Friðarboðinn og vinarkveðjur - 01.07.1941, Blaðsíða 8
matinn matsveinar framreiða,
prúðir eins og menn,
kyndarar fá vel að reyna
hetjuskap sem menn,
hásetar fá vel að reyna
sjómannsstörf sem hraustir menn.
Heilir sjómenn, íslands vinir,
halir meður fljóð,
nú tengist kærleik friðarvinir,
til heilla vorri þjóð,
sjómannskona elski mann sinn,
hún er manns síns fljóð,
fagra kona föst í landi,
sjómanns-stétt ver góð,
fagra kona föst í landi,
sjómanni ver trú og góð.
Kvennadeild Slysavarnarfélags
vinnur sjómanns heill,
slysum varnar kvennafélag,
lands og lýða heill.
Lyftum skálum, sjómanns minni,
drekkum halir, sprund,
farmanns heill í brjóstum inni
eflum þessa stund,
sjómanns heill í brjóstum inni
eflum þessa gleðistund.