Morgunblaðið - 13.01.2022, Blaðsíða 44
Einstök Bókin um Slippinn þykir
sérlega vönduð.
Vestmannaeyjar hlutu á dögunum
tilnefningu til Emblu-verð-
launanna sem besti mataráfanga-
staður á Norðurlöndunum. Um er
að ræða mikla viðurkenningu fyrir
vel unnið starf hagsmunaaðila á
eyjunum en á undanförnum árum
hafa afar metnaðarfullir veitinga-
staðir litið þar dagsins ljós, þeirra
á meðal Slippurinn og GOTT.
Mikil fjölbreytni er í veit-
ingaflórunni í Vestmannaeyjum og
Gríðarleg viður-
kenning fyrir
Vestmannaeyjar
Nóg að gera Líf og fjör í eldhúsinu á veitingastaðnum GOTT.
Bragðgóðir bræður Brothers Brewery er framúrskarandi brugghús.
Ferskt Mikið af hráefni kemur
úr nærumhverfinu.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2022
ÚTSALA
30% afsláttur
RAGNAR/RAGNA
Dúnúlpa
Nú kr. 19.593.-
Kr. 27.990.-
Nú er hægt að fá vörur hér á
landi frá hollenska ofurfyrirtæk-
inu Bio Today sem sérhæfir sig í
náttúrulegum og ofursvölum holl-
ustuvörum sem hannaðar eru fyr-
ir nútímafólk.
Vörurnar frá Bio Today eru
náttúrulegar, margar hverjar
vegan, án allra óþarfa lit- og ilm-
efna og 100% lífrænar. Vörurnar
henta vel fyrir fólk á ferðinni, til
dæmis í morgunmat sem gefur
orku fyrir daginn, hollustustangir
og snakk sem er tilvalið í nest-
isboxið og trefjaríkar smákökur
sem innihalda engan viðbættan
sykur. Möndlu- og kasjúhnetu-
smjörið er hollt og gott ofan á
gróft brauð eða kex enda fram-
leitt úr lífrænum hnetum og fræj-
um. Í vöruúrvalinu eru einnig rís-
kökur með chia, veganhunang og
skírt smjör.
Bio Today er fyrir fólk á ferð-
inni sem hugsar um heilsuna.
Fæst á Heilsudögum í Hagkaup.
Ofursvalar hollustuvörur
komnar til landsins
Viðurkenndar vörur Bio Today
þykja afar vandaðar og hafa notið
mikilla vinsælda um heim allan.
Í dag hefjast Heilsudagar í Hag-
kaup þar sem vítamín og fæðu-
bótaefni eru á tilboði. Að auki er
hægt að kaupa ýmsar heilsuvörur
og spennandi matvöru þar sem
hollustan er í fyrirrúmi.
Heilsudagar sem þessir hafa
verið að ryðja sér til rúms hér-
lendis en margir sæta þá færis og
kaupa inn veglega skammta af
þeim vítamínum og bætiefnum
sem þeir neyta dags daglega. Því
er hægt að spara töluvert á því að
gera góð kaup á tilboðsdögum
verslana. Sérlegur bæklingur
fylgir Morgunblaðinu í dag auk
þess sem bæklingurinn er að-
gengilegur á netinu.
Heilsudagar
hefjast í
Hagkaup
Hjónalíf Veitingahjónin Berglind
Sigmarsdóttir og Sigurður Gíslason eru
meðal þeirra sem hafa byggt upp einstaka
veitingastaðaflóru í Vestmannaeyjum.