Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.10.2000, Síða 17

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.10.2000, Síða 17
Klifur „Ég dáist oft aðfólki hvað það vinnur mikið þrátt fyrir þessar skerðingar sem dynja yfir það í hvert skipti sem þaðfœr launaumslagið frá Tryggingastofnunf' segir Helgi. spannar afskaplega vítt svið, í raun allt litróf mannanna sem leiðir til þess að maður kynnist gífurlega mikilli fjölbreytni í starfinu. Starfið hefur gefið mér færi á að komast að kviku mannlífsins þar sem fólk býr við hvað erfiðust kjör. Margt af þessu fólki sýnir þó oft undraverða lífsgleði og lífsþrótt þrátt fyrir alla erfiðleikana. Maður er oft gjörsam- lega gáttaður yfir því hvað þetta fólk er í raun og veru orðið þroskað og tekur þessum hlutum með miklu jafnaðargeði og vinnur vel úr sínum málum. Félagsmálafulltrúastarfið, sem ég tók að mér í byrjun, var m.a. hugsað sem samskiptaaðili við aðildarfélög Öryrkjabandalagsins og það varð býsna mikið starf eftir því sem þeim fjölgaði, en þau eru 26 að tölu í dag. Samstarfið við félögin hefur verið afar ánægjulegt og það hefur verið gott að vinna með þeim sem þar að koma. Við höfum lagt okkur fram um að heimsækja félögin reglulega og vera í góðu sambandi. Vinnan við fréttablað Öryrkjabandalagsins hefur sömuleiðis veitt mér mikið yndi og ánægju þrátt fyrir alla fyrir- höfnina sem því fylgir. Blaðið, sem kemur út fjórum sinnum á ári, fer út til allra aðildarfélaga okkar, sem þýðir að það fer til 18 þúsund áskrifenda. Við verðum auðvitað vör við hvaða þýð- ingu það hefur að fólk geti fylgst með því sem er að gerast hjá félögunum og bandalaginu sjálfu. Margt af þessu fólki sem fær blaðið hefur einfaldlega ekki efni á að kaupa sér dagblöð eða tímarit og þar af leiðandi er blaðið eins og hver önnur himnasending. Það hefur verið gott að vinna inn- an veggja Öryrkjabandalagsins hér í Hátúni. Við höfum verið mjög heppin með starfsmenn og andrúms- loftið á vinnustaðnum er gott. Gott andrúmsloft á vinnustað hefur gríð- arlega mikið að segja, það gerir manni gott á sama hátt og það getur verið afskaplega slæmt fyrir sálar- tetrið að vera alltaf í andrúmslofti þar sem hið neikvæða ríkir.“ Mun hafa nóg fyrir stafni En hvað vill Helgi segja um framtíð- ina er viðkemur málefnum öryrkja? „Við lifum í það auðugu landi, að ef menn vilja á annað borð skipta þess- um gífurlegu þjóðartekjum okkar jafnt, þannig að þeir hópar sem minnst hafa fái eðlilegan hlut af þeim, þá dettur mér ekki í hug annað en að segja að framtíð- in sé björt, líka fyrir þá verst settu.“ Þrátt fyrir að Helgi láti senn af störfum þá fer því fjarri að hann ætli að sitja með hend- ur í skauti. „Ég mun áfram vera víða á vett- vangi, bæði í félögum fatlaðra sem og hjá bindindishreyfing- unni, þannig að ég kvíði því ekkert að ég hafi ekki nóg að gera. Svo á ég mín persónulegu áhugamál, sem ég ætla að reyna að sinna, bæði skrift- um og öðru, þannig að ég mun hafa nóg fyrir stafni. Ég er eiginlega hræddari um að maður fái meira en nóg að gera, en að vera aðgerðarlaus með öllu. Við hjónin ætlum að hætta að vinna á sama tíma og reyna þá bæði að njóta lífsins og gera það sem okkur helst langar til. Ég mun að sjálfsögðu áfram fylgjast vel með málefnum öryrkja. Ég held að mér finnist að mörgu leyti betra og auð- veldara að taka þátt í umræðunni og vera harður og grimmur, eins og ég hef reyndar oft verið, þegar ég er ekki að gera það af neinni skyldu- rækni. Það er einfaldlega vegna þess að þetta er mín innsta hjartans sannfæring og er búin að vera það lengi. Ég var alinn upp við það sem ungur drengur að það ættu allir að hafa það sem allra jafnast í samfé- laginu og ég ætla að vona að ég hafi alla tíð haldið fast við þá megin- skoðun.“ Texti: Kristrún M. Heiðberg. „Ef ég vœri ekki orðinn svona gam- all þá myndi ég fara aftur ífram- boð og berja á þessum máilum á réttum vettvangi.u

x

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra
https://timarit.is/publication/1653

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.