Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.10.2000, Síða 18
Klifur
Á sióðum Zorba
- Ferðasaga eftir Sigurð Björnsson.
Á Krít eru grískar ortódoxkirkjur á flestum jörðum, moskurfrá tímum Tyrkja og
virkifrá tímum Feneyinga. Hellirinn sem Seifur á að hafafœðst í er þarna og rúst-
irnar í Knossos, sem sjá má á myndinni. Myndirlkmh.
Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæð-
inu stóð fyrir ferðalagi fyrr í
sumar sem hér mun í stuttu
máli greint frá. Farið var með
ferðaskrifstofunni Urval-Utsýn til
Krítar, þeirrar fomfrægu eyjar sem
stærst er af grísku eyjunum.
Við vomm 21 í hópnum sem lagði
í hann árla morguns þann 26 júní.
Flogið var með leiguflugi beint til
Krítar og er flugleiðin 5-6 stundir.
Lent var á flugvellinum við
Hania, sem er önnur stærsta borgin
á eyjunni, og stendur á skaga sem
er merkilegur fyrir það að kvik-
myndin „Grikkinn Zorba“ var tekin
upp þar og er vettvangur sögunnar.
Það var tiltölulega auðvelt að upp-
lifa Zorbastemningu þarna, um-
hverfið, músíkin, húsakostur og
fólkið sjálft kallaði hana fram.
Það tók á móti okkur sól, mikil sól
og enn meiri sól. Hitinn var yfir 30
gráður en það var bara fyrst sem
okkur þótti hitinn mikill. Aður en
ferðin var öll þótti svalandi er
kvöldhitinn fór niður í 30 stig.
Flugvöllurinn er í um 70 km fjar-
lægð frá hótelinu. Rútur sáu um
flutninga á milli, en þær vom illfær-
ar hreyfihömluðum. Sendibíll beið
okkar hinna sem ekki gátum nýtt
rútukostinn. Bíll þessi reyndist
skelfilegur, án nokkurra festinga og
lofthæðin var höfði mínu of lítil.
Eftir mikið brambolt tókst að koma
okkur fyrir þó þannig að undirritað-
ur varð að halla undir flatt alla leið-
ina. Það var eins gott að við lentum
ekki á ósléttum vegi, þá hefði höfuð
mitt eða bílþakið látið á sjá.
Sem betur fer fannst annar bfll
sem var stærri og betur búinn. Hann
var reyndar í einkaeigu gistihúss-
eiganda en sá ágæti maður var okk-
ur innan handar með bfl sinn þann
hálfa mánuð sem við vomm á Krít.
Sem sagt: Það er ekki auðvelt að
finna sérútbúinn bfl á Krít. Að því
þarf að huga í tíma. Ef hjólastóll er
með í för er nauðsynlegt að hafa
með sér sliskjur því lyftubúnaður og
rampar þekkjast ekki á bflum.
Afangastaður okkar var rétt hjá
borginni Rethymno sem er þriðja
stærsta borg Krítar með um 30.000
íbúa. Hótelið heitir Rithymna Beach
og er sannkallað glæsihótel.
Villur og einkabaðströnd
Hótelið er í raun svæði eða þorp þar
sem bungalowar, raðhús villur og
aðalbyggingar mynda þjónustu-
svæði með göngugötum, veitinga-
stöðum, sundlaugum, verslunum og
fleira. Hótelinu fylgir 500 metra
löng einkabaðströnd og em örfáir
metrar frá aðalbyggingunni á
ströndina þar sem ókeypis baðbekk-
ir bíða.
Þjónusta var öll til fyrirmyndar,
lipur og vingjamleg. Þama var sér-
stakt barnasvæði, dagskrá fyrir böm
og unglinga alla daga og skemmti-
dagskrá var flest kvöld á einum veit-
ingastaðnum. Aðgengi var alveg
þokkalegt og reyndar mjög gott
miðað við hversu aftarlega þessi
heimshluti er í aðgengismálum fatl-
aðra almennt.
Það vom vissulega gallar, sumar
skábrautir vom hættulega brattar og
sérhönnuð snyrtiaðstaða fannst
ekki. Það kom sér að sjálfsögðu illa
ef baðherbergið var lítið en sum her-
bergin voru sem betur fer stærri og
þar komust flestir hjólastólar inn. Ef
hæð á klósetti skiptir fólk máli þá
borgar sig að hafa klósetthækkun
með sér út. Óaðgengileg klósett em
stærsta vandamál hreyfihamlaðra
ferðamanna á Krít og því alveg
nauðsynlegt að sýna þar fyrirhyggju
eins og með bflakost.
En hvað sem þessu leið þá er þetta
yndislegur staður. Þama var sannar-
lega hægt að slaka á, baða sig í sól
og hita, já hita sem fór seinni vikuna
18