Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.10.2021, Blaðsíða 11

Víkurfréttir - 20.10.2021, Blaðsíða 11
Vistbók er verkefni þriggja kvenna úr Grindavík, Rósu Daggar Þorsteinsdóttur, lýsingarhönnuðar, Svölu Jónsdóttur, innanhúsarkitekts, og Berglindar Ómarsdóttur, tölvunarfræðings. Nýlega hefur síðan Davíð Halldórsson, rekstrarhagfræðingur úr Hafnarfirði, komið til liðs við teymið. Markmið verkefnisins er að hanna og þróa gagnagrunn og leitarvél sem gerir notandanum kleift að sækja upplýsingar um allar umhverfis- vottaðar byggingarvörur hérlendis og vera þannig drifkraftur í að flýta fyrir grænni byggingariðnaði fagaðila og einstaklinga sem standa í bygg- ingarframkvæmdum og um leið tækifæri fyrir þá að skilja eftir sig græn spor til framtíðar. Verkefnið hefur fengið styrki úr Hönnunarsjóði Frumkvöðlaverkefnið gengur vel að sögn Rósu Daggar og Svölu. Teymið hefur fengið styrki frá Hönnunar- sjóði og núna er verið að vinna í gagnagrunni leitarvélarinnar, síðan kemur til með að byggjast ofan á leitarvélina hugbúnaðarlausn í formi vefsíðu sem nýtist notendum og sparar hönnuðum, arkitektum og verktökum tíma í að setja upp verk- efni sín og viða að sér umverfisvott- uðum efnum sem þeir þurfa í verk- efni sín. Verkefnið er tímafrekt og flókið, gagnagrunnurinn kemur m.a. til með að halda utan um uppruna allra efna, skjöl sem þurfa að fara til vottunaraðila að sögn Rósu Daggar. „Við erum að bæta þessa ferla þannig að ferlið verði auðveldara, einfaldara og hagkvæmara fyrir þá sem vilja byggja með þessum hætti,“ bætti Svala við. Við erum að vakna til meðvitundar Íslendingar eru að verða meðvitaðir um vistvænan og umhverfisvænan byggingarmáta að mati Rósu og Svölu en alltaf má gera betur. „Við erum á eftir Norðurlöndunum í umhverfisvottuðum byggingar- verkefnum. Ríkið hefur þó staðið sig ágætlega í þessum efnum og má þar nefna byggingar eins og Veröld - hús Vigdísar, Skriðuklaustur og fangelsið á Hólmsheiði eru allar BREEAM-vottaðar, sem er alþjóð- legt umhverfisvottunarkerfi. Fyrsta umhverfisvottaða einbýlishúsið var síðan byggt í Urriðaholti árið 2017. Við erum í samstarfi við Byko og fleiri aðila í þessari þróun og þar sem þetta er frekar nýtt fyrir flestum þá erum við öll að læra heilmikið í þessari vegferð, m.a. áttuðu starfs- menn Byko sig á að mun stærri hluti þeirra byggingavöru er þegar með umhverfisvottun.“ Til mikils að vinna Hagur þeirra sem vilja byggja og búa í umhverfisvottuðum bygg- ingum liggur í bættu heilsufari og síðan spilla þær ekki umhverfinu – tvö vottunarkerfi eru aðallega notuð hér á landi, annars vegar Svansvott- unin, þar sem meginmarkmiðið er að draga úr umhverfisáhrifum bygginga og vernda heilsu þeirra sem koma að verkinu á framkvæmdartíma sem og þeirra sem nota bygginguna eftir að hún er tekin í notkun, hins vegar er það BREEAM-vottunin, sem leggur áherslu á að draga úr kolefnisspori byggingarinnar að sögn Svölu. „Byggingariðnaðurinn er að losa meira kolefni en við gerum okkur grein fyrir í dag, við vitum að hann er ábyrgur fyrir um 40% losun á heimsvísu en hérna á Íslandi hefur þetta ekki verið mælt.“ Þær stöllur sjá mikla viðhorfs- breytingu og aukna vitundarvakn- ingu gagnvart heilsubætandi um- hverfi og þá m.a. í umhverfisvott- uðum byggingum. „Hafnarfjarðarbær er meira að segja að gefa afslátt á lóðarverði þegar um vottaða bygg- ingu er að ræða. Við erum núna á fullu að koma vefnum í loftið og vonandi verðum klár innan fárra mánaða,“ sögðu Rósa Dögg og Svala að lokum. Vistbók gagnabanki fyrir umhverfisvottuð byggingarefni Jón Hilmarsson ungo@simnet.is Störf í boði hjá Reykjanesbæ Fræðslusvið - Stapaskóli – Kennari Umhverfissvið - Verkefnisstjóri skipulagsmála Fræðslusvið, Háaleitisskóli – Starfsmaður skóla Fræðslusvið, Háaleitisskóli – Kennari Nýheima, móttökudeild fyrir börn í leit að alþjóðlegri vernd Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef Reykjanesbæjar, Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir fyrnast að sex mánuðum liðnum. Viðburðir í Reykjanesbæ Foreldramorgun - svefn ungbarna Fimmtudaginn 21. október kl. 11.00 mætir Arna Skúladóttir höfundur bókarinnar Draumalandið í Bókasafn Reykjanesbæjar og fjallar um svefn ungbarna. Arna er hjúkrunarfræðingur og helsti sérfræðingur landsins í svefni ungbarna. Hún starfar meðal annars við svefnráðgjöf á Landsspítalanum. Allir foreldrar hjartanlega velkomnir og aðgangur er ókeypis. Notaleg sögustund með Höllu Karen Fimmtudaginn 21. október kl. 11.00 er notaleg sögustund með Höllu Karen. Að þessu sinni er lesið og sungið úr sögunni um Latabæ. Ókeypis er á viðburðinn og allir hjartanlega velkomnir LÁRA BRYNDÍS EGGERTSDÓTTIR, organisti við Neskirkju, leikur valin orgelverk. Kór Keflavíkurkirkju flytur Gloria eftir Vivaldi. ORGÓBER 24. október kl 17.00 www.kef lavikurkirk ja. is vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM Í 40 ár // 11

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.