Fréttablaðið - 18.02.2022, Qupperneq 58
Georg Halldórsson, yfirmat-
reiðslumaður á veitinga-
staðnum Tides á hótelinu
The Reykjavík Editon, hefur
mikla ástríðu fyrir matar-
gerð.
sjofn@frettabladid.is
Georg býr á Seltjarnarnesi með
konu sinni Snædísi og börnum
þeirra Elmu og Hirti. Hann vinnur
náið með Gunnari Karli á Dilli, er
ráðgjafi fyrir Tides og hefur unnið
að því verkefni frá byrjun.
„Þegar Gunnar Karl nálgaðist
mig varðandi þetta verkefni var ég
yfirmatreiðslumaður á veitinga-
staðnum Óx, sem er falinn ellefu
sæta veitingastaður á Lauga-
veginum. Frá því ég hóf störf sem
matreiðslumaður hef ég aðallega
einbeitt mér að því að verða betri
handverksmaður en lítið spáð í
rekstri og mannaforráðum. Ég
hafði náð markmiðum mínum á
Óx, staðurinn fékk meðal annars
viðurkenningar frá White Guide
og Michelin Guide, svo mér fannst
tilvalið að fá nýja áskorun,“ segir
Georg.
Edition er hugarfóstur Ians
Schrager sem á áttunda áratugnum
stofnaði hinn goðsagnakennda
skemmtistað Studio 54 í New
York. Hann er af mörgum talinn
guðfaðir „boutique-hótelanna“ og
er mikill hugsjónamaður, langt á
undan sinni samtíð.
„Það sem greip mig við Edit-
ion var að þetta nýja og frumlega
kon sept; eitthvað sem ég hefði
aldrei heyrt um áður. Hér er
hugsað fyrir öllu, allt frá hljóði og
lýsingu til lyktarinnar sem tekur á
móti gestum þegar þeir labba inn.
Starfsfólkið sem hér vinnur er það
besta í sínu fagi og allt er þetta gert
til að veita gestum ógleymanlega
upplifun. Ofan á það er hótelið
aðgengilegt öllum og mikið lagt
upp úr því að verðin séu góð,“ upp-
lýsir Georg.
Hvenær kviknaði áhugi þinn á
matargerð og er saga bak við það?
„Í 7. bekk fór ég að vinna á
pitsastaðnum Pizzabæ í Mos-
fellsbæ og áttaði mig f ljótt á að
vinnuumhverfið átti mjög vel
við mig. Á unglingsárunum fékk
ég líka mikinn áhuga á mynd-
list, arkitektúr og tónlist. Ég
fór í myndlistarskóla og spilaði
í hljómsveitum en var á sama
tíma alltaf að vinna aukavinnu á
veitingastöðum. Hægt og rólega
komst ég að því að matreiðsla er
ekkert annað en listgrein. Ég gat
fengið útrás fyrir sköpunargleðina
og hlustað á tónlist á meðan ég
eldaði og með árunum varð ég ást-
fanginn af faginu.“
Finnst þér ein matargerð meira
heillandi en önnur?
„Leifur Kolbeinsson á La Prima-
vera er meistari minn og einn
þeirra sem hafa haft mikil áhrif á
mig sem matreiðslumann. Hann
kynnti ítalska matarmenningu
fyrir mér og það sem heillar mig
við ítalskan mat er ferskleikinn,
einfaldleikinn og virðingin fyrir
nærumhverfinu, hráefni og
hefðum.“
Georg deilir með lesendum einu
uppáhalds sælkerasalati sínu.
Romainsalat með ristuðu
súrdeigsbrauði, valhnetum,
gráðosti og fíkjum
fyrir 4
1 haus romainsalat
3 sneiðar súrdeigsbrauð (best er
að nota 1-2 daga gamalt brauð)
½ hvítlauksgeiri rifinn
20 g cider-edik
10 g hunang
50 g gráðaostur
10 g rjómi
Sjávarsalt
Svartur pipar
Góð extra virgin ólífuolía
1 dl valhnetur
Forhitið ofninn í 160°C. Rífið súr-
deigsbrauðið í sirka 1 cm bita og
veltið upp úr ólífuolíu, hvítlauk og
kryddið með salti og pipar. Ristið
brauðið í ofninum í 15 mínútur.
Kælið svo. Hrærið saman 50 g af
gráðaosti og 10 g af rjóma. Skerið
fíkjurnar í báta. Hrærið saman
cider-ediki, hunangi og 20 g af
ólífuolíu, kryddið með salti.
Rífið salatið gróflega niður og
leggið á disk. Bætið síðan gráðosti,
fíkjum, ristaða súrdeigsbrauðinu
og valhnetunum ofan á. Dreypið
edik-dressingunni yfir. n
Varð ástfanginn af faginu
Georg Arnar
Halldórsson er
yfirmatreiðslu-
maður á veit-
ingastaðnum
Tides á Edi-
tion-hótelinu
við Reykjavíkur-
höfn.
Ómótstæði-
lega girnilegt
salat, toppað
með ristuðu
súrdeigsbrauði,
gráðaosti og
fíkjum sem
enginn sælkeri
stenst.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Auðbrekku 6 200 Kópavogi Sími 565-8899 normx@normx.is
Íslensk framleiðsla í 40 ár!
Heitir og kaldir gæðapottar sem hitta í
mark hjá ÖLLUM í fjölskyldunni!
Eigum til úrval auka og fylgihluta fyrir pottinn og pottaferðina.
Fljótandi"hengirúm" háfa, bursta, hitamæla, klór og margt fleira. Skoðið úrvalið á normx.is
12 kynningarblað 18. febrúar 2022 FÖSTUDAGURMATUR OG HEIMILI