Fréttablaðið - 18.02.2022, Blaðsíða 51
Þegar flotið er og
þyngdaraflinu
sleppir frelsast þeir
hlutar líkamans sem
bera uppi þunga okkar
dagsdaglega.
Unnur Valdís er konan á bak við Flothettu, sem hefur
vakið athygli um heim allan. Flothetta sprettur upp úr
einstakri sundmenningu Íslands og þykir einstaklega
íslensk hönnun. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Flotmeðferðirnar hafa róandi áhrif á líkama og sál og eru framkvæmdar af nuddurum Bláa
Lónsins sem hafa hlotið viðeigandi menntun. MYND/BLÁA LÓNIÐ
Sú tilfinning að fljóta um þyngdarlaus í hlýjum jarðsjónum og slíkri náttúrufegurð sem lónið hefur upp á að bjóða er
engri lík á heimsvísu. MYND/BLÁA LÓNIÐ
Bláa Lónið býður nú upp
á einstakar flotmeðferðir
þar sem sameinast óvið-
jafnanleg kyrrð og íslenskt
hugvit á einum fallegasta
stað veraldar. Það jafnast
ekkert á við það að fljóta um
í fullkomnu þyngdarleysi í
hlýju kísilríku vatninu mitt í
hraunbreiðunni.
Flotmeðferðirnar í Bláa Lóninu
eru þrenns konar. Um er að ræða
einstaklingsflot, paraflot og hópa
flot. Flotbúnaður Flothettu sér um
að halda þátttakendum á floti á
meðan meðferðaraðili veitir mjúka
meðhöndlun og nudd í heilandi
jarðsjónum.
Íslensk hönnun og hugvit
Flothetta er íslensk hönnun og
hugvit Unnar Valdísar Kristjáns
dóttur, hönnuðar, jóga og vatns
meðferðaraðila. „Flothettan varð
til árið 2011 á meðan ég var við
nám í Listaháskóla Íslands,“ segir
Unnur.
Flothetta býður upp á flothettur
ásamt ýmsum öðrum flotbúnaði
sem er hannaður til að veita
líkamanum fullkominn flot
stuðning í vatni og hjálpa fólki að
fljóta í algeru þyngdarleysi. „Þegar
flotið er og þyngdaraflinu sleppir
frelsast þeir hlutar líkamans sem
bera uppi þunga okkar dagsdag
lega. Rannsóknir sýna að flot er
einstaklega róandi og við það eitt
að sleppa tökunum og leyfa sér að
fljóta eiga ákveðin efnaskipti sér
stað. Streituvaldandi hormón, líkt
og adrenalín og kortisól, víkja fyrir
vellíðunarhormónunum endorfíni
og beta endorfíni sem er verkja
stillandi.
Þetta góða slökunar og vel
líðunarástand gerir okkur kleift
að losa um andlega og tilfinninga
lega streitu og skapa samhljóm og
tengingu á milli líkama og anda.
Þarna samtvinnast í raun áhugi
minn á hönnun og að vinna með
heita vatnið til heilsueflingar,
slökunar og í lækningaskyni,“ segir
Unnur.
Flotþerapíunám
„Með auknum vinsældum flotsins
hefur orðið til þörf á að þjálfa og
mennta fólk í að halda utan um
flot af ábyrgð og þekkingu,“ segir
Unnur. „Flotþerapíuþjálfunarpró
grammið er þriggja stiga nám sem
ég hef þróað í samstarfi við félaga
minn Omer Shenar, sem er afar
reynslumikill vatnsmeðferðaraðili
frá Ísrael. Í f lotþerapíunáminu
er kennd tækni í líkamsmiðaðri
vatnsmeðferðarvinnu og aðferðir
sem gera fólk hæft til að leiða aðra
inn í ástand djúpslökunar í vatni.
Þátttakendur í náminu öðlast
skilning á vísindum og heilsufars
legum ávinningi vatnsslökunar
og læra að vinna með ólíkar þarfir
fólks.“
Nuddarar Bláa Lónsins sem
farið hafa í gegnum þjálfunarpró
grammið Flotþerapíu sjá um flot
meðferðir í Bláa Lóninu. „Þetta er
djúpt og heilandi ferðalag þar sem
gestir eru leiddir af mýkt og öryggi
inn í kyrrð og eftirgjöf þyngdar
leysis. Allt miðar þetta að því að
næra og örva heilbrigt orkuflæði
líkamans og losa út neikvæð áhrif
streitu. Lögð er áhersla á algjöra
endurnæringu í gegnum djúpt
slökunarástand í þyngdarleysinu
og að losa um alla spennu líkam
ans með mjúkum teygjum, togi og
nuddi,“ segir Unnur.
Séríslensk hugmynd
Hugmyndin að Flothettu segir
Unnur að hafi sprottið upp úr
reynsluheimi sínum. „Þetta kemur
úr reynsluheimi Íslendings sem elst
upp við daglegar sundlaugarferðir
og þau forréttindi að búa í landi
vatnsauðlegðar. Þetta samtvinn
ast svo áhuga mínum á heilsu og
þá sérstaklega andlegri heilsu og
öllum þeim athöfnum sem miða að
því að skapa ró og jafnvægi.“
Slakað á fljótandi og
þyngdarlaus í undri veraldar
Flothetta Unnar hefur heldur
betur vakið athygli út fyrir land
steinana. „Flothetta þykir vera
einstaklega séríslensk hugmynd,
þar sem eflaust fáir myndu láta sér
detta í hug að hanna og framleiða
fljótandi höfuðfat, nema einmitt
Íslendingur sem elst upp við svona
blómlega baðmenningu eins og
hér ríkir. Samfélagið og kúltúrinn
sem Flothetta hefur gefið af sér eru
að sama skapi mjög ríkuleg. Þar
má nefna skipulögð hópaflot eins
og Samflot og Flotmeðferðirnar,
sem hafa ekki síður notið mikillar
athygli um heim allan. Flotmeð
ferðirnar hafa hlotið afar góðar
undirtektir og hefur aðsóknin
verið stöðug frá því að byrjað var
að bjóða upp á þær. Erlendum
gestum okkar finnst líka sérstak
lega spennandi að fá að njóta þess
arar séríslensku vatnsupplifunar.“
Flotmeðferðir í undri veraldar
„Það er einstaklega skemmtilegt
að Bláa Lónið bjóði nú upp á flot
meðferðir í lóninu sjálfu, sem er
eitt af undrum veraldar. Fyrir utan
fegurðina og einstaka náttúruupp
lifun í Bláa Lóninu eru endurnær
andi áhrifin og upplifunin ekki
síður fólgin í steinefnaríku vatni
lónsins. Þú finnur samhljóm með
vatninu, jörðinni og snertingu
meðferðaraðila. Jarðsjórinn
hefur einstök áhrif á líkama og
sál og með kyrrðinni, hlýjunni og
þyngdarleysinu skapar þetta allt
hinar fullkomnu aðstæður fyrir
dásamlegt flotið,“ segir Unnur.
Gestir Bláa Lónsins sem hafa
prófað flotmeðferðirnar hafa allir
verið himinlifandi yfir þessari
nýju viðbót í meðferðarflóru
lónsins. Allar nudd og flotmeð
ferðir fara fram á einkasvæði
lónsins, sem er opið svæði en tak
markað fyrir meðferðargesti. Aðrir
gestir í lóninu hafa takmarkaða
sýn þangað. Hitastig lónsins er
3739°C. Flotmeðferðirnar eru
viðbótarþjónusta fyrir gesti Bláa
Lónsins, Retreat Spa, Silica og Ret
reat hótel sem bóka þarf sérstak
lega. Allar upplýsingar er að finna
á vef Bláa Lónsins, blaalonid.is. n
Bókaðu flotmeðferð á vef Bláa
Lónsins, blaalonid.is.
kynningarblað 5FÖSTUDAGUR 18. febrúar 2022 MATUR OG HEIMILI