Morgunblaðið - 13.01.2022, Side 20
20 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2022
Aðalfundur ÍSTEX hf. verður haldinn
fimmtudaginn 20. janúar 2022, kl. 16:00.
DAGSKRÁ
1. Almenn aðalfundarstörf samkvæmt
15. grein samþykkta félagsins.
2. Heimild aðalfundar fyrir félagsstjórn
til kaupa á eigin hlutabréfum.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Ársreikningur er til sýnis á skrifstofu í Mosfellsbæ og er
sendur hverjum þeim hlutahafa sem þess óskar.
Í samræmi við fyrirmæli stjórnvalda til að
stemma stigu við útbreiðslu kórónuveiru verður
fyllstu varúðar gætt.
Hægt verður að skrá sig á istex.hf@istex.is eða
í 566 6300 til að fylgjast með fundinum rafrænt.
Umboðsmenn þurfa að leggja fram dagsett og
skriflegt umboð.
Aðgöngumiðar, fundargögn og hlekkur á fundinn
verða afhent eftir skráningu á fundardag.
Mosfellsbæ, janúar 2022.
Stjórn ÍSTEX hf.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Uppbygging nýs Landspítala við
Hringbraut er í fullum gangi og að
mestu á áætlun þrátt fyrir heimsfar-
aldur kórónuveirunnar, sem staðið
hefur yfir í tvö ár.
Árið 2021 hefur stærsta verkefni
NLSH ohf., sem stýrir Hringbraut-
arverkefninu, verið uppsteypa nýs
meðferðarkjarna. Það mun einnig
verða langstærsta verkefnið 2022.
Áætluð verklok þessa risavaxna
steypuverkefnis eru í nóvember
2023, að því fram kemur í Fram-
kvæmdafréttum verkefnisins.
Meðferðarkjarninn, þ.e. hin eigin-
lega spítalabygging, verður stærsta
mannvirkið á svæðinu, tæplega 70
þúsund fermetrar, sex hæðir auk
tveggja kjallara.
Samtals hafa til þessa farið um
15.000 rúmmetrar af steypu í grunn-
inn, þar af 12.500 rúmmetrar í húsið
sjálft og 2.500 rúmmetrar í þrifalög.
Alls eru þetta um 1.900 ferðir
steypubíla. Búið er að steypa rúm-
lega 20% af því magni sem áætlað er
að fari í meðferðarkjarnann.
Aðalverktaki uppsteypuverksins
er Eykt hf. og helstu verkþættir
sem nú eru í gangi við uppsteypuna
eru áframhaldandi vinna við móta-
uppslátt, járnabendingu, jarðskaut,
fyllingar og lagnir í grunni, segir
Eysteinn Einarsson staðarverk-
fræðingur í Framkvæmdafréttum.
Vinna við undirstöður og botn-
plötur í neðri kjallara er mjög langt
komin og áætlað að henni ljúki um
miðjan janúar. Samhliða er vinna
við jarðskaut, fyllingar og lagnir í
grunni í fullum gangi. Vinna við
undirstöður í efri kjallara er hafin.
Einnig er unnið við neðri kjallara-
veggi sem og vinna við súlur. Utan-
hússfrágangur kjallaraveggja er að
hefjast sem og fyllingar að þessum
veggjum.
Útveggir nýs meðferðarkjarna
verða byggðir upp að langmestu
leyti sem svokallað „Unitized Wall
System“, en það er heildstætt út-
veggjakerfi sem boðið er út til
hönnunar, framleiðslu og uppsetn-
ingar. Um risavaxið samkeppnis-
útboð er að ræða og sér NLSH um
verkefnastýringu og umsjón með
útboðinu í samvinnu við innlenda
og erlenda ráðgjafa ásamt þátttöku
Ríkiskaupa. Áætlað er að niður-
stöður útboðs liggi fyrir um mitt
þetta ár.
Nýtt rannsóknahús, sem mun
rísa vestan Læknagarðs HÍ, er ein
af byggingum í heildaruppbygg-
ingu Nýs Landspítala við Hring-
braut. Það verður um 17.400 fer-
metrar að stærð. Uppgreftri á
lausu jarðefni er lokið og sprengi-
vinna hafin á klöpp. Verktaki er
Háfell ehf. og er áætlað að jarð-
vinnu ljúki fyrri hluta ársins 2022.
Jarðvinnu við bílakjallara, sem
verður staðsettur undir Sóleyjar-
torgi austan megin við meðferðar-
kjarnann, er lokið og uppsteypa
hefst á þessu ári. Bílakjallarinn
verður rúmir sjö þúsund fermetrar
að stærð og er hann hugsaður sem
aðkoma fyrir þá sem eiga erindi á
nýja spítalann, þ.e. sjúklinga og að-
standendur.
Á Sóleyjartorginu verður bein
aðkoma að bráðamóttökunni og inn
í spítalann. Bílakjallarinn verður á
tveimur hæðum, hvor hæð um
3.500 fermetrar og verða þar um
180 bílastæði. Áætlað er að upp-
steypu bílakjallara ljúki á árinu
2023, en hann verður tekinn í notk-
un samhliða spítalanum. Við Sól-
eyjartorgið er áformað að verði að-
koma borgarlínunnar í framtíðinni.
Áramótin 2020/21 Hér er grunnur meðferðarkjarnans tilbúinn og hægt að hefja steypuvinnu.
Ljósmyndir/NSLH
Áramótin 2021/22 Steypuvinnan gekk vel allt árið í fyrra og steypubílar streymdu í grunninn.
Steypubílarnir fóru 1.900 ferðir
- Uppbygging nýs Landspítala gengur vel - Uppsteypa meðferðarkjarnans er risavaxið verkefni
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Bjóráhugafólk mun eflaust taka þeim fréttum fagnandi
að í dag hefst sala á þorrabjór í Vínbúðunum. Sölutímabil
þorrabjóra tekur beint við af jólabjórnum í Vínbúðum og
rímar bjórúrvalið ágætlega við matarhefð Íslendinga á
þessum tíma árs; stórir og þungir bjórar með þjóðlegum
blæ margir hverjir.
Síðdegis í gær höfðu 17 þorrabjórar verið skráðir til
sölu hjá ÁTVR en búast má við að þeim fjölgi um minnst
3-4 á næstu dögum. Auk þess eru tvær tegundir þorra-
brennivíns nú fáanlegar.
Stærstu tíðindi þessa sölutímabils eru jafnan hvers
konar Surti Borg brugghús sendir frá sér. Að þessu sinni
eru Surtirnir fjórir. Surtur Nr. 93 er þroskaður á bour-
bon tunnum, Surtur Nr. 8.15 er 13% og þroskaður á
tunnum sem áður geymdu romm úr púðursykri, Surtur
Nr. 8.16 er 12,2% og þroskaður í brómberjabrandí-
tunnum og sá síðasti er Surtur Nr. 8.17 sem er 12,2% að
styrkleika og þroskaður í Chartreause-tunnum.
Að vanda sendir brugghúsið Steðji í Borgarfirði frá
sér Hval 2 sem er bruggaður með taðreyktum lang-
reyðar-eistum. Af öðrum sígildum þorrabjórum má
nefna Þorra Kalda sem verið hefur sá vinsælasti á þessu
sölutímabili undanfarin ár og Víking vetraröl. Dokkan á
Ísafirði hefur bruggað Þorra Púka og The Brothers
Brewery í Vestmannaeyjum hinn bragðmikla 23.01.73
Porter. Þá kemur áhugavert hinderja- og kirsuberjaöl
frá Segli 67 á Siglufirði og belgískt öl frá Ölverki sem
kallast Sóði.
Einna mest spennandi nýmetið á borðum þetta árið
verður samstarfsbrugg Víking brugghúss og Böl brew-
ing. Mætast þar mikil og sterk hefð á Akureyri og nýjar
hugmyndir úr Reykjavík. Útkoman er bjórinn Trylltur
sem er af gerðinni New Zealand Pils og er 6% að styrk-
leika.
Þorrabjór í sölu í dag
- Um 20 tegundir verða á
boðstólum í Vínbúðunum
- Fjórar gerðir af Surtum
Þorri Að þessu sinni sendir Borg brugghús frá sér fjóra
Surti sem hafa fengið að þroskast á mismunandi tunnum.
Samstarf Strákarnir í Böl brewing með Baldur Kára-
son bruggmeistara hjá Víking brugghúsi á milli sín.