert. Ég harma það skilningsleysi stjómvalda þegar menn sitja á ríkiskassa, sem segja má að hafi flotið út af á síðustu 2-3 ámm og fjármálaráðherra er farinn að kvarta yfir því hvað afgangurinn sé mikill, af hverju í ósköpunum sé ekki hægt að nota eitthvað af þess- um afgangi til að rétta kjör þeirra sem hafa það hvað lakast.“ Blind peningahyggja veður uppi En hvað telur Helgi að þurfi að gera til að opna augu stjómvalda? „Ég tel að við höfum lagt öll plögg á borð- ið. Það hafa verið lagðir fram vand- aðir útreikningar fyrir stjórnvöld sem sýna ástandið svart á hvítu. Ég held að það sé ekki í mannlegu valdi að opna augu þess stjómmálamanns sem lokar augunum fyrir þeim vanda að einstaklingur eigi að kom- ast af á innan við 70 þúsund krónum á mánuði og sambúðarfólk á innan við 100 þúsund krónum. Menn eru þá bara ákveðnir í því að núverandi ástand sé gott. Þegar maður talar við suma af þessum ágætu þing- mönnum, sem margir hverjir eru góðir kunningjar mínir, þá viður- kenna þeir að ástandið sé ómögulegt og að lagfæringa þurfi við en svo gerist ekki neitt. Skrefin sem tekin eru í leiðréttingaátt ná aðeins svo alltof skammt. Breytingin á dögun- um hjá tryggingaráðherra var góð svo langt sem hún náði. Hún breytti hins vegar litlu sem engu um kjör þeira öryrkja sem minnst hafa, en raunar er því lofað að sú breyting sé í ekki alltof mikilli fjarlægð. Það þarf að vinna að því með öllum til- tækum ráðum að lagðar verði aðrar áherslur í samfélaginu. Fjármunir einstakra aðila eiga ekki að ráða heldur heildin. Hvarvetna í samfé- laginu veður uppi þessi blinda pen- ingahyggja. Menn greiða sjálfum sér laun upp á tugi milljóna á ári og blikna ekkert eða blána við það. Þeim þykir bara eðlilegt að gera slíkt af því að þeir hafa unnið hjá viðkomandi fyrirtæki og ávaxtað peningana sína nógu vel. En þeir sem enga peninga eiga til að ávaxta komast aldrei inn í þetta kerfi og geta þar af leiðandi aldrei nýtt sér það. Ef ég væri ekki orðinn svona gamall þá myndi ég fara aftur í framboð og berja á þessum málum á réttum vettvangi. Það eru menn á þingi sem hafa vakið athygli á mál- efnum öryrkja, þingmenn úr öllum flokkum, sem vilja þessum hags- munahópum vel, en þeir hafa bara orðið undir í þeirri þjóðfélagsþróun sem orðið hefur. Og þetta sér allt samfé- lagið, að hinir ríku eru að verða ríkari og hinir fátæku fá- tækari. Þetta er gömul lumma, en hún hefur svo sann- arlega sannast á síð- ustu árum. Innan okkar raða er hópur sem hefur það veru- lega slæmt, einstak- lingar sem lifa ekki bara við hungur- mörk margir hverjir, heldur eru þeir líka svo félagslega einangraðir. Þeir eru dæmdir til fé- lagslegrar einangrunar og geta ekki tekið þátt í einu eða neinu. Oft er mjög sárt að heyra sögur manna um það hvernig þeim gengur að veita bömum sínum það sem öðrum börn- um er veitt, það er átakanlegast af öllu.“ Þörf á að menn samstilli krafta sína Helgi segir suma vilja kenna Ör- yrkjabandalaginu sjálfu um hvemig komið er fyrir öryrkjum í dag, að þar á bæ hafi menn einfaldlega ekki unnið sína heimavinnu. „Eflaust má halda þessu fram, en ég fullyrði þó að hér hafa menn lagt sig fram með öllum tiltækum ráðum og not- að allar mögulegar aðferðir til þess að reyna að koma þessum málstað á framfæri og gert það með eins fjöl- breyttum hætti og mögulegt er. Fólk verður líka að átta sig á því að við erum að berjast fyrir hópi sem er samningsréttarlaus og hefur engan rétt til að krefjast eins eða neins, t.d. með verkfallsrétti. Við verðum ein- faldlega að láta okkur nægja ákvarðanir stjórnvalda eftir að kjarasamningar hafa verið gerðir. En ég leyni ekki vonbrigðum mín- um með að sjá ekki meiri árangur þegar ég hverf frá störfum. Þá á ég ekki við af minni baráttu, heldur af baráttu þeirra ótalmörgu sem koma að þessum málum, bæði í félögun- um okkar og í bandalaginu, vegna þess að þetta er sameiginleg barátta svo margra. Allar mögulegar að- ferðir hafa verið reyndar og ekkert hefur skilað þeim árangri sem ég hefði viljað sjá. Ef til vill þurfa menn að sam- stilla krafta sína enn betur og gera virkn- ina ennþá meiri. Maður heyrir líka rætt um það, meira að segja valdamenn í þjóðfélaginu, að öryrkjar hafi það bara ágætt og á meðan sú skoðun er uppi þá batnar ástandið auðvitað ekki. Þá eru menn einfaldlega í óraunverulegum tengslum við fólkið í landinu. Eldri borgarar kvarta líka yfir sínum kjör- um en þó tel ég að mjög margir þeir- ra séu mun betur settir vegna þess að þeir hafa getað unnið svo til alla sína lífsleið og eignast eignir. Hins vegar hefur margt af okkar fólki, t.d. „Mér hefur fundist þessi tími verðbréfa- brasks síðustu ára, þar sem allt gengur út á að grœða pen- inga með einhverjum hœtti, hafa bitnað á hinum félagslegu viðhorfum íþjóðfé- laginu.“ 15

x

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra
https://timarit.is/publication/1653

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.