Víkurfréttir - 20.10.2021, Blaðsíða 6
augNablik Með JóNi SteiNari
Jón Steinar Sæmundsson
Útgefandi: Víkurfréttir ehf. Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmói 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421-0000. Ristjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi
Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is Umbrot/blaðamaður: Jóhann Páll Kristbjörnsson. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Jóhanna Gísladóttir GK
Ekki hafa nú veðurguðirnir verið hliðhollir útgerð á
Suðurnesjum núna frá því að síðasti pistill var skrif-
aður.
Reyndar þá fóru strákarnir sem voru að róa á Gull-
toppi GK frá Sandgerði, þeir Axel og Ragnar, norður til
Siglufjarðar og sóttu Hópsnes GK og sigldu honum til
Sandgerðis. Voru þeir um 26 klukkutíma á siglingu og
lentu í leiðindaveðri þegar þeir sigldu yfir Faxaflóann,
sigldi togarinn Sóley Sigurjóns GK með þeim og skýldi
fyrir versta veðrinu. Þeir komust þó klakklaust yfir.
Það er mikið búið að vera að gerast hjá Vísi ehf. í
Grindavík undafarin ár. Miklar breytingar hafa orðið á
bátaflota þeirra. Nýsmíði Páll Jónsson GK og tveir eldri
bátar teknir í miklar endurbætur og breytt í línubáta,
Fjölnir GK og Sighvatur GK. Eftir stendur svo flaggskip
þeirra, Jóhanna Gísladóttir GK, sem á sér ansi langa og
farsæla sögu í útgerð hérna við land og að mestu þá
sem loðnuskip. Kannski nánar um það síðar.
Stærsta breytingin sem Vísir ehf. gerði tengdist
einmitt Jóhönnu Gísladóttir ÍS, því í staðinn fyrir að
breyta bátnum þá keypti fyrirtækið togarann Berg VE
og hann heitir í dag Jóhanna Gísladóttir GK. Togarinn
er smíðaður í Skagen í Danmörku árið 1988 en var inn-
fluttur árið 2005. Hann er 35,3 metrar á lengd og 10,5
metrar á breidd og um borð er 1.300 hestafla MAN vél.
Gamla Jóhanna Gísladóttir GK er smíðuð á Akranesi
árið 1969, er 57 metrar á lengd og átta metrar á breidd
og um borð er 1.020 hk vél af Wichmann gerð.
Hvaðan kemur þetta nafn
Jóhanna Gísladóttir?
Jú, það er nefnilega þannig að núverandi eigendur Vísis
eru meðal annars þeir bræður Páll Jóhann og Pétur Haf-
steins Pálssynir. Afi þeirra og amma voru Páll Jónsson,
fæddur 12. desember árið 1904 og lést 25. nóvember
1943, og Jóhanna Daðey Gísladóttir, fædd 17. janúar árið
1908 og dó 2. júlí árið 1981. Páll Jónsson átti tvo báta,
Fjölnir ÍS 7 sem hann eignaðist árið 1933 og Hilmir ÍS
sem var nýsmíði og var smíðaður árið 1943 á Akureyri.
Báturinn hafði farið nokkrar ferðir milli Snæfellsnes
og Reykjavíkur með vikurfarm fyrir Víkurfjelagið og
var báturinn á leið í sína sjöundu ferð yfir til Arnar-
stapa þegar það fórst. Um borð í bátnum voru sjö skip-
verjar og fjórir farþegar, af þessum farþegum var sjö ára
strákur. Allir um borð fórust. Leitað var að bátnum en
ekkert fannst af honum og voru uppi getgátur um að
báturinn hefði farist af hernaðar völdum.
Eftir þetta hörmulega sjóslys gerði Jóhanna Gísla-
dóttir út hinn bátinn, Fjölni ÍS, en sá bátur var smíð-
aður út stáli árið 1922 í Englandi og var með 200 hest-
afla gufuvél. Sá bátur fórst árið 1945 eftir árekstur við
breskt skip, Larids Growe, undan strönd Írlands og með
honum fórust fimm menn en öðrum fimm var bjargað.
Þau Páll og Jóhanna eignuðust fimm börn og eitt
af þeim Páll Hreinn Pálsson sem fæddist 3. júní árið
1932 og lést 16. febrúar árið 2015. Hann útskrifaðist
úr Stýrimannaskólanum árið 1953 og sama ár kaupir
hann bátinn Eldey EA 110 og skírir hann Fjölni ÍS 177.
Þann bát gerði Páll út til ársins 1972 þegar að sá bátur
var talinn ónýtur.
Árið 1965 kaupir Páll Hreinn, ásamt Kristmundi
Finnbogasyni og Ásgeiri Lúðvíkssyni, fyrirtækið Sævík
í Keflavík sem gerði út bátinn Vísi KE 70 og upp frá því
var útgerðarfélagið Vísir hf. stofnað. Þess má geta að
mörg þessara nafna hafa komið fram í bátum á vegum
fyrirtækisins. Núna, árið 2021, er t.d. gerður út um
tuttugu tonna línubátur sem heitir Daðey GK og annar
svipað stór bátur er gerður út sem heitir Sævík GK.
Vísir hefur ekki gert út marga togara í gegnum tíðina
og því verður áhugavert að sjá hvernig nýju Jóhönnu
Gísladóttir GK muni ganga þegar togarinn hefur veiðar.
aFlaFrÉttir á SuðurNeSJuM
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
Nýtt skip bættist í flota Vísis hf. í Grindavík þegar ný Jóhanna Gísladóttir GK 357 kom til
hafnar í Grindavík síðastliðinn fimmtudag. Jóhanna var smíðuð hjá Karstensens Skibs-
værft í Skagen í Danmörku árið 1998 og er 36 metrar að lengd og breiddin er 10,5 metrar.
Hét upphaflega Westro skráður í Skotlandi, síðan Brodd 1 og var gerður út frá Álasundi.
Bergur ehf. í Vestmannaeyjum keypti hann til landsins frá Noregi haustið 2005 og skírði
Berg VE 44, nafn sem hann bar til nú að Vísir eignast skipið.
Jóhanna Gísladóttir
kemur til Grindavíkur
FIMMTUDAG KL. 19:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
6 // vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM Í 40 ár