Friðarboðinn og vinarkveðjur - 01.09.1947, Blaðsíða 7
7
Við Guði þökkum gleði stund,
er við hér glaðir vórum.
Guð styrki, göfgi hug' og mund,
er greindir héðan förum.
Kór:
Fagurt er lífið hér í bjarkarsal.
Þá gleðin hefur völdin hjá bæði sprund og hal.
Jóli. Kr. Jóhannesson.
VÍGSLULJÓÐ
Gistiskála Barðstrendingafélagsins við Beru-
fjarðarvatn.
Lag: Heil, þú dásöm drottning meðal lista.
Barðstrendingar, hefjið sigursöngva,
sjá, hinn nýi tími birtist hér.
Þar skal aldrei krappur kostur þröngva,
er kapp og dáð og eining saman fer.
— Þeir, sem bárust brott frá þínum garði
og boðar örlaganna merktu sér.
Þessi skálj er mark og mælikvarði
á manndóm þeirra, tryggð og ást á þér.
Breiðifjörður, allt sem fegurst áttu
ertu að vekja, saman tengja í eitt.
Barna þinna framtak finna láttu
fylling þá, sem góðu starfi’ er veitt.
Sjá. nú brenna björt á öllum tindum