Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.10.2000, Síða 20
Klifur
Könnun á högum íbúa í leigu-
íbúðum Sjálfsbjargarhússins
Sjálfsbjörg leigir út 36 íbúðir fyrir hreyfihamlaða að Hátúni 12 í Reykjavík. Þar er
einnig rekið heimili fyrir um 40 mikið fatlaða einstaklinga.
Sjálfsbjargarhúsið og starfsem-
in þar
Fyrsti áfangi Sjálfsbjargarhússins að
Hátúni 12 í Reykjavík var tekinn í
notkun árið 1973. Sjálfsbjörg,
landssamband fatlaðra, rekur þar nú
33 leiguíbúðir, sem leigðar eru
hreyfihömluðu fólki til langs tíma.
íbúðimar em ætlaðar fólki á aldrin-
um 16 til 60 ára en á síðustu árum er
töluvert um að fólk sem er komið á
ellilífeyrisaldur sæki um íbúðir.
Leigjendur í Sjálfsbjargarhúsinu
geta keypt sér máltíðir í mötuneyti
hússins. í húsinu er sundlaug sem
íbúar hafa aðgang að og þar er einn-
ig starfrækt sjúkraþjálfunin Stjá.
Húsverðir em starfandi og sjá þeir
um viðhald íbúða og eru íbúum inn-
an handar um ýmis mál, stór og
smá. Á skrifstofu landssambandsins
er starfandi framkvæmdastjóri, fé-
lagsmálafulltrúi, bókari, fjármála-
fulltrúi og æskulýðsfulltrúi.
Einnig eru í húsinu gestaíbúðir og
gestaherbergi sem ætlaðar em fólki
sem vantar húsnæði í skemmri tíma,
t.d. fólki af landsbyggðinni sem er
að leita sér lækninga í Reykjavík.
Nýlega vom teknar í notkun tvær
nýjar gestaíbúðir í húsinu.
í Sjálfsbjargarhúsinu er Sjálfs-
bjargarheimilið einnig til húsa, og
búa þar að jafnaði 36-39 mikið fatl-
aðir einstaklingar. Einnig er í húsinu
dagvist sem rekin er af Sjálfsbjarg-
arheimilinu.
Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu
hefur aðsetur í húsinu og er þar hægt
að taka þátt í félagsstarfssemi af
ýmsu tagi.
Könnun á högum íbúa í leigu-
íbúðum
I maí síðastliðnum var gerð könnun
á högum íbúa í leiguíbúðaálmu
Sjálfsbjargarhússins. Tilgangur með
könnuninni var einkum tvíþættur: í
fyrsta lagi að gefa íbúum kost á að
koma á framfæri skoðunum sínum á
búsetu í Sjálfsbjargarhúsinu og því
sem e.t.v. mætti betur fara. í öðm
lagi að gefa starfsfólki landssam-
bandsins vísbendingu um hagi íbú-
anna.
Könnunin var kynnt fyrir íbúum á
húsfundi í apríl og einnig var sent
bréf til þeirra allra. Könnunin var
nafnlaus þannig að ekki kom fram
hvaðan einstök svör komu og svör-
unum var skilað í sérstakan póst-
kassa sem settur hafði verið upp á
göngum hússins.
Spurningalistar voru sendir til
allra íbúa C-álmu, samtals 35, þar af
voru 24 karlar og 11 konur. Alls
vom spumingamar tuttugu, þar af
sautján krossaspurningar og þrjár
spumingar þar sem fólki gafst kost-
ur á að tjá sig í stuttu máli.
Niðurstöður úr könnun
Alls bárust 24 listar til baka og er
það um 70% svarhlutfall. Svarhlut-
fall kvennanna var aðeins hærra eða
72% á móti 62% svarhlutfalli hjá
körlunum. Flestir sem svömðu vom
á aldrinum 51-66 ára og þrettán
höfðu búið sjö ár eða lengur í Sjálfs-
bjargarhúsinu. Langflestir íbúar
hússins búa einir enda eru flestar
íbúðimar litlar. Einungis tvö pör eru
í húsinu og engin böm.
Spurt var hvemig fólki líkaði að
búa í húsinu. Sögðu langflestir, eða
21 af 24, að þeim líkaði mjög vel eða
frekar vel að búa í Sjálfsbjargarhús-
inu og engum líkaði illa að búa þar.
Hvað varðar einmanaleika og félags-
lega einangrun þá sögðust átta ekki
finna fyrir slíku. Átta manns merktu
við stundum og stundum ekki og
hinir dreifðust annarstaðar á skalann
0 til 10 þar sem 0 merkti alls enga
einangrun og 10 merkti mjög mikla
20