Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.10.2021, Blaðsíða 7

Víkurfréttir - 20.10.2021, Blaðsíða 7
Helstu verkefni forstöðumanns eru: n Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi félagsstarfsins n Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi félagsstarfsins n Þverfagleg teymisvinna og mannauðsmál n Skipulagning starfsins í samráði við eldri borgara og starfsmenn n Þátttaka í að móta stefnu og framtíðarsýn Menntunar- og hæfniskröfur n Háskólamenntun sem nýtist í starfi n Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskiptahæfni n Reynsla af starfi með eldri borgurum n Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð n Áhugi á frístunda- og félagsstarfi og kunnátta sem nýtist í starfinu n Góð íslenskukunnátta SUÐURNESJABÆJAR LEITAR EFTIR ÖFLUGUM FORSTÖÐUMANNI FYRIR FÉLAGSSTARF ALDRAÐRA Fjölskyldusvið Suðurnesjabæjar óskar eftir öflugum og skapandi leiðtoga í 100 % starf forstöðumanns félagsstarfs aldraðra. Suður- nesjabær er næst stærsta sveitafélagið á Suðurnesjum með um 3.700 íbúa og um 280 starfsmenn. Áhersla er að hjá sveitarfélaginu starfi fólk sem getur veitt bestu þjónustu sem völ er á af þekkingu, ábyrgð og metnaði. Fjölskyldusvið er samþætt þjónustueining og til þess heyrir félags-, frístunda- og fræðsluþjónusta. Markmið félagsstarfsins er að fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun með því að bjóða upp á opið félags- og tómstunda- starf auk fræðslu, hreyfingu og námskeið. Félagsstarfið er starfrækt bæði í Miðhúsum í Sandgerði og Auðarstofu í Garði. Umsóknarfrestur er til 29. október 2021 Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starf. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum Launa- nefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknum skal skilað á rafrænu formi á netfangið afgreidsla@sudurnesjabaer.is Allar frekari upplýsingar veitir deildarstjóri frístundadeildar gudrun@sudurnesjabaer.is Launafulltrúi Matreiðslumaður Skólamatur auglýsir eftir umsóknum í stöðu launafulltrúa í Reykjanesbæ. Starfið felst í launavinnslu, bókhaldi og almennum skrifstofustörfum. Nánari upplýsingar um starfið má finna á alfred.is eða hjá mannauðsstjóra, fanny@skolamatur.is Skólamatur auglýsir eftir umsóknum í stöðu matreiðslumanns í miðlægt eldhús sitt í Reykjanesbæ. Starfið fellst í undirbúningi, framleiðslu og eldun á hádegismáltíðum fyrir leik- og grunnskóla. Vinnutíminn er frá kl.6:00 til 15:00 alla virka daga. Nánari upplýsingar um starfið má finna á alfred.is eða hjá mannauðsstjóra, fanny@skolamatur.is www.skolamatur.is I skolamatur@skolamatur.is I Sími 420-2500 @skolamatur @Skólamatur ehf Vilja ekki Ölla Krók Erindi með boði um forkaupsrétt Suðurnesjabæjar á fiskiskipinu Ölla Krók GK 211, sem selst án aflaheimilda og án aflamarks, var tekið fyrir í bæjarráði Suðurnesjabæjar á dögunum. Þar var samþykkt samhljóða að Suðurnesjabær falli frá forkaupsrétti á fiskiskipinu Ölla Krók GK 211. Níu hundruð og tveir í tón- listarnámi í Reykjanesbæ Nemendur í Tónlistarskóla Reykja- nesbæjar eru nú 902, þar af eru 423 í hljóðfæra- og söngnámi, 234 í for- skóla 1 og 245 í forskóla 2. Á biðlista eru 170 umsækjendur. Starfsmenn skólans eru 45 í 34,42 stöðugildum, þar af eru kennarar og stjórnendur 42. Þetta kemur fram í gögnum fræðsluráðs Reykjanesbæjar þar sem Haraldur Árni Haraldsson, skóla- stjóri Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, mætti og kynnti starfsemi skólans á yfirstandandi skólaári. Að venju stendur tónlistar- skólinn fyrir fjölda tónleika og fleiri viðburðum. Þó nú geti áhorfendur mætt á tónleika verður þeim einnig streymt áfram. Einnig taka nem- endur og kennarar þátt í ýmsum viðburðum utan skólans, þar má nefna að þrír nemendur tóku þátt í tónleikum Ungsveitar Sinfóníu- hljómsveitar Íslands sem haldnir voru í Eldborgarsal Hörpu sunnu- daginn 26. september en sveitin var skipuð um 80 ungmennum úr tón- listarskólum landsins. Ekki þörf fyrir þriðju félagsmið- stöð aldraðra í Suðurnesjabæ Bæjarráð Suðurnesjabæjar tekur undir með öldrunarráði að mikil- vægt er að í sveitarfélaginu sé fjöl- breytt og gott framboð af íbúðar- húsnæði. „Bæjarráð telur að eins og staðan er nú í sveitarfélaginu sé ekki þörf fyrir að bæta félags- miðstöð fyrir aldraða við þær tvær sem nú þegar eru í starfsemi en mikilvægt er að halda áfram upp- byggingu göngustíga og gróður- setningu trjágróðurs. Öðrum ábendingum í bókuninni, svo sem varðandi búsetu eldri borgara, vísar bæjarráð til áframhaldandi umfjöllunar hjá fjölskyldusviði með hliðsjón af húsnæðisáætlun sveitarfélagsins,“ segir í afgreiðslu bæjarráðs Suðurnesjabæjar á fund- argerð Öldungaráð Suðurnesja- bæjar og Sveitarfélagsins Voga. Frá tónleikum í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. á timarit.is ÖLL BLÖÐIN FRÁ 1980 OG TIL DAGSINS Í DAG vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM Í 40 ár // 7

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.