Fréttablaðið - 18.02.2022, Side 53
Hinn svarti og klassíski skífusími
fylgdi húsinu og nýtur sín vel.
Unglingurinn vildi hafa graffítíverk á sínum vegg og fékk ósk sína uppfyllta.
Appelsínukakan var ávallt til á heim-
ilinu og geymd á eldhúseyjunni.
Einstaklega vel tókst til við að blanda saman upprunalega stíl hússins og nýju.
Ingunni og
Reyni líður afar
vel í húsinu og
segja að þetta
fallega hús hafi
verið gefandi
og skemmtilegt
verkefni að fást
við.
hafa graffítíverk á sínum vegg þá
bara höfum við það þannig,“ segir
Reynir en parið er mjög hrifið af
lifandi plöntum.
„Það er hluti af þessum „mid-
century modern“ stíl að hafa
þær hér, við erum alveg að velja
tegundir sem voru áberandi þá.“
Hjarta heimilisins slær í eldhús-
inu sem er einstakleg vel heppnað.
Það er stórt og mikið og rúmar
vel alla í mat í borðkróknum því
bekkurinn tekur lengi við.
„Við borðum nær alltaf í eldhús-
inu og krakkarnir læra líka mikið
þar. Við erum virkilega ánægð með
útkomuna og Hulda arkitekt á
mikinn heiður skilinn. Hún horfði
mjög til þess hvernig áður var
innanstokks en létti mikið á því og
sleppti efri skápum.“
Munu varðveita hefðir hússins
Gaman er að segja frá því að fjöl-
skyldan sem seldi þeim Ingunni og
Reyni húsið leyfði þeim að halda
nokkrum ljósum og hlutum sem
tengjast sögu hússins.
„Inni á baði er gamalt þvotta-
bretti uppi á vegg og inni í stofu er
rauðvínsflaska frá því að gömlu
hjónin skáluðu með smiðunum
í reisugillinu. Síðan varð mjög
ánægjuleg tenging við fjölskylduna
sem seldi okkur; þau voru að láta
af hendi æskuheimilið og var ekki
sama hvað yrði um húsið. Þau voru
svo elskuleg að sýna okkur fullt
af myndum frá gamla tímanum
sem við nýttum inn í verkefnið.
Þau hafa síðan komið og heimsótt
okkur og skoðað breytingarnar og
voru mjög ánægð að sjá það sem
við höfum gert. Þau sögðu okkur
fullt af sögum og kenndu okkur
meira að segja að baka kökuna sem
móðir þeirra hafði alltaf til handa
þeim sem krökkum og við erum
þegar byrjuð að æfa okkur í að
baka hana. Þau sögðu okkur meðal
annars þá skemmtilegu sögu að
það hefði alltaf verið flaggað á
afmælisdegi föður þeirra, en það
kom í ljós að sá dagur er einmitt
sami afmælisdagur og Ingunnar,
18. júlí. Við munum varðveita
þessar hefðir, f lagga á afmælis-
degi bóndans og baka reglulega
appelsínuköku húsfrúarinnar,“
segja þau Ingunn og Reynir frá.
Sagan á bak við kökuna
„Börnin sem ólust upp í húsinu
gáfu okkur uppskriftina frá
móður þeirra. Appelsínukakan
var ávallt til á heimilinu, hún var
geymd á eldhúseyjunni og krakk-
arnir fengu sér eina kökusneið eftir
skóla. Við munum að sjálfsögðu
halda í þá hefð og við vitum að
börnin okkar munu ekki mótmæla
henni,“ segja þau Ingunn og Reynir
hamingjusöm.
Appelsínukaka
frú Margrétar
200 g smjör
200 g hveiti
200 g sykur
3 egg
½ tsk. lyftiduft
Safi
1 appelsína
1 sítróna
Smá sykur
Rauðvínsflaskan frá því að gömlu
hjónin skáluðu með smiðum 1954.
Inni í flöskunni er handskrifaður
miði með nöfnum allra smiðanna.
Glæsilegur
stigi er í húsinu
og við stóran
glugga. Fallegt
veggteppið
gerði Herdís
Guðmunds-
dóttir, móðir
Ingunnar.
Appelsínuglassúr (spari)
200 g flórsykur
1 msk. appelsínusafi og 1 msk.
sítrónusafi
½ tsk. vanilla
1 msk. rjómi eða mjólk
Smjör og sykur hrært saman.
Eggjum bætt út í, einu í einu. Hveiti
og lyftidufti bætt við í lokin. Setjið
deigið í hringlaga form og bakið
í ofni við 180°C í 25 mínútur. Safi
kreistur úr appelsínu og sítrónu,
og hitaður ásamt sykri og hellt yfir
kökuna þegar hún er volg. Gott
að raspa smá af appelsínunni og
sítrónunni yfir kökuna. Það er hægt
að útbúa appelsínuglassúr fyrir þá
sem vilja, en þá verður hún sætari.
Það er meira spari. Öll hráefni eru
sett saman í skál og hrært. Ef þið
viljið hafa áferðina þunna, þá bætið
þið rjóma eða mjólk út í. n
Við munum varð-
veita þessar hefðir,
flagga á afmælisdegi
bóndans og baka reglu-
lega appelsínuköku
húsfrúarinnar.
Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir
Arinninn í
stofunni er mikil
heimilisprýði og
er kveikt upp í
honum nánast
daglega.
kynningarblað 7MATUR OG HEIMILIFÖSTUDAGUR 18. febrúar 2022