Víkurfréttir - 20.10.2021, Blaðsíða 4
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Þau Guðrún Lísa Einarsdóttir, Sólborg Guðbrandsdóttir og Arnór Sindri
Sölvason tilheyra hópnum sem er hvað mest á sviðinu. Öll hafa þau mikla
reynslu á sviði, bæði sem leikarar og söngvarar, en eru sammála um að
þessi sýning sé ein sú umfangmesta sem sett hefur verið á svið hjá leik-
félaginu. Við settumst niður með þeim í smá spjall.
Hvað fær ykkur til þess að taka
þátt í uppsetningu með lLK, vit-
andi af þeim gífurlega tíma sem fer
í æfingar og sýningar?
„Það er tvímælalaust félagsskap-
urinn og gleðin. Félagsskapurinn
er frábær, það er ekki hægt að orða
það neitt öðruvísi. Ferlið er langt og
strangt, tekur vissulega á og á köflum
hugsar maður: „Hvers vegna í ósköp-
unum er ég að leggja þetta á mig og
fjölskylduna og það launalaust?“ Á
næstu æfingu þegar maður hittir
leikhópinn þá man maður svarið:„Af
því að þetta er svo skemmtilegt.“ Það
er svo mikil gleði í þessu ferli sem
vegur upp á móti þessu erfiða, öllum
marblettunum eftir dansatriðin,
svitanum eftir dansæfingarnar, fúl-
heitum þegar fólk er ekki sammála,
þreytunni að mæta kvöld eftir kvöld
og æfa og Lísa leggur áherslu sam-
viskubitið yfir því að geta ekki lesið
fyrir dætur sínar á háttatíma. Það
allt eins og það getur tekið mikið
á sálina, einhvernveginn gufar upp
þegar sýningin er tilbúin og fólk er
mætt í hús. Þessi orka, þessi gjaf-
mildi að standa á sviði og gefa
ókunnugu fólki allt sem þú átt innra
með þér og berskjalda þig, það er
bara ekki hægt að lýsa þessu án þess
að hafa verið í þessum sporum. Það
er bara málið. Þú ferð ekki í svona
ferli nema til að fara alla leið og gera
þitt allra besta. Þú getur alveg sett
á þig kisueyru, mjálmað einu sinni
og þóst vera kisa en fólk sér alltaf í
gegnum það. Ef þú ferð í kisubúning,
málar þig og hagar þér eins og kisa,
það er leikhús. Fólkið er komið að
sjá kisuna og söguna hennar en
ekki manneskjuna með kisu-
eyrun sem mjálmaði einu sinni
og reyndi þannig að telja okkur
trú um að hún væri í raun kisa.
Við förum í leikhús til að upp-
lifa töfra.“
Hvernig er leikarahópurinn?
„Dásamlegur. Algjörlega dá-
samlegur. Ólíkt fólk með ólíkar skoð-
anir og hæfileika og á öllum aldri svo
okkur er óhætt að segja að allir hafi
lært eitthvað af öllum. Einstakur og
þéttur hópur sem er duglegur að
gera hluti saman.“
Frumsýning eftir nokkra daga. Er
komin spenna í mannskapinn?
„Já það er komin eftirvænting.
Það er kominn fiðringur sem mun
magnast enn meira á sjálfum frum-
sýningardeginum og mun sennilega
birtast hjá manni í lystarleysi, ein-
beitingarskorti í vinnu, óþolinmæði,
ofvirkni og mikilli gleði en það er
allt partur af programmet.“ Þau eru
sammála um að spennan sé óvenju
mikil núna „Það er öllu tjaldað til og
við erum tilbúin að fá að sýna fólki
þetta show!“
Við hverju má fólk búast sem
mætir á sýninguna?
„Það má búast við tilfinningarús-
síbana með flottum dans- og söngat-
riðum. Sviðsmyndin er ótrúlegar
flott, ljósin mögnuð og krafturinn
rosalegur. Einhverjir eiga örugglega
eftir að rifja upp gamlar minningar
við að heyra lögin, aðrir skapa nýjar
í gegnum áhorfið en flestir munu
hugsa: „Þetta er frábær sýning! Það
þurfa allir að sjá hana!.“
Arnór bætir við: „Þetta er partý
með öllum þeim hæðum og lægðum
sem partýstandi fylgir.“
Hvað er það besta við að taka þátt
í leiksýningu?
„Fyrir utan félagsskapinn og
gleðina við að koma fram þá er
það skólinn sem fylgir því að fara
í gegnum svona langt og strangt
æfingarferli og að setja upp verk.
Það er alltaf hægt að læra eitthvað
nýtt þó maður hafi stigið fæti á þetta
svið áður og það er svo skemmtilegt.
Alltaf eitthvað nýtt að bætast við í
verkfærapokann.“
Spennan magnast
með hverjum
deginum
Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum að
framundan er frumsýning Leikfélags Keflavíkur á
söngleiknum Fyrsti kossinn. Við hjá Víkurfréttum
höfum fylgst með æfingum, tekið viðtöl og verið með
vikulega umfjöllun um sýninguna og afmæli Leik-
félagsins hér í blaðinu og nú er eins og fyrr sagði
komið að frumsýningu. Það er augljóst að það liggur
mikil vinna að baki uppsetningu leiksýningar og enn
meiri þegar um tónlist og dans er að ræða eins og í
þessari sýningu. Það er ekki aðeins fólkið sem sést á
sviðinu sem kemur að sýningum heldur er líka hópur
fólks sem vinnur á bakvið tjöldin og aldrei sést.
Tæknifólk, förðunar- og hárgreiðslufólk, þeir sem
sjá um búningana, ljósmyndarar og fleiri. Leikstjórinn
þarf aðstoðarmanneskju og í þessari sýningu er
Kristín Rán Júlíusdóttir sérleg aðstoðarkona Karls
Ágústs Úlfssonar, leikstjóra. Okkur lék forvitni á að
vita hvert væri hlutverk hennar í þessari sýningu og
hvernig þetta gengur fyrir sig.
Hvað gerir aðstoðarkona leikstjóra?
„Hún í rauninni gerir bara allt sem hún er beðin um.
Ég læt leikhópinn fá æfingaplan og læt vita ef það eru
breytingar á skipulagi. Ég er á handritinu ef leikurum
vantar línur og hleyp í skarðið ef einhvern vantar á æf-
ingu. Það er í rauninni hægt að treysta á mig í næstum
allt, nema kannski sem statista í dansinum og að hella
upp á kaffi.“
Hvernig er að vinna með Kalla?
„Það er bara mjög þægilegt og skemmtilegt. Hann
er yfirvegaður og vinnur í lausnum, sem er mjög gott.
Svo eru sögurnar sem hann hefur að segja alveg hreint
æðislegar og gaman að hlusta á þær. Búið að vera frá-
bært að vinna með honum og maður á alveg pínu eftir
að sakna þess eftir ferlið.“
Er leikhópurinn að standa sig vel?
„Alveg ótrúlega vel. Það er búið að vera æðislegt
að fylgjast með þeim undanfarnar vikur. Er rosalegt
stolt af þeim.“
Geturðu sagt í fáum orðum hvernig ein æfing gengur
fyrir sig?
„Það er alltaf mikil gleði á æfingum. Við förum í
gegnum ákveðin atriði eða tökum rennsli þar sem ég
sit með handritið ef ske kynni að leikarar gleyma línum
eða „kjúum“, sem gerist reyndar alls ekki oft. Milli þess
er mikið fjör og mikið gaman.“
Spenna fyrir frumsýningunni?
„Já, mjög mikil. Hún magnast bara með hverjum
deginum. Þetta verður geðveikt!“
VIÐ FÖRUM
Í LEIKHÚS TIL
að upplifa töfra
Kristín Rán, aðstoðarleikstjóri.
Arnór Sindri.
4 // vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM Í 40 ár