Fréttablaðið - 18.02.2022, Qupperneq 12
Öll þekkjum við af eigin
nærumhverfi að þekkja
fólk sem er að glíma við
alls konar hluti. Það er
gott að fá að tengja við
það og að fá að hlæja að
því.
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda
tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Björg Aðalsteinsdóttir
Holtaseli 35, Reykjavík,
lést á Landspítala
sunnudaginn 6. febrúar.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju
mánudaginn 21. febrúar kl. 13.
Þorgerður Einarsdóttir Guðbjartur G. Gissurarson
Viktoría E. Ragnarsdóttir Jónas V. Bjargmundsson
Sigríður Ragnarsdóttir Smári Hólm Kristófersson
Ágústa Ragnarsdóttir Þórður Ólafur Traustason
Guðbjörg Ó. Ragnarsdóttir Guðmundur Baldvinsson
ömmubörn og langömmubörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Guðjón Kristinn Pálsson
rafvirkjameistari, Hveragerði,
lést mánudaginn 14. febrúar
á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Ási í
Hveragerði. Útförin fer fram frá
Hveragerðiskirkju, þriðjudaginn 22. febrúar klukkan
14. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins
fyrir einstaka umönnun og hlýju. Blóm og kransar
vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Hjúkrunarheimilið Ás.
Grétar Bjarni Guðjónsson Svava A. Kristjánsdóttir
Guðrún Ásta Guðjónsdóttir Tryggvi Marinósson
Bryndís Guðjónsdóttir Óskar S. Reykdalsson
Páll Kristinn Guðjónsson Auður Ögn Árnadóttir
Guðni Guðjónsson Ebba Ólafía Ásgeirsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
ástkærrar eiginkonu minnar, móður,
tengdamóður og ömmu,
Sigríðar Nikulásdóttur
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á
hjúkrunarheimilinu Mörk fyrir einstaka
umönnun og hlýtt viðmót.
Kjartan P. Kjartansson
Gerður Harpa Kjartansdóttir Gunnar Sigurðsson
Auður Freyja Kjartansdóttir Benedikt Árnason
Sólveig Guðfinna Kjartansd. Arnar Már Hrafnkelsson
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Auður Antonsdóttir
lést á hjúkrunarheimilinu
Lögmannshlíð Akureyri 10. febrúar.
Útförin mun fara fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir
til starfsfólks í Kollugerði fyrir góða umönnun.
Anton G. Sigþórsson Noonjeen Sharaphat
Valdimar H. Sigþórsson Guðrún Ó. Sæmundsdóttir
Þorbjörg A. Sigþórsdóttir Sigurður J. Hafberg
ömmu- og langömmubörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Ottos Tulinius
vélvirkjameistara,
Brekatúni 2, Akureyri.
Agnes Tulinius Svavarsdóttir
Svavar Tulinius Þórhalla Halldórsdóttir
Halla Kristín Tulinius Guðjón Ingvi Geirmundsson
Þórey Tulinius Guðmundur A. Sigurðsson
Otto Karl Tulinius Sigrún Finnsdóttir
Hlynur Tulinius Rósa Hrefna Gísladóttir
afa- og langafabörn.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir,
amma okkar og langamma,
Jóhanna Lárentsínusdóttir
frá Stykkishólmi,
til heimilis að Skagfirðingabraut 45,
Sauðárkróki,
lést á hjúkrunardeild HSN á Sauðárkróki
4. febrúar. Minningarathöfn verður í
Sauðárkrókskirkju þriðjudaginn 22. febrúar kl. 13.
Streymt verður frá athöfninni á:
https://www.youtube.com/watch?v=6_UCYnlCWjU
Útför fer fram frá Stykkishólmskirkju miðvikudaginn
23. febrúar kl. 13. Streymt verður frá athöfninni á:
https://youtu.be/o7pCXZhnyUQ
Hægt verður að nálgast streymi á: www.mbl.is/andlat
Sigurður Lárus Hólm Jóhanna Bárðardóttir
Jóhann Ari Lárusson Alda Stefaníudóttir
Friðrik Lárusson Helga Marín Gestsdóttir
langömmubörn.
Elskulegur sambýlismaður minn,
Tryggvi Eiríksson
Kjartansgötu 7,
lést á heimili sínu miðvikudaginn
9. febrúar. Útförin fer fram frá Háteigs-
kirkju, miðvikudaginn 23. febrúar kl. 13.
Fyrir hönd aðstandenda,
Mildríður Hulda Kay
Engar flatkökur á erfidrykkjunni
er heiti tilfinningahlaðinnar
sýningar þar sem mæðgur takast
á við stóru málin í lífinu.
arnartomas@frettabladid.is
Sýningin Engar flatkökur á erfidrykkj
unni stendur nú yfir í Tjarnarbíói. Um
er að ræða einlægt verk sem byggir á
lokaverkefni Sigríðar Eirar Zophoníasar
dóttur sem útskrifaðist í fyrravor frá
sviðslistabraut við Listaháskóla Íslands.
„Ég sótti um í náminu með ákveðna
rannsóknarspurningu í huga sem var
einfaldlega: „Um hvað þurfum við að
tala?“ Ótrúlega einföld spurning með
einföldu svari!“ segir Sigríður Eir hlæj
andi. „Í minni listsköpun hef ég alltaf
verið að garfa við tilfinningar og sjálfa
mig svolítið.“
Sigríður segir að móðir hennar hafi
margsinnis í gegnum líf sitt þurft að
horfast í augu við dauðann, bæði vegna
andlegra og líkamlegra veikinda.
„Þá áttaði ég mig á því að það sem ég
þarf að tala um er hún,“ útskýrir Sigríður
Eir. „Um hana og fólk eins og hana sem er
að glíma við sjálft sig.“
Enginn táradalur
Á sýningunni hittast mæðgurnar á sviði
og skipuleggja jarðarför móðurinnar. Í
gegnum það samtal og skipulag fléttast
inn samtöl um alls konar hluti sem hafa
haft áhrif á hana í gegnum lífið, hvernig
dauðinn getur verið nálægur og ýmislegt
annað.
Þetta hljómar ansi þungt.
„Það er málið. Þetta hljómar eins og
erfiður sálfræðitími en það hefur ekki
verið upplifun fólks sem hlær og hlær
á sýningunni,“ segir Sigríður Eir. „Við
mamma erum ansi líkar, báðar hressar
og léttar týpur og svo fléttast líka mikið
af tónlist inn í þetta. Þetta er enginn
táradalur þótt fólk hafi gengið út tárvott
líka. Fólk fer upp og niður allan tilfinn
ingaskalann eins og í rússíbana.“
Góðar viðtökur eignar Sigríður Eir
einlægri nálgun sýningarinnar.
„Þegar maður er að tala um eitthvað
sem í er mikill sannleikur og raunveru
leiki þá tengir fólk við það. Öll þekkjum
við af eigin nærumhverfi að þekkja fólk
sem er að glíma við alls konar hluti. Það
er gott að fá að tengja við það og að fá að
hlæja að því.“
Tvær sýningar eru eftir í Tjarnarbíói,
önnur á laugardag og hin á sunnudaginn
eftir viku og á teikniborðinu er að fara
með sýninguna á Akureyri og á Seyðis
fjörð.
„Svo er ég að vinna með næstu sýn
ingu sem mig langar að gera með bróður
mínum,“ segir Sigríður Eir. „Hugmyndin
er að gera þetta að trílógíu, eina sýningu
með mömmu, eina með bróður mínum
og eina með pabba.“ ■
Einlægur tilfinningarússíbani
Sigríður Eir útskrifaðist í fyrravor frá sviðslistabraut í Listaháskóla Íslands. Fréttablaðið/Valli
TímamóT FréTTablaðið 18. febrúar 2022 FÖSTUDaGUR