Friðarboðinn og vinarkveðjur - 01.09.1947, Page 3

Friðarboðinn og vinarkveðjur - 01.09.1947, Page 3
3 Reykjavík, 4. nóv. 1946. Herra sóknarprestur Friðrik A. Friðriksson, Húsavík. Nú kl. 2 í dag móttók ég bréf frá yður, þar sem þér skýrið mér frá, að dóttir yðar sé orðin barnshafandi af mínum völdum, vegna draumsamfara og vegna ofur- ástar, sem dóttir yðar beri til mín. Þá skorið þér á mig að bregðast vel og mannlega við og undirbúa dóttur yð- ar viðunandi skilyrði þegar hún leitar á mínar náðir, fyrir eða eftir barnsburð. Ég mun taka svo vel á móti dóttur yðar ef hún leit- ar til mín og mér er mögulegt, þótt ég ekki viti til að ég þekki hana neitt persónulega, en ég vona að dóttir yðar sé falleg, elskurík og vel menntuð stúlka, sem geti orðið góð móðir og eiginkona. Vinsamlegast og virðingarfyllst kraftaverkahugsuður af þríeinaðs guðs náð. Jóh. Kr. Jóhannesson Roosevelt. NB. Svo sendi ég yður síðustu útkomin hefti af Frið- arboða mínum og dóttur yðar mynd af mér. Jóh. Kr. Sent í ábyrgðarpósti. Til einkadóttur Friðriks A. Friðrikssonar sóknarprests á Húsavík. Lag: Stína mín láttu nú liggja vel á þér. Þú komst milda mærin vel til mín í draumi. Ég fylltist þá mildiríkum unaðarstraumi.

x

Friðarboðinn og vinarkveðjur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Friðarboðinn og vinarkveðjur
https://timarit.is/publication/1666

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.