Víkurfréttir - 20.10.2021, Síða 11
Vistbók er verkefni þriggja kvenna úr Grindavík, Rósu Daggar Þorsteinsdóttur,
lýsingarhönnuðar, Svölu Jónsdóttur, innanhúsarkitekts, og Berglindar Ómarsdóttur,
tölvunarfræðings. Nýlega hefur síðan Davíð Halldórsson, rekstrarhagfræðingur úr
Hafnarfirði, komið til liðs við teymið.
Markmið verkefnisins er að hanna
og þróa gagnagrunn og leitarvél sem
gerir notandanum kleift að sækja
upplýsingar um allar umhverfis-
vottaðar byggingarvörur hérlendis
og vera þannig drifkraftur í að flýta
fyrir grænni byggingariðnaði fagaðila
og einstaklinga sem standa í bygg-
ingarframkvæmdum og um leið
tækifæri fyrir þá að skilja eftir sig
græn spor til framtíðar.
Verkefnið hefur fengið
styrki úr Hönnunarsjóði
Frumkvöðlaverkefnið gengur vel að
sögn Rósu Daggar og Svölu. Teymið
hefur fengið styrki frá Hönnunar-
sjóði og núna er verið að vinna í
gagnagrunni leitarvélarinnar, síðan
kemur til með að byggjast ofan
á leitarvélina hugbúnaðarlausn í
formi vefsíðu sem nýtist notendum
og sparar hönnuðum, arkitektum og
verktökum tíma í að setja upp verk-
efni sín og viða að sér umverfisvott-
uðum efnum sem þeir þurfa í verk-
efni sín. Verkefnið er tímafrekt og
flókið, gagnagrunnurinn kemur m.a.
til með að halda utan um uppruna
allra efna, skjöl sem þurfa að fara til
vottunaraðila að sögn Rósu Daggar.
„Við erum að bæta þessa ferla þannig
að ferlið verði auðveldara, einfaldara
og hagkvæmara fyrir þá sem vilja
byggja með þessum hætti,“ bætti
Svala við.
Við erum að vakna
til meðvitundar
Íslendingar eru að verða meðvitaðir
um vistvænan og umhverfisvænan
byggingarmáta að mati Rósu og
Svölu en alltaf má gera betur. „Við
erum á eftir Norðurlöndunum í
umhverfisvottuðum byggingar-
verkefnum. Ríkið hefur þó staðið
sig ágætlega í þessum efnum og má
þar nefna byggingar eins og Veröld
- hús Vigdísar, Skriðuklaustur og
fangelsið á Hólmsheiði eru allar
BREEAM-vottaðar, sem er alþjóð-
legt umhverfisvottunarkerfi. Fyrsta
umhverfisvottaða einbýlishúsið var
síðan byggt í Urriðaholti árið 2017.
Við erum í samstarfi við Byko og
fleiri aðila í þessari þróun og þar sem
þetta er frekar nýtt fyrir flestum
þá erum við öll að læra heilmikið í
þessari vegferð, m.a. áttuðu starfs-
menn Byko sig á að mun stærri hluti
þeirra byggingavöru er þegar með
umhverfisvottun.“
Til mikils að vinna
Hagur þeirra sem vilja byggja og
búa í umhverfisvottuðum bygg-
ingum liggur í bættu heilsufari og
síðan spilla þær ekki umhverfinu –
tvö vottunarkerfi eru aðallega notuð
hér á landi, annars vegar Svansvott-
unin, þar sem meginmarkmiðið er að
draga úr umhverfisáhrifum bygginga
og vernda heilsu þeirra sem koma að
verkinu á framkvæmdartíma sem og
þeirra sem nota bygginguna eftir að
hún er tekin í notkun, hins vegar er
það BREEAM-vottunin, sem leggur
áherslu á að draga úr kolefnisspori
byggingarinnar að sögn Svölu.
„Byggingariðnaðurinn er að losa
meira kolefni en við gerum okkur
grein fyrir í dag, við vitum að hann
er ábyrgur fyrir um 40% losun á
heimsvísu en hérna á Íslandi hefur
þetta ekki verið mælt.“
Þær stöllur sjá mikla viðhorfs-
breytingu og aukna vitundarvakn-
ingu gagnvart heilsubætandi um-
hverfi og þá m.a. í umhverfisvott-
uðum byggingum. „Hafnarfjarðarbær
er meira að segja að gefa afslátt á
lóðarverði þegar um vottaða bygg-
ingu er að ræða.
Við erum núna á fullu að koma
vefnum í loftið og vonandi verðum
klár innan fárra mánaða,“ sögðu
Rósa Dögg og Svala að lokum.
Vistbók
gagnabanki fyrir
umhverfisvottuð
byggingarefni
Jón Hilmarsson
ungo@simnet.is
Störf í boði
hjá Reykjanesbæ
Fræðslusvið - Stapaskóli – Kennari
Umhverfissvið - Verkefnisstjóri skipulagsmála
Fræðslusvið, Háaleitisskóli – Starfsmaður skóla
Fræðslusvið, Háaleitisskóli – Kennari Nýheima,
móttökudeild fyrir börn í leit að alþjóðlegri vernd
Umsóknir í auglýst störf skulu berast
rafrænt gegnum vef Reykjanesbæjar,
Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt
nánari upplýsingar um auglýst störf.
Hægt er að leggja inn almenna umsókn
á sama stað. Þeim er komið til stofnana
sem eru í leit að starfsfólki. Almennar
umsóknir fyrnast að sex mánuðum liðnum.
Viðburðir
í Reykjanesbæ
Foreldramorgun - svefn ungbarna
Fimmtudaginn 21. október kl. 11.00 mætir Arna
Skúladóttir höfundur bókarinnar Draumalandið í Bókasafn
Reykjanesbæjar og fjallar um svefn ungbarna. Arna er
hjúkrunarfræðingur og helsti sérfræðingur landsins
í svefni ungbarna. Hún starfar meðal annars við
svefnráðgjöf á Landsspítalanum. Allir foreldrar hjartanlega
velkomnir og aðgangur er ókeypis.
Notaleg sögustund með Höllu Karen
Fimmtudaginn 21. október kl. 11.00 er notaleg sögustund
með Höllu Karen. Að þessu sinni er lesið og sungið úr
sögunni um Latabæ. Ókeypis er á viðburðinn og allir
hjartanlega velkomnir
LÁRA BRYNDÍS EGGERTSDÓTTIR,
organisti við Neskirkju, leikur valin orgelverk.
Kór Keflavíkurkirkju flytur Gloria eftir Vivaldi.
ORGÓBER
24. október kl 17.00
www.kef lavikurkirk ja. is
vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM Í 40 ár // 11