Fréttablaðið - 18.02.2022, Side 11
n Í dag
Guðmundur Andri
Thorsson
Það besta við Verbúðina er að þar
er engin fjárans morðgáta með
einhverjum fjarstæðukenndum
mótífum mjög ósennilegs morð-
ingja. Með þessari seríu finnst
manni eins og allt í einu hafi verið
ruddir fjallvegir sem legið hafa á
milli höfunda leikins efnis hér á
landi og svo aftur hins raunverulega
þjóðlífs með öllum sínum sögum.
Furðu lengi hefur leikið efni í sjón-
varpi hér einskorðast við byssuhasar
og morðgátur sem eru miklu frekar
sérstök grein alþjóðavæddrar kvik-
myndagerðar en að þær endurspegli
eitthvað sem fólk hefur hugsanlega
almennt upplifað og hvað þá daglegt
líf hér á landi. Þetta var ein ástæðan
fyrir því að svo margt fólk birti
myndir af sér á samfélagsmiðlum
frá þeim árum þegar serían er látin
gerast. Það var ekki til að sýna
fram á að viðkomandi mætti bera
hið sloruga heiðursmerki sem þau
státa af sem unnið hafa í fiski eða
verið á sjó – og ekki bara til að sýna
myndir af sér þegar þau voru ung
og sæt – heldur fyrst og fremst til að
segja: hér er saga sem ég tengist. Fólk
var að tengja sig og líf sitt við þessa
seríu og þá atburði sem þar eru
sýndir, og lúta vissulega lögmálum
skáldskapar. Fólk skynjaði svo sterkt
þessa tengingu. Þetta var eins og að
fá rafstuð í þjóðarsálina.
Smá tuð
Verbúðin var ekki lýtalaus, og
hvernig má annað vera? Sjálfur
saknaði ég meiri alúðar við sjálft
tungutakið, orðfærið, framburðinn,
meiri meðvitundar um það hvernig
tungumálið er þrungið merkingu,
ekki síst hér á landi. Þetta sýndi
undarlegt skeytingarleysi um
tungumálið sem skiptir ekkert
síður máli en gömul merkjavara,
hárgreiðslur og fatnaður. Ekki virð-
ist hafa hvarflað að höfundum að
ómaksins vert gæti verið að reyna
að ná vestfirskum blæbrigðum í
tungutaki, frösum og áherslum, og
láta jafnvel einhverja tala með þeim
framburði sem enn lifir vestra: að
segja ‚langur‘ en ekki ‚lángur‘ eins
og aðrir landsmenn. Mér fannst
meiriháttar handvömm að láta
persónugerving Samherja ekki tala
með þeim grjóthörðu lokhljóðum
sem eru svo stór þáttur af persónu
fyrirmyndarinnar. Raunar minnti
viðkomandi persóna í Verbúðinni
meira á Jón Ásgeir í Bónus (næsta
sería? og Smári blaðamaður allt í
einu orðinn forstjóri og kominn í
einkaþotuliðið?) en Þorstein Má,
sem kann að vera snjallt.
Þorsteinn Már sagðist aðspurður
í viðtölum ekki kannast við þessa
atburði en það má vera honum
umhugsunarmál, að ummæli hans
um að Guggan verði áfram gul og
áfram gerð út frá Ísafirði munu
fylgja honum á meðan nafn hans
verður nefnt í Íslandssögunni, og
engin málaferli breyta því, enginn
auður getur strokað þau út, engar
flugeldasýningar breitt yfir þau –
ekkert mun breyta orðspori hans
nema markviss skref til sáttar
við aðra landsmenn. Og sú sátt
getur ekki snúist um annað en arð
þjóðarinnar af auðlind sinni.
Serían var ekki lýtalaus – og
eflaust má finna sitthvað að plotti
og persónusköpun – en hún var
samt þannig að maður segir loksins
loksins. Leikurinn fannst mér
framúrskarandi, hvort heldur hjá
aukaleikurum eða aðalleikurum,
og ég má til með að nefna sérstak-
Góð færð
lega Nínu Dögg í hlutverki Hörpu.
Sú persóna er heillandi, og afar
sannfærandi hvernig hún breytist
úr skrifstofumanneskju í þá ísköldu
og einmana auðvaldsdrottningu
sem hún er í lokin, knúin af græðgi
og altekin af leiknum sem hún er
svo góð í, þótt hún telji sér trú um
að allt hafi það verið gert til að
halda hjólum atvinnulífsins gang-
andi á staðnum. Svona var þetta.
Fyrirmyndin að Hörpu og þessum
tilteknu atburðum sem keyra hér
söguna áfram er mér vitanlega
engin sérstök – skáldskapur – og
sú sérstæða samtvinnun ástamála,
vináttu, auðs og valda – og atvinnu-
lífs – sem serían hverfist um – var
ekki nákvæmlega svona neins
staðar. En samt er þetta satt. Eins og
góður skáldskapur jafnan er.
Engin morðgáta?
Það besta við Verbúðina er að þar
er engin fjárans morðgáta. Og
samt er þetta morðsaga. Sagan af
því hvernig rétturinn til veiða við
Íslandsstrendur – sjálf lífsbjörgin –
færðist á fárra hendur er líka sagan
af því hvernig eitthvað mikilsvert
í þjóðarsálinni var drepið. Sam-
kenndin, samfélagstilfinningin,
veiðigleði sjómanna og aflakónga
– og hugmyndin um að hver gæti
bjargað sér með því að róa til
fiskjar. Vitundin um sameiginleg
verðmæti þrátt fyrir allt, jöfn tæki-
færi þrátt fyrir allt. Þetta er sagan
um það hvernig gengið var milli
bols og höfuðs á heilu byggðar-
lögunum þegar kvótinn var seldur
burt og eftir stóð heilt samfélag án
lífsbjargar. Þetta er sagan um mestu
eignatilfærslu þjóðarsögunnar.
Þetta er sagan af því hvernig sár
var opnað í samfélagi okkar sem
mun aldrei gróa á meðan núverandi
gjafakvótafyrirkomulag er við lýði.
Skoðanakannanir sýna yfirgnæf-
andi andstöðu þjóðarinnar við
kvótakerfið. Sennilega er réttara
að tala um andstöðu við útfærslu á
kvótakerfinu en það fyrirkomulag
að kvótabinda veiðar við Íslands-
strendur; vafamál er að margir vilji
hverfa aftur til óheftra veiða. Það er
hins vegar ekkert vafamál að þjóðin
mun aldrei sætta sig við annað en
sanngjarnan arð af þessari miklu
auðlind sem hún á. n
Aðalfundur
Sjóvá-Almennra trygginga hf.
11. mars 2022
Drög að dagskrá fundarins eru svohljóðandi:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
2. Endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðastliðið reikningsár
lagðir fram til samþykktar.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á síðast
liðnu reikningsári.
4. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
5. Tillaga um lækkun hlutafjár vegna kaupa á eigin hlutum.
6. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins.
7. Tillögur um breytingar á starfsreglum tilnefningarnefndar.
8. Formaður tilnefningarnefndar gerir grein fyrir störfum
nefndarinnar.
9. Kosning stjórnar félagsins.
10. Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfélags.
11. Kosning nefndarmanna í tilnefningarnefnd.
12. Ákvörðun um þóknun stjórnar félagsins og tilnefningarnefndar.
13. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum.
14. Önnur mál löglega upp borin.
Stjórn Sjóvá hefur ákveðið að aðalfundurinn verði einnig rafrænn,
þ.e. hluthafar geti tekið þátt í fundinum með rafrænum hætti í
gegnum aðalfundakerfi Lumi AGM. Rafræn þátttaka mun því jafn
gilda mætingu á fundinn og veita þátttöku í honum að öðru leyti.
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á að sækja
fundinn, hvort sem þeir ætla að mæta á fundarstað eða fylgjast
með fundinum í vefstreymi, þurfa að skrá sig til að nálgast
aðgangsupplýsingar á vefsvæðinu http://www.lumiconnect.com/
meeting/sjova. Hluthafar eru beðnir um að skrá sig tímanlega
á fundinn og helst eigi síðar en kl. 15:00 þann 10. mars, eða degi
fyrir fundardag, þar sem ekki er hægt að tryggja aðgang að fund
inum berist skráning eftir þann tíma.
Þeir sem skrá sig til fundar með rafrænum hætti fá aðgang að
streymi af fundinum, geta kosið rafrænt og borið upp skriflegar
spurningar. Atkvæðagreiðsla á fundinum mun eingöngu fara fram
í gegnum aðalfundakerfi Lumi AGM. Allir hluthafar, hvort sem þeir
mæta til fundarins á fundarstað eða taka þátt í honum með raf
rænum hætti, eru hvattir til að hlaða niður smáforriti Lumi AGM
í eigin snjalltæki, en jafnframt geta þeir greitt atkvæði í gegnum
vefslóð Lumi AGM á tölvu eða spjaldtölvu. Nánari upplýsingar
um skrán ingu á fundinn og framkvæmd kosninga verða birtar
á vefsvæði félagsins, https://www.sjova.is/adalfundur2022/.
Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir sína
hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð
og skal það dagsett. Umboðum skal skila við skráningu á fundinn
á slóðinni http://www.lumiconnect.com/meeting/sjova.
Hluthafar eiga rétt á að leggja fram mál eða ályktunartillögur
fyrir fundinn ef gerð hefur verið skrifleg eða rafræn krafa um það
eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, þ.e. eigi síðar en kl. 15:00,
þriðjudaginn 1. mars 2022. Hafi hluthafar krafist þess að tiltekið
mál eða ályktun verði tekin fyrir verða endanleg dagskrá og til
lögur uppfærðar á vef félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir
aðalfundinn. Hægt er að senda tillögur, ályktanir eða spurningar
fyrir fundinn á netfangið stjorn@sjova.is. Hluthafar geta einnig
lagt fram spurningar er varða auglýsta dagskrárliði á aðal fund
inum sjálfum.
Tillögur stjórnar um breytingar á samþykktum lúta, í stuttu
máli, að lækkun hlutafjár, orðalagsbreytingu vegna rafrænna
skjalasamskipta við hluthafa og orðalagsbreytingu vegna fundar
boðs aðal fundar varðandi ályktunartillögur og athugasemdir
stjórnar og nefnda félagsins.
Tilnefningarnefnd er að störfum í samræmi við samþykktir fél
ags ins. Hluthafar og aðrir sem óska eftir tilnefningu nefndar innar
til framboðs til stjórnar á aðalfundi hafa átt þess kost að koma
áhuga sínum, og eftir atvikum framboði, á framfæri við nefndina.
Samkvæmt fyrirliggjandi tillögu tilnefningarnefndar gerir hún til
lögu um að þau Björgólfur Jóhannsson, Guðmundur Örn Gunnars
son, Hildur Árnadóttir, Ingi Jóhann Guðmundsson og Ingunn
Agnes Kro verði kjörin til setu sem aðalmenn í stjórn og þau
Erna Gísladóttir og Garðar Gíslason verði kosin sem varamenn.
Frestur til að tilkynna framboð til stjórnar lýkur fimm sólar
hringum fyrir upphaf aðalfundar, þ.e. sunnudaginn 6. mars 2022
kl. 15:00, en vegna eðlis og umfangs starfa tilnefningarnefndar
er ekki tryggt að nefndin geti lagt mat á framboð sem berast
eftir að 10 dagar eru til fundarins, þ.e. eftir kl. 15:00 þriðjudaginn
1. mars 2022. Framboð skulu berast á netfangið tilnefningar
nefnd@sjova.is. Framboðseyðublöð er hægt að nálgast á vefsvæði
félagsins. Breytist tillaga nefndarinnar frá því er fram kemur
í fundarboði þessu verður endurskoðuð tillaga birt eigi síðar en
9. mars 2022. Upplýsingar um alla frambjóð endur verða birtar
á vefsvæðinu https://www.sjova.is/adalfundur2022/ að lágmarki
tveimur dögum fyrir aðalfund.
Endanleg dagskrá aðalfundar og fundargögn, þ. á m. tillögur
stjórnar, sem lögð verða fyrir aðalfund, auk annarra upplýsinga
og eyðublaða í tengslum við aðalfundinn, verða birt á vefsvæði
félagsins, https://www.sjova.is/adalfundur2022/.
Aðalfundur er lögmætur, án tillits til fundarsóknar, ef löglega
er til hans boðað. Aðalfundur og fundargögn verða á íslensku.
Reykjavík, 17. febrúar 2022.
Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf.
Sjóvá 440 2000
sjova.is
Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. boðar
til aðalfundar sem haldinn verður í fundar-
sölum H og I á Hilton Reykjavík Nordica,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, föstudaginn
11. mars 2022 kl. 15:00. Jafnframt verður
gefinn kostur á rafrænni þátttöku á fundinum.
FÖSTUDAGUR 18. febrúar 2022 Skoðun 11Fréttablaðið