Friðarboðinn og vinarkveðjur - 01.07.1941, Blaðsíða 15

Friðarboðinn og vinarkveðjur - 01.07.1941, Blaðsíða 15
Fjórtán ára gamaíi var hann sundkennari og nú er hann söngvaleikari. Alveg sama kemur fram í kvæð- unum. Skáldið ræður svo létt og leikandi við hvert einasta yrkisefni, sem hann tekur sér fyrir hendur, er eins og að skáldskaparkröfum hans sé ekkert um megn. • Þó að rúmið sé nú æði takmarkað, verð ég að til- færa örfá erindi úr bókinni. Skáldið er ekki í neinum vanda að bregða sér af ís- lenzkunni og yfir í dönskuna. Hann hefur legið í Landakotsspítala og gerir þetta til einnar nunnunn- ar, þegar skáldið liggur þar í brunasárum með mikinn hita, 39, 3 stig. Julieta söster hun er saa söd og blöd, at hjælpe mig i Krigen mod Ildebrandens Saar. Hún kommer som en Engel fra Himlen til mig sent, at læge mine Saar, med Kristi Kærlighed. Er efamál, hvort nokkurt danskt skáld hefur náð betri spretti úr sínu móðurmáli, dönskunni en þetta. Eitt kvæðið í bókinni heitir Laugardagsbiðin. Skáld ið hefur átt von á stúlku í heimsókn. Hún kemur ekki. Allur umgangur í húsinu, hvað lítill sem er, setur taugar skáldsins í spenning. Hann hugsar, að nú sé það hún, sem hann þráir, sem sé nú að koma. 15

x

Friðarboðinn og vinarkveðjur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Friðarboðinn og vinarkveðjur
https://timarit.is/publication/1666

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.