Fréttablaðið - 18.02.2022, Page 12

Fréttablaðið - 18.02.2022, Page 12
Öll þekkjum við af eigin nærumhverfi að þekkja fólk sem er að glíma við alls konar hluti. Það er gott að fá að tengja við það og að fá að hlæja að því. Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Björg Aðalsteinsdóttir Holtaseli 35, Reykjavík, lést á Landspítala sunnudaginn 6. febrúar. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 21. febrúar kl. 13. Þorgerður Einarsdóttir Guðbjartur G. Gissurarson Viktoría E. Ragnarsdóttir Jónas V. Bjargmundsson Sigríður Ragnarsdóttir Smári Hólm Kristófersson Ágústa Ragnarsdóttir Þórður Ólafur Traustason Guðbjörg Ó. Ragnarsdóttir Guðmundur Baldvinsson ömmubörn og langömmubörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Guðjón Kristinn Pálsson rafvirkjameistari, Hveragerði, lést mánudaginn 14. febrúar á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði. Útförin fer fram frá Hveragerðiskirkju, þriðjudaginn 22. febrúar klukkan 14. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins fyrir einstaka umönnun og hlýju. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjúkrunarheimilið Ás. Grétar Bjarni Guðjónsson Svava A. Kristjánsdóttir Guðrún Ásta Guðjónsdóttir Tryggvi Marinósson Bryndís Guðjónsdóttir Óskar S. Reykdalsson Páll Kristinn Guðjónsson Auður Ögn Árnadóttir Guðni Guðjónsson Ebba Ólafía Ásgeirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, Sigríðar Nikulásdóttur Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Mörk fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót. Kjartan P. Kjartansson Gerður Harpa Kjartansdóttir Gunnar Sigurðsson Auður Freyja Kjartansdóttir Benedikt Árnason Sólveig Guðfinna Kjartansd. Arnar Már Hrafnkelsson og barnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Auður Antonsdóttir lést á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð Akureyri 10. febrúar. Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir til starfsfólks í Kollugerði fyrir góða umönnun. Anton G. Sigþórsson Noonjeen Sharaphat Valdimar H. Sigþórsson Guðrún Ó. Sæmundsdóttir Þorbjörg A. Sigþórsdóttir Sigurður J. Hafberg ömmu- og langömmubörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Ottos Tulinius vélvirkjameistara, Brekatúni 2, Akureyri. Agnes Tulinius Svavarsdóttir Svavar Tulinius Þórhalla Halldórsdóttir Halla Kristín Tulinius Guðjón Ingvi Geirmundsson Þórey Tulinius Guðmundur A. Sigurðsson Otto Karl Tulinius Sigrún Finnsdóttir Hlynur Tulinius Rósa Hrefna Gísladóttir afa- og langafabörn. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma okkar og langamma, Jóhanna Lárentsínusdóttir frá Stykkishólmi, til heimilis að Skagfirðingabraut 45, Sauðárkróki, lést á hjúkrunardeild HSN á Sauðárkróki 4. febrúar. Minningarathöfn verður í Sauðárkrókskirkju þriðjudaginn 22. febrúar kl. 13. Streymt verður frá athöfninni á: https://www.youtube.com/watch?v=6_UCYnlCWjU Útför fer fram frá Stykkishólmskirkju miðvikudaginn 23. febrúar kl. 13. Streymt verður frá athöfninni á: https://youtu.be/o7pCXZhnyUQ Hægt verður að nálgast streymi á: www.mbl.is/andlat Sigurður Lárus Hólm Jóhanna Bárðardóttir Jóhann Ari Lárusson Alda Stefaníudóttir Friðrik Lárusson Helga Marín Gestsdóttir langömmubörn. Elskulegur sambýlismaður minn, Tryggvi Eiríksson Kjartansgötu 7, lést á heimili sínu miðvikudaginn 9. febrúar. Útförin fer fram frá Háteigs- kirkju, miðvikudaginn 23. febrúar kl. 13. Fyrir hönd aðstandenda, Mildríður Hulda Kay Engar flatkökur á erfidrykkjunni er heiti tilfinningahlaðinnar sýningar þar sem mæðgur takast á við stóru málin í lífinu. arnartomas@frettabladid.is Sýningin Engar flatkökur á erfidrykkj­ unni stendur nú yfir í Tjarnarbíói. Um er að ræða einlægt verk sem byggir á lokaverkefni Sigríðar Eirar Zophoníasar­ dóttur sem útskrifaðist í fyrravor frá sviðslistabraut við Listaháskóla Íslands. „Ég sótti um í náminu með ákveðna rannsóknarspurningu í huga sem var einfaldlega: „Um hvað þurfum við að tala?“ Ótrúlega einföld spurning með einföldu svari!“ segir Sigríður Eir hlæj­ andi. „Í minni listsköpun hef ég alltaf verið að garfa við tilfinningar og sjálfa mig svolítið.“ Sigríður segir að móðir hennar hafi margsinnis í gegnum líf sitt þurft að horfast í augu við dauðann, bæði vegna andlegra og líkamlegra veikinda. „Þá áttaði ég mig á því að það sem ég þarf að tala um er hún,“ útskýrir Sigríður Eir. „Um hana og fólk eins og hana sem er að glíma við sjálft sig.“ Enginn táradalur Á sýningunni hittast mæðgurnar á sviði og skipuleggja jarðarför móðurinnar. Í gegnum það samtal og skipulag fléttast inn samtöl um alls konar hluti sem hafa haft áhrif á hana í gegnum lífið, hvernig dauðinn getur verið nálægur og ýmislegt annað. Þetta hljómar ansi þungt. „Það er málið. Þetta hljómar eins og erfiður sálfræðitími en það hefur ekki verið upplifun fólks sem hlær og hlær á sýningunni,“ segir Sigríður Eir. „Við mamma erum ansi líkar, báðar hressar og léttar týpur og svo fléttast líka mikið af tónlist inn í þetta. Þetta er enginn táradalur þótt fólk hafi gengið út tárvott líka. Fólk fer upp og niður allan tilfinn­ ingaskalann eins og í rússíbana.“ Góðar viðtökur eignar Sigríður Eir einlægri nálgun sýningarinnar. „Þegar maður er að tala um eitthvað sem í er mikill sannleikur og raunveru­ leiki þá tengir fólk við það. Öll þekkjum við af eigin nærumhverfi að þekkja fólk sem er að glíma við alls konar hluti. Það er gott að fá að tengja við það og að fá að hlæja að því.“ Tvær sýningar eru eftir í Tjarnarbíói, önnur á laugardag og hin á sunnudaginn eftir viku og á teikniborðinu er að fara með sýninguna á Akureyri og á Seyðis­ fjörð. „Svo er ég að vinna með næstu sýn­ ingu sem mig langar að gera með bróður mínum,“ segir Sigríður Eir. „Hugmyndin er að gera þetta að trílógíu, eina sýningu með mömmu, eina með bróður mínum og eina með pabba.“ ■ Einlægur tilfinningarússíbani Sigríður Eir útskrifaðist í fyrravor frá sviðslistabraut í Listaháskóla Íslands. Fréttablaðið/Valli TímamóT FréTTablaðið 18. febrúar 2022 FÖSTUDaGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.