Fréttablaðið - 18.02.2022, Side 46
„Mín fyrsta minning um drauga
gang er frá því ég var sjö ára gömul.
Þá sá ég svartklæddan mann fyrir
utan svefnherbergishurðina mína,
gangandi fram og til baka. Mér
þótti hann óhuggulegur og sagði
mömmu frá. Mamma, sem er líka
skyggn, trúði mér og það varð til
þess að ég þróaði ekki með mér
hræðslu við verurnar sem ég sá.
Ég gat alltaf farið til mömmu og
talað við hana; það gaf mér styrk
og öryggi. Mamma kenndi mér
líka margt og kynnti mig fyrir fólki
sem gat hjálpað mér að læra betur
á þessa hæfileika, en svartklæddi
maðurinn fylgdi mér í mörg ár.“
Þetta segir Katrín Bjarkadóttir
sem fæddist með sjötta skilningar
vitið opið. Katrín heldur úti
Drauga sögum, vinsælu hlaðvarpi, í
félagi við Stefán John Stefánsson.
„Sem par upplifðum við fyrst
draugagang þegar við vorum á
alræmdu hótelherbergi í Seattle.
Herbergið er annálað fyrir reim
leika og hurðir opnuðust um nótt
ina, en af því náðum við vídeói.
Við heyrðum líka greinilega fiktað
í glösum í stofunni, þótt enginn
væri þar inni.“
Draugar eru sannarlega til
Áhugi Katrínar og Stefáns Johns á
draugasögum er sprottinn af for
vitni um það hvað gerist þegar tími
mannfólksins er liðinn hér á jörðu.
„Það eina sem við eigum öll
sameiginlegt, og vitum fyrir víst,
er að lífið tekur einhvern tímann
enda. Það er óhjákvæmilegt. Það
er hins vegar óþarfi að óttast eitt
hvað sem er þegar skrifað í skýin.
Framhaldslífið er forvitnilegt,
áhugavert og jú, líka spennandi, en
skemmtilegast er þó að lifa í núinu,
í þessu jarðlífi og gera okkar besta
á meðan við erum hér. Hitt kemur
svo bara í ljós, en með framúr
skarandi tækni og hæfileikum ein
staklinga er engu að síður áhuga
vert að gægjast aðeins yfir og kíkja,
úr því við getum það,“ segir Katrín.
Þau trúa bæði á drauga og segjast
hafa óyggjandi sannanir fyrir til
vist þeirra.
„Já, og öll okkar sönnunargögn
eru aðgengileg á patreon.com/
draugasogur,“ segir Stefán, en brátt
verða einhver þeirra sýnd á sjón
varpsskjáum landsmanna.
„Auðvitað höfum við oft séð
drauga og sýnt fólki sannanir þess í
rúm tvö ár,“ segir Katrín sem hefur
séð framliðna frá barnsaldri og
þekkir ekki annað.
„Það vakti mig prestur á Minja
safninu á Akureyri, þegar við
rannsökuðum það, en það var
auðvitað enginn lifandi prestur á
staðnum,“ segir Stefán John. „Síðan
þá hefur þetta aukist hjá mér, en
það er víst bara eitthvað sem fylgir
starfinu.“
Who you gonna call?
Liðin eru tæp tvö ár síðan Katrín
og Stefán byrjuðu með Drauga
sögur Podcast og í fyrrahaust fóru
þau í loftið með hlaðvarpið Sannar
íslenskar draugasögur.
„Þar fáum við aðsendar sögur
frá Íslendingum úr öllum stéttum
þjóðfélagsins, sem hafa orðið vitni
að eða fyrir aðkasti vegna drauga
gangs,“ upplýsir Stefán.
„Ef fólk hefur gaman af sann
sögulegum hryllingsmyndum,
þá ætti það að prófa að hlusta á
Draugasögur, því upplifunin er
svipuð. Hlustendur verða raun
verulega hræddir, og sumir þora
aldrei að hlusta einir, á meðan
aðrir hafa viðurkennt að sofa með
ljósin kveikt eftir að hafa hlustað.“
Þau segjast fyrst og fremst vera
„podcastarar“ og nú sjónvarps
þáttastjórnendur því í mars verða
Draugasögur þeirra sýndar á sjón
varpsstöðinni Hringbraut.
„Við höfum stundum verið
kölluð „hinir íslensku drauga
banar“ og fólk leitar til okkar sem
síðasta úrræðis þar sem er reimt.
Það er samt ekkert númer sem
fólk getur hringt í þegar óút
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg
@frettabladid.is
Stefán og Katrín með dúkkuna djöfullegu The Baby sem þau fengu frá þeim þekkta rannsakanda og sjónvarpsþátta-
stjórnanda Dave Schrader. Hún er nú í eigu Katrínar og Stefáns og vandlega geymd á öruggum og ótilgreindum stað.
skýrður umgangur er allar nætur
eða öndum bregður fyrir í tíma og
ótíma, fólki til mikils ama og ótta;
svona til að vitna í fræga bíómynd:
„Who you gonna call?“,“ segir
Katrín og kímir.
Stefán upplýsir um tæki og tól
„draugabananna“.
„Í vopnabúrinu erum við vita
skuld með Katrínu sem er gædd
sjón sem aðeins þeir sem hafa slíka
geta fyllilega skilið og tengt við, en
af tækjabúnaði höfum við einungis
viðurkennd tól frá þeim frægustu
og virtustu í heiminum í dag. Þar
ber helst að nefna sérstök hljóð
upptökutæki, útvarpsbylgjunema,
rafsegulmæla, hitanema, hreyfi
skynjara og ljósabúnað, allt frá
innrauðum yfir í útfjólublá, og svo
„sensored light“myndavél sem
okkar fólk er hvað allra spennast
fyrir, og auk þess ótal önnur tæki.“
Hefur stundum brugðið illa
Þótt Katrín og Stefán geri sér ferðir
til draugarannsókna í kirkjugarða,
þekkt hryllingshús og draugalega
staði, eru þau hvergi bangin.
„Einn reyndasti miðill landsins
sagði okkur bæði hreinlega skorta
alla hræðslu. Við verðum eðlilega
öll hrædd við það sem við skiljum
ekki, en málið er að þeir fram
liðnu eru oftast hræddari við hina
lifandi en við við þá. Það er margt
fleira í heiminum sem maður ætti
frekar að óttast, til dæmis að segja
já við börnin þegar konan er búin
að segja nei. Eða skafa bílinn á
morgnana. Það lætur þá hraustu
líka stundum skjálfa svolítið,“
glensar Stefán.
Katrín segist sammála.
„Við verðum ekki hrædd en
okkur getum samt brugðið illa og
það hefur alveg gerst. Það er samt
oftast þegar einhver lifandi kemur
og bankar á dyrnar í miðri rann
sókn, eða þegar köttur stekkur á
okkur á dimmum göngum. Það
hefur gerst.“
Þeirra skuggalegasta reynsla af
draugagangi var þegar þau fóru í
annað sinn til draugarannsókna í
Hvítárnesskála á Kili.
„Þá sá ég einhvern á vélinni
okkar og eftir erfiða rannsókn
missti ég skyndilega alla hreyfi
getu í fótunum á leið upp stigann
í skálanum. Fleiri líkamleg merki
geta gert manni erfitt fyrir að
halda uppi vörnum og þá er best
að fara aðeins út til að ná upp
styrk og fara svo aftur inn og klára
rannsóknina,“ segir Stefán, en
þetta tiltekna atvik og ótrúlega
sönnunargagn er hægt að sjá í lítilli
heimildarmynd á ofangreindri vef
síðu þeirra Katrínar.
Draugar oftast meinlausir
Katrín segir reimt á Íslandi eins og
annars staðar í heiminum.
„Hótel og spítalar koma þar
sterkt inn, enda mannmargir
staðir þar sem miklar og sterkar
tilfinningar liggja í loftinu og alls
konar orka kemur og fer alla daga
sem nætur. Mestur draugagangur
er þó oftast hjá venjulegu fólki í
venjulegum heimahúsum.“
Stefán segir óþarfa að hræðast
þá framliðnu.
„Í langflestum tilfellum eru
draugar meinlausir og best að láta
lítið bera á hræðslu því óttinn
gefur þeim vald yfir þér. Þó eru til
neikvæðar og dekkri verur sem
vissulega ber að varast og þær geta
dulbúið sig á ýmsan hátt þannig
að fólk veit ekki almennilega hvað
það er að díla við. Það þarf ekki
beinlínis að hræðast slíkar verur
en það er vissara að hafa varann á.“
Sjálf segjast þau ekki enn hafa
orðið fyrir ofsóknum drauga.
„Við höfum ekki enn verið ofsótt
en það hvimleiðasta við starfið er
þegar einhver fylgir manni heim
úr rannsóknum. Sem betur fer
er þetta vinnan okkar og líklega
enginn betur í stakk búinn til að
tækla það í hvelli. Við erum vel
varin, með þétt og gott bakland
og tengslanet, með traustverðum
miðlum og prestum,“ segir Stefán.
En hafa þau eignast draugavin
sem hjálpar til og mildar málin?
„Nei, en við eigum okkar
verndara,“ svarar Katrín.
Ekki verða allir draugar
Drauga, trölla og álfatrú hefur frá
landnámi verið hluti af menn
ingararfi Íslendinga.
En hvað er það sem draugar
vilja? Hvers vegna hvíla hinir látnu
ekki í friði? Því svarar Katrín.
„Það verða ekki allir draugar.
Flest okkar fara í það sem margir
kalla „ljósið“ eða upp til himna.
Svo eru það þeir sem láta lífið
snögglega, af slysförum eða eru
jafnvel myrtir. Langflestir fara í
ljósið en sumir eru ekki sáttir við
eigin örlög. Telja sig eiga sitthvað
óuppgert, vilja laga eða bæta eitt
hvað. Eða hreinlega neita að fara.
Slíkar sálir gætu þurft leiðsögn.“
Stefán segir suma drauga verri
en aðra.
„Verstu draugarnir eru þeir
sem hrella börn og beita ofbeldi.
Þá verðum við svolítið brjáluð
og setjum fótinn niður. Fast. Við
höfum þurft að taka á nokkrum
svoleiðis málum hér heima. Svo
eru það þessi neikvæðu og illu
öfl: þeir sem aldrei voru lifandi og
gengu um á jörðinni.“
Bannað að fikta
Katrín og Stefán horfa oft og iðu
lega á hrollvekjur og draugabíó
myndir.
„En í mörgum tilfellum höfum
við gengið út í miðri mynd, þegar
við sjáum hvert stefnir. Flestar eru
stórlega ýktar, auðvitað Holly
woodvæddar fyrir hinn almenna
áhorfanda og því oftast fjarri
sannleikanum. Ein sem kemst
nálægt veruleikanum fjallar um
mál Warrenhjónanna, sem við
erum stundum kennd við. Þessar
myndir eru betur þekktar sem
Conjuringkvikmyndirnar enda
byggðar á málum og rannsóknum
þeirra. Þær voru skrifaðar með
athugasemdum Warrenhjónanna
og fjölskyldna sem áttu hlut að
máli hverju sinni. En sem fyrr, jú,
líka mjög ýktar,“ segir Stefán.
Seinna á árinu eru þau Katrín
einmitt á leið til rannsókna í hinu
raunverulega Conjuringhúsi.
„Við erum líka í reglulegu sam
bandi við Tony Spera, tengdason
Warrenhjónanna, sem á hina einu
sönnu Annabelledúkku.“
Þau gera sér grein fyrir að með
starfi sínu hafi þau lagt leiðina
fyrir komandi kynslóðir í rann
sóknum á hinu yfirskilvitlega.
„En við ráðum fólki alfarið frá
því. Í f lestum tilfellum er um ræða
unga krakka og aðra spennu
fíkla sem vilja ögra sjálfum sér og
vinum til skemmtunar. Þetta er
hins vegar enginn leikur og þeir
sem vita ekki 100 prósent hvað
þeir eru að díla við ættu að láta
kyrrt liggja.“
Draugar í sjónvarpinu
Í mars hefur göngu sína sjónvarps
þátturinn Draugasögur í opinni
dagskrá á Hringbraut.
„Þar heimsækjum við íslenska
staði sem eru þekktir fyrir reim
leika og deilum með áhorfendum
sönnunum sem við höfum náð í
rannsóknum okkar í gegnum árin,
ásamt því að fá til okkar drauga
lega gesti,“ upplýsir Katrín, en þeir
sem vilja taka forskot á sæluna geta
kíkt á fyrri rannsóknir og sönnun
argögn þeirra Katrínar og Stefáns á
áskriftarsíðu þeirra: patreon.com/
draugasogur.
Þátturinn er ekki við hæfi barna
yngri en 13 ára, nema með leyfi
forráðamanna.
„Það getur líka alveg gerst að fólk
læknist af myrkfælni og drauga
hræðslu með því að fylgjast með.
Það er svo auðvelt að hræðast það
sem maður skilur ekki, en um leið
og maður kynnist og lærir aðeins á
andaheiminn getur draugahræðsl
an mögulega minnkað. Við eigum
í ákaflega góðu sambandi við
áskrifendur og erum orðin hálfgert
draugasamfélag,“ segir Katrín.
Boðið er upp á þrjár áskriftar
leiðir: Draugasögur Aðdáandi,
Draugasögur Ættin og Drauga
sögur Kynslóðin.
„Í Kynslóðinni færðu allt okkar
efni; mánudagsmínísögur,
draugasögur í fullri lengd alla
miðvikudaga, plús einn spjallþátt
í mánuði. Þú færð aðgang að við
tölum við þekktustu og virtustu
paranormalrannsakendur heims
og tækifæri til að taka þátt í rann
sókn með okkur live,“ útskýrir
Stefán. n
Hægt er að hlusta á Drauga-
sögur Podcast og Sannar Íslenskar
Draugasögur á öllum helstu hlað-
varpsveitum, og skoða myndir
með þáttunum á draugasogur.
com og á Facebook og Instagram
@Draugasogurpodcast.
Það hvim-
leiðasta
við starfið
er þegar
einhver
fylgir
manni
heim úr
drauga-
rann-
sóknum.
Stefán John
Fram-
haldslífið
er forvitni-
legt, áhuga-
vert og jú,
líka spenn-
andi, en
skemmti-
legast er að
lifa í
núinu, í
þessu
jarðlífi og
gera okkar
besta á
meðan við
erum hér.
Katrín
2 kynningarblað A L LT 18. febrúar 2022 FÖSTUDAGUR