Friðarboðinn og vinarkveðjur - 01.07.1941, Blaðsíða 14

Friðarboðinn og vinarkveðjur - 01.07.1941, Blaðsíða 14
Jóhannes Kr. kvæðafans koma þér frá, kraftur þeim fylgir öllum sem dynjandi á. Lengi þitt nafnið lifi landslýði með. Ljóðræna lista-skáldið léttlynda, kveð. Tryggvi Jónsson, sj ómannaskólamaður. Bókarfregn. VINARKVEÐJUR. SÖNGLJÓÐMÆLI Höf. Jóhannes Kr. Jóhannesson trésmíðameistari m.m. Það er ekki létt verk að skrifa um skáldskap Jó- hannesar Kr. Jóhannessonar. Við lestur ljóða hans er eins og hvergi megi milli sjá hvar honum tekst bezt upp í ljóðagerðinni, það er sama snilldarbragðið á því hjá honum, t. d. hvort það er viðtalsljóð við Jesúm Krist, Minni íslands, Ástarkvæði eða þá láugardags- biðin. — Á kápunni er auglýsing frá skáldinu. Er þar upptalið hvaða störf hann taki að sér. Nefnir hann sig trésmíðameistara, dráttmyndasmið, vörusala, skuldainnköllunar- og málamiðlunarmann. Þetta er nú æði mikil fjölhæfni, sem skáldið leggur fyrir sig. 14

x

Friðarboðinn og vinarkveðjur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Friðarboðinn og vinarkveðjur
https://timarit.is/publication/1666

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.