Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.10.2000, Page 23
Klifur
Setið að spjalli. Frá vinstri; Hafdís Hannesdóttir, Ólöf Ríkarðsdóttir og Arnór
Pétursson.
Að lokum ræddi Bragi um for-
dóma og viðhorf í garð fatlaðra.
Lykillinn er þekking og nálægð - að
kynnast hver öðrum. Sveitarstjóm-
armenn eru í dag hikandi, en Bragi
sagði sína afstöðu ljósa - fatlaðir eru
íbúar sveitarfélagsins og eiga þar
rétt, sem á að mæta í heimabyggð.
Helgi Seljan framkvæmdastjóri
ÖBI steig næstur í pontu og kastaði
hann fram þessari vísu;
Afmérfáið eflaust nóg
ekki er það í lagi
Ekki er ég með ágœtt „sjó“
eins og kappinn Bragi.
Hann velti síðan upp ýmsum grund-
vallarspumingum s.s. eftirfarandi;
Afnám sérlaga. Ná hin almennu
landslög nægilega yfir málaflokk-
inn? Rekstrardæmið. Hver verður
heimanmundur ríkisins með þessum
fjórum lagaflokkum? Burðir sveit-
arfélaga til að taka við málaflokkn-
um. Mörg sveitarfélögin em smá og
þarf væntanlega að efla þau með
samruna þeirra. Samtök fatlaðra,
hvemig standa þau að tengslum við
sveitarfélögin?
Helgi lýsti síðan ýmsum fyrirvör-
um sínum við lögin, m.a. um styrki
til náms fyrir fatlaða og stofnanir
eins og Hringsjá, starfsþjálfun fatl-
aðra, sem tryggja ber. Bað hann í
lokin menn að lesa lögin og koma á
framfæri athugasemdum. Fyrir-
spurnir komu nokkrar, einkum um
fjármagn og þjónustustig. Umræður
um þetta urðu hinar gagnlegustu og
er þess að vænta að þingfulltrúar
hafi betur áttað sig á hvað þama er
mikið í húfi ef ekki verður vel stað-
ið að málum.
Kosningar eru jafnan fyrirferða-
mikill þáttur hvers þings og verður
þeim ekki gerð full skil hér en í
framkvæmdastjóm Sjálfsbjargar til
næstu tveggja ára voru kosin: Arn-
ór Pétursson, formaður, Pálína
Snorradóttir, varaformaður, Grétar
Pétur Geirsson, gjaldkeri, Hildur
Jónsdóttir, ritari og Jón Stígsson,
meðstjómandi.
Sunnudagurinn 4. júní hófst á
lagabreytingum og umræðum um
þær. Gekk það greiðlega. miðað við
hversu margar breytingamar voru.
Efnislegar breytingar vom þó ekki
miklar aðallega orðalagsbreytingar.
Greinilegt var að laganefnd hafði
undirbúið tillögumar vel og vand-
lega.
Alyktanir starfshópa voru því
næst teknar fyrir og kynnti hver
starshópur sínar ályktanir.
Þá var aftur tekið fyrir erindi IFR
um viðbyggingu við íþróttahús
þess. Skrifleg tillaga kom frá for-
manni Sjálfsbjargar lsf. Amóri Pét-
urssyni: „Þingið heimilar samband-
stjóm að taka ákvörðun í þessu máli
þegar nánari upplýsingar liggja fyr-
ir.“ Gengið var til atkvæðagreiðslu
og tillagan samþykkt með 16 at-
kvæðum gegn 12. Þingforseti leit-
aði eftir hvað margir sætu hjá við at-
kvæðagreiðsluna og reyndust þeir
vera þrír. Þingforseti úrskurðaði að
málið hlyti ekki afgreiðslu þar sem
hann liti svo á að 2/3 fulltrúa eða 34
þyrftu að taka þátt í atkvæðagreiðsl-
unni. (51:2/3 = 34.). Urðu um þetta
nokkrar deilur en úrskurður þingfor-
seta stóð.
Framkvæmdastjóm var falið að
ákveða með næsta þing.
Síðasti liður hvers þings hefur oft
á tíðum verið fjörugur þ.e.a.s. þegar
önnur mál eru tekin fyrir. Að þessu
sinni var hópurinn farinn að þynnast
verulega þannig að fjölmörg mál
sem annars hefðu komið fram voru
látin bíða til seinni tíma.
Guðmundur Magnússon kastaði
fram þessari vísu;
Löngu er nú lokið þingi
látum þessum fundi lokið
Legg ég til að saman syngi
að sjái alveg oní kokið.
Aðrir þökkuðu gott þing, og góð-
an aðbúnað á Akranesi. Síðan fékk
Skúli formaður Sjálfsbjargar á
Akranesi orðið og þakkaði fyrir
þingið.
Amór Pétursson formaður sleit
því næst þingi þakkaði góð þing-
störf og óskaði þingfulltrúum góðr-
ar heimkomu.
-framhald afbls. 10
áfram starfsemi SSR eða hins
vegar að flytjast undir starfsemi
Vinnumiðlunar á höfuðborgar-
svæðinu. Ég tel að síðari kostur-
inn sé mun vænlegri og í anda
þeirra frumvarpa sem lögð voru
fyrir Alþingi á vorþingi. Hér á ég
við frumvarp til laga um félags-
þjónustu og frumvarp til laga um
vinnumarkaðsaðgerðir. í báðum
þessum fmmvörpum er lagt til að
aðstoð við fatlaða á almennnum
vinnumarkaði verði á vegum
Vinnumálastofnunar og svæðis-
vinnumiðlana. Það er von mín og
trú að þegar störf okkar og árang-
ur hjá amS verður skoðaður sjái
þeir sem valdið hafa að það væri
hin mesta skammsýni að halda
ekki áfram með Atvinnu með
stuðningi. Það er einnig skoðun
mín að veru amS innan Vinnu-
miðlunar höfuðborgarsvæðisins
þurfi að tryggja ef vel á á takast í
framtíðar uppbyggingu Atvinnu
með stuðningi í Reykjavík.“
Texti: Kristrún M. Heiðberg.
23