Fréttablaðið - 18.02.2022, Page 36
FRÉTTAVAKTIN
kl. 18.30 á virkum dögum
Fréttavaktin er fjölbreytt frétta-umfjöllun í opinni
dagskrá fyrir fólkið í landinu. Úrvalslið fjölmiðlafólks
fer yfir fréttayfirlit dagsins ásamt því að fá til sín
góða gesti að ræða helstu mál líðandi stundar.
Þátturinn er sýndur á Hringbraut og frettabladid.is
Á rúmu einu prósenti
íslenskra heimila er stopult
eða jafnvel ekkert farsíma-
samband. Þetta er einkum
vandamál á sveitabæjum
en dæmi eru um að farnets-
samband náist ekki á höfuð-
borgarsvæðinu.
kristinnhaukur@frettablad.is
FJARSKIPTI Enn eru heimili á Íslandi
þar sem ekkert farsímasamband
næst og á 1,2 prósentum þeirra
næst aðeins slitrótt samband. Þetta
er ekki aðeins óhagræði fyrir íbúana
heldur einnig öryggisatriði því ekki
er tryggt að þeir geti hringt í Neyðar-
línuna ef eitthvað kemur upp á.
Samkvæmt spá Fjarskiptastofu ná
um 95 prósent lögheimila á Íslandi
góðu sambandi frá öllum fjarskipta-
fyrirtækjum og 98,7 prósent frá að
minnsta kosti einu. Þetta er mjög
hátt hlutfall en engu að síður mikil
lífskjaraskerðing fyrir þá sem búa
við slæmt eða ekkert samband.
Fjarskiptastofa mun framkvæma
mælingar á komandi misserum til
að staðreyna niðurstöðurnar. Ef
tölurnar eru færðar beint yfir á íbúa-
fjöldann má gera ráð fyrir að 4.500
manns búi við stopult farsímasam-
band og 375 við ekkert.
Flest tilfellin eru á landsbyggðinni
og hafa Fjarskiptastofu til dæmis
borist kvartanir frá Dalabyggð.
Þá hefur Samband sveitarfélaga á
Norðurlandi vestra gert könnun á
sveitabæjum fjórðungsins þar sem
kom fram að stopult samband væri
á þriðjungi sveitabæja.
Þorleifur Jónasson, sviðsstjóri
fjarskiptainnviða hjá Fjarskipta-
stofu, segir ekkert eitt svæði á
landinu verra en annað hvað þetta
varðar. Algengara sé að þetta sé í
dreifbýlinu en dæmi séu um staði á
höfuðborgarsvæðinu þar sem ekki
er tryggt farnetssamband alls staðar
innanhúss.
Ísland er stórt og landslagið getur
skapað erfiðleika fyrir fjarskipti.
Þá eru byggingar af ýmsum toga
og húsaklæðningar, einangrun og
veggirnir sjálfir geta haft áhrif á fjar-
skiptamerki. Nýir staðlar um ein-
angrun glers draga úr drægi merkja
og loftnet eru mjög mismunandi.
„Til þess að tryggja gott farsíma-
samband fyrir alla landsmenn þarf
að þétta sendakerfi fjarskiptafélag-
anna enn frekar,“ segir Þorleifur um
hvað þarf til að tryggja farsímasam-
band á heimilum allra landsmanna.
„Fjarskiptastofa telur að það sé vel
fært með samstilltu átaki og sam-
starfi með frekari uppbyggingu á
nýjum tæknilausnum sem eru í far-
vatninu,“ segir hann.
Vel hafi tekist með uppbyggingu
ljósleiðarakerfisins á landsbyggð-
inni undanfarin ár sem skapi aukin
tækifæri til að nýta nýja tækni.
Fjarskiptastofa horfi til lausna sem
hægt væri að innleiða á næstu miss-
erum, það er að tengja farnetssam-
band og þráðlaus staðarnet (Wi-Fi)
innanhúss þannig að talsamband
haldist án þess að slitna á milli.
„Þetta gæti mögulega verið lausnin
á lélegu innanhússsambandi sem
margir glíma við í dag,“ segir Þor-
leifur.
Fjarskiptastofa birti á þriðju-
dag tímaáætlun um útfösun eldri
farsímatækni, 2G og 3G. Þorleifur
segir það lið í því að flýta uppbygg-
ingu 4G og 5G um land allt. Ýmis
úrræði séu í drögum að nýjum fjar-
skiptalögum sem veiti stofnuninni
verkfæri til að hraða uppbyggingu
innviðanna. Stjórnvöld stefna að
því að frumvarpið verði að lögum á
yfirstandandi þingi. ■
Þúsundir Íslendinga búa við stopult
eða ekkert farsímasamband heima
Í Dalabyggð
hefur borið á
slæmu farsíma-
sambandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/
PJETUR
Til þess að tryggja gott
farsímasamband fyrir
alla landsmenn þarf að
þétta sendakerfi fjar-
skiptafélaganna enn
frekar.
Þorleifur
Jónasson,
sviðsstjóri hjá
Fjarskiptastofu
mhj@frettabladid.is
FERÐALÖG Brynjar Helgi Ásgeirsson,
forstöðumaður Hlíðarfjalls, býst
við fjölmenni í fjallinu um helgina
vegna vetrarfrís í grunnskólum
landsins.
„Ég geri ráð fyrir því að það verði
stappað hjá okkur eins og alltaf í
skólafríinu,“ segir Brynjar. „Ekki
bara um helgina heldur allan þenn-
an tíma sem skólafríin eru, frá 17. til
26.,“ bætir hann við.
Brynjar segir skólafríshelgina
alltaf með stærri skíðahelgum árs-
ins ásamt páskunum og býst hann
við að allir starfsmenn Hlíðarfjalls
verði kallaðir út.
„Núna eru líka engar takmark-
anir og við megum vera með eins
marga og við getum,“ segir Brynjar
og bætir við að veðurspáin sé stórfín
alla helgina.
„Það á að vera ofankoma, fínt
frost og stilla. Þannig að við getum
ekki beðið um betra veður.“ ■
Búast við fjölmenni í Hlíðarfjalli í vetrarfríinu
Á hraðri niðurleið á Akureyri. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
gar@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Maður sem vildi fá
afrit af tilkynningu Vatnajökuls-
þjóðgarðs til lögreglu um akstur
utan vega fær ekki afrit af tilkynn-
ingunni eins og hann óskaði eftir.
Maðurinn kærði þjóðgarðinn til
úrskurðarnefndar um upplýsinga-
mál. Þjóðgarðurinn sagði fyrir
nefndinni að þegar þjóðgarðs-
vörður tilkynni um brot til lögreglu
gildi almennar reglur laga um með-
ferð sakamála og sé málið þannig á
forræði lögreglunnar. Úrskurðar-
nefndin vísaði kæru mannsins frá
nefndinni á þessum grunni. Ekki
kemur fram hvort maðurinn tengd-
ist umræddum utanvegaakstri. ■
Fær ekki gögn um
utanvegaakstur
Utanvegaakstur í Vonarskarði var
tilkynntur til lögreglu.
kristinnhaukur@frettabladid.is
VESTFIRÐIR Bæjarstjórn Ísafjarðar-
bæjar hefur heimilað Svisslendingi
að nafni Daniel Freuler að setja upp
auglýsingaskilti á þremur stöðum
í bænum fyrir djasshátíð í ágúst.
Athygli vekur að hátíðin fer fram
í borginni Genf, sem er í rúmlega
2.800 kílómetra fjarlægð frá Ísafirði.
Í umsókn segist Freuler vilja búa
til hlekk á milli staðanna tveggja
og sjálfur dvelji hann á Ísafirði um
stund. Skiltin verða á Silfurtorgi, við
höfnina og við Skutulsfjarðarbraut.
Hátíðin heitir Jazz sur la plage og
var fyrst haldin árið 2014. Undan-
farin tvö ár hefur hún verið í dvala
vegna faraldursins en hefur verið
endurvakin. Vafalítið munu Ísfirð-
ingar láta sjá sig. ■
Djasshátíð í Genf
auglýst á Ísafirði
Eitt af skiltunum væntanlegu.
MYND/ÍSAFJARÐARBÆR
4 Fréttir 18. febrúar 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ