Fréttablaðið - 18.02.2022, Qupperneq 33
Útlit er fyrir að nýting
á hótelherbergjum í
febrúar verði 70 pró-
sent en ekki undir 50
prósentum eins og
áætlað var.
3 4 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F Ö S T U D A G U R 1 8 . F E B R Ú A R 2 0 2 2
Mismunandi
móðurhlutverk
Vísindi á
mannamáli
Lífið ➤ 36 Lífið ➤ 38
Útlit er fyrir að fjöldi erlendra
ferðalanga hér á landi í ár nái
um sjötíu prósentum af því
sem hann var 2019, en þegar
ber á miklu meiri önnum á
hótelum en áætlanir gerðu
ráð fyrir.
ser@frettabladid.is
FERÐAÞJÓNUSTA Nýting á hótelher
bergjum á fyrstu mánuðum ársins
hér á landi er mun meiri en útlit var
fyrir undir lok síðasta árs. Áætlað
var að hún yrði undir 50 prósentum
nú í febrúar, en reyndin er allt önnur
og betri, upp undir 70 prósent.
„Það hefur orðið ótrúlega skörp
aukning á skammtímabókunum,“
segir Jóhannes Þór Skúlason,
framkvæmdastjóri Samtaka ferða
þjónustunnar, og metur það svo að
yfirstandandi mánuður verði „stór
góður miðað við aðstæður“.
Undir það tekur Kristófer Oli
vers son, formaður FHG, félags fyrir
tækja í hótel og gistiþjónustu, en
ekki sé saman að jafna frá febrúar á
síðasta ári „þegar nýtingin mældist
varla“.
Jóhannes segir að nýjustu aflétt
ingar á ferðatakmörkunum skipti
sköpum fyrir f jörkipp í ferða
þjónustunni, uppsöfnuð ferðaþörf
fólks sem ætlaði sér hingað til lands
í desember, en varð frá að hverfa
vegna aðstæðna, sé nú að skila sér
til landsins.
Bókunarstaða hótelanna fyrir
sumarmánuði er einnig að batna,
sérstaklega seinni hluta sumars
og fram á haust. Bæði Jóhannes og
Kristófer vonast til að annasömustu
mánuðirnir dragi til sín um 70 pró
sent af ferðamannafjöldanum 2019
– og hingað komi upp undir 600 þús
und manns frá júlí og fram í septem
ber, sem er á pari við allt árið í fyrra.
Þeir ítreka báðir að áskoranir
greinarinnar séu miklar og felist í
manneklu, húsnæðisskorti og fyrir
sjáanlegur sé líka hörgull hjá bíla
leigum. „Menn eru ekki búnir að
jafna sig eftir tveggja ára tekjufall,“
bendir Kristófer á.
„Fjárhagsgreining Ferðamála
stofu sýnir,“ segir Jóhannes, „að eig
infjárstaðan getur hæglega þurrkast
upp á næstu tveimur árum þegar
allur kostnaður fer aftur af stað.“ ■
Ferðabókanir að utan hafa rokið upp
Súkkulaðipáskaegg
MJÓLKURSÚKKULAÐI
Notaðu þetta frábæra tækifæri og fáðu þér vel útbúinn fjórhjóladrifinn Eclipse Cross
PHEV tengiltvinnbíl með öllum þeim kostum sem hugurinn girnist – og meira til.
Virðisaukinn er farinn út í bláinn!
Við fellum niður 480.000 kr. VSK frá áramótum!*
*Að sjálfsögðu greiðir Hekla öll gjöld og virðisaukaskatt af bílum til Ríkissjóðs. 480.000 kr. lækkunin á Mitsubishi Eclipse Cross er alfarið á kostnað Heklu.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · mitsubishi.is/eclipse
HEILBRIGÐISMÁL „Mér finnst að
trans fólk almennt hafi alltaf verið
svolítið vanræktur hópur í heil
brigðiskerfinu,“ segir Ugla Stefanía
Kristjönudóttir Jónsdóttir, for
maður Trans Íslands.
Langur biðtími eftir kynleiðrétt
ingaraðgerð getur reynst hættuleg
ur þeim sem bíða slíkrar aðgerðar.
Heilbrigðisráðherra segir unnið að
því að stytta biðtímann. SJÁ SÍÐU 8
Trans fólk bíður í
heilbrigðiskerfinu
Færðin í Reykjavík undanfarna daga hefur gert borgarbúum kleift að æfa sig í hefðbundnum vetrarakstri með nægum snjó fyrir alla og gott betur eins og í götunni Miðhúsum í Grafarvogi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ugla Stefanía
Kristjönudóttir
Jónsdóttir,
formaður Trans
Íslands