Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.10.2021, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 20.10.2021, Blaðsíða 12
„Þetta heppnaðist svo vel. Við ákváðum að aldursblanda öllum skólanum frá fyrsta upp í tíunda bekk og höfum verið með þema í anda hrollvekju sem tókst rosalega vel. Það voru margir góðir gestir hjá okkur hér í dag,“ sagði Sigurbjörg Róbertsdóttir, skólastjóri Akur- skóla, í viðtali við Víkurfréttir eftir opið hús í Akurskóla þar sem öllum nemendum, ásamt foreldrum og for- ráðamönnum, var boðið í ferðalag í gegnum draugahús og að skoða metnaðarfullar hrekkjavökuskreyt- ingar í skólanum. Íbúar Innri-Njarð- víkur hafa einmitt verið duglegir síðustu ár að halda upp á hrekkja- vökuna og hafa skreytt hverfið sitt fyrir þann dag. Skólastjórinn segir að það skipti máli að foreldrar eða forráðamenn sjái hvað börnin eru að gera í skólanum. Það hefur greinilega verið lögð mikil vinna í þetta? „Já en samt á stuttum tíma. Það lögðu sig allir fram og kennararnir unnu í hópum og engin kennsla á meðan. Þetta var bara frábært og krakkarnir mjög áhugasamir.“ Hrekkjavakan hefur verið að stækka undanfarin ár. „Já og sérstaklega hérna í Innri- Njarðvík. Foreldrar hafa verið dug- legir að skreyta húsin sín og þá hafa krakkar verið að ganga á milli húsa, banka upp á og fá sælgæti í poka. Þá hefur foreldrafélagið í skólanum verið mjög virkt á hrekkjavökunni.“ Á göngum skólans mátti sjá ýmsa hrollvekjandi muni. Risakönguló hafði étið einhvern þannig að aðeins voru fætur sem stóðu út úr munn- inum á henni. Líkkista var á einum stað og vofur og köngulær hangandi niður úr loftum og á veggjum og skólastjórinn talar um að það sé mikill hugmyndaauðgi í skólanum og það sé nauðsynlegt að brjóta upp skólastarfið hjá krökkunum með svona viðburði. „Þetta er í fyrsta skipti í langan tíma sem við getum gert eitthvað svona,“ segir Sigurbjörg og vísar til kórónuveirufaraldursins. Aðspurð að því hver hafi verið kveikjan að draugahúsinu í skólanum segir Sigurbjörg það vera lestrarupplif- unina Skólaslit sem m.a. allir skólar í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Vogum taka þátt í núna í október. Þar fer Ævar Þór Benediktsson á kostum með hrollvekju sem gerist í ónefndum skóla á Suðurnesjum á hrekkjavökunni. Hvernig hafa viðbrögðin við Skóla- slitum verið? „Bara mjög góð. Krakkarnir eru áhugasamir og hlusta á hverjum einasta degi. Það er beðið eftir því á hverjum einasta degi þegar kennar- arnir kveikja á spilaranum eða lesa sjálfir fyrir nemendur.“ Sigurbjörg segir að Skólaslit kveiki áhuga allra á lestri, ekki bara drengja. Hún vonast til að framhald verði á verkefninu. Við höfum öll áhyggjur af því að krakkar og sérstaklega strákar séu ekki nógu duglegir að lesa. Hefur þú trú á að svona aðgerð hafi góð áhrif? „Það hefur allt áhrif. Aðaláhrifin hafa líka foreldrar, að sýna áhuga á lestri og ýta undir þetta heima, það hefur gríðarleg áhrif. Þetta kveikir líka undir í foreldrum að koma hingað og sjá þetta og vonandi hefur þetta allt áhrif á lesturinn,“ segir Sigurbjörg Róbertsdóttir, skólastjóri Akurskóla, í samtali við Víkurfréttir. í Akurskóla og nemendur áhugasamir um lestrarupplifunina Skólaslit og bíða spenntir eftir nýjum kafla á hverjum degi Nánar er fjallað um málið í Suðurnesjamagasíni Víkurfrétta á Hringbraut og vf.is á fimmtudagskvöld kl. 19:30 12 // vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM Í 40 ár

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.