Morgunblaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2022 Kór Hallgrímskirkju Raddprufur Raddprufur Kórs Hallgrímskirkju verða haldnar í lok janúar. Gerð er krafa um fyrri kórreynslu og færni í nótnalestri. Kórinn æfir á þriðjudagskvöldum klukkan 19-22 auk mánaðarlegra raddæfinga. Í vor mun kórinn meðal annars halda tónleika og syngja aftansöng á Boðunardegi Maríu, halda vortónleika með Barokkbandinu Brák og fara í upptökur á nýrri íslenskri tónlist. Kórinn tekur virkan þátt í helgihaldi Hallgrímskirkju. Stjórnandi kórsins er Steinar Logi Helgason. Áhugasamir hafi samband fyrir 23. janúar 2022 á netfangið kor@hallgrimskirkja.is. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Ég borðaði oft á Café Riis sem krakki og unglingur en eftir að ég fór sjálf að vinna hér fann ég svaka góðu orku sem ég vil gjarnan við- halda,“ segir Guðrún Ásla Atladóttir sem tók við rekstri hins rómaða veit- ingastaðar Café Riis á Hólmavík um áramótin. Guðrún tekur við staðnum af frændfólki sínu, þeim Báru Karls- dóttur og Krist- jáni Jóhannssyni, sem ráku Café Riis frá 2005. Þau gáfu henni bestu meðmæli í kveðju sinni til viðskiptavina á facebooksíðu staðarins enda Hólmvíkingur „bæði af Bæjar- og Pálsætt“. Athygli vekur að Guðrún er ekki nema 22 ára og stendur ein í stafni rekstursins þótt hún njóti liðsinnis fjölskyldu sinnar. „Ég byrjaði að vinna hjá Báru og Kidda árið 2020. Kiddi og mamma mín eru systkina- börn og svo er ég skyld Báru í gegn- um afa minn. Ég er ættuð héðan en ég er alin upp og hef dvalist lengi í Skotlandi,“ segir Guðrún. Hún lagði stund á háskólanám í Skotlandi og útskrifaðist með BA- gráðu í arkítektúr. „Einmitt þegar faraldurinn var að bresta á. Planið var að ferðast um Evrópu og finna mér vinnu á flottri arkitektastofu en það var ekki mikið verið að ráða á þessum tíma enda allir heima að vinna. Þá hringdi ég í Báru frænku og fékk vinnu um sumarið 2020 hjá henni. Ég varð bara ástfangin af þessum stað,“ segir Guðrún. Í elsta húsi bæjarins Hún segist hafa starfað mikið í þjónustugeiranum með námi sínu í Skotlandi, meðal annars við veislur í fínni kantinum, svo hún hafi búið að góðri reynslu. „Bára og Kiddi tóku vel á móti mér og kenndu mér vel. Staðurinn var búinn að vera til sölu í þrjú ár og ég fór að hugsa um þetta. Svo sannfærði ég mömmu og pabba um að mig langaði að kaupa Café Riis og að ég vildi fara í þennan rekstur. Þetta er fjölskyldufjárfest- ing en ég er samt eigandinn.“ Guðrún getur þess að Café Riis sé hálfgerð stofnun á Hólmavík. Veit- ingastaðurinn er rekinn í elsta húsi bæjarins sem var byggt árið 1897. Húsið var gert upp árið 1995 og því breytt í veitingastað. Eldar fyrir 100 manns í hádeg- inu á virkum dögum „Mér hefur verið tekið mjög vel enda held ég að það hafi verið mik- ilvægt að fá heimamanneskju til að viðhalda sögunni. Maður þekkir næstum alla hér og það hafa allir verið mjög glaðir og ánægðir með þetta.“ Hún segir enn fremur að auk bæj- arbúa sé algengt að fólk úr Reyk- hólasveit og Búðardal sæki staðinn. Mikilvægt sé að viðhalda styrk sam- félagsins, og miðstöð eins og veit- ingastaðurinn Café Riis sé í lykil- hlutverki þar. Café Riis hefur verið í fullum rekstri á sumrin en af- greiðslutími hefur verið takmark- aður á veturna. Pítsukvöld á föstu- dögum hafa þó notið mikilla vinsælda. Guðrún segir að hún ætli sér ekki að breyta miklu í rekstr- inum öðru en að uppfæra bókunar- kerfi og auka drykkjarúrval. „Maturinn hefur alltaf verið æðis- legur. Ég var að vinna í eldhúsinu í fyrrasumar og þá lærði ég alla þessa klassísku rétti sem Bára hefur verið að elda. Nú er ég að sjá um mötu- neyti grunnskólans og leikskólans og fyrir Hólmadrang og ætla að hafa opið í hádeginu fyrir almenning samhliða því. Ég er þegar að elda fyrir hundrað manns og ætla að bjóða upp á heimilismat og kaffi á staðnum. Svo er hugmyndin að vera með opið þegar það eru leikir í fót- boltanum og handboltanum. Ég er ung og full af orku svo það er ekkert að því að vera stanslaust á vaktinni,“ segir veitingakonan. Hún bætir við að rekstrinum fylgi Bragginn, gamla samkomuhúsið á Hólmavík, sem nýst hafi við ættarmót, tónleika, brúðkaup og fleira og geti falið í sér ýmsa möguleika. Vinirnir furðu lostnir Guðrún viðurkennir að endingu að margir vinir hennar og kunningjar hafi furðað sig á þessum ráðahag. Hún hafi búið í stórborg mestallt sitt líf og ferðast víða en sé nú búin að binda sig niður í smábæ. „Sumir skilja þetta ekki alveg. Þeir furða sig á því hvað ég ætli að gera á stað þar sem aðeins búa rúmlega tvö hundr- uð manns. Mér finnst þetta bara svo kósí. Pabbi ætlar að koma bráðlega og vera með mér og mamma og syst- ir koma um páskana og í sumar, þær hafa báðar unnið á staðnum. Þetta verður geggjað.“ Tekur við rómuðum veitingastað 22 ára - Guðrún Ásla er nýr eigandi Café Riis - Breytir engu Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Vinsæll Café Riis hefur notið vinsælda heimamanna og gesta um langt ára- bil. Guðrún lærði af fyrri eigendum og hyggst litlu breyta í rekstrinum. Guðrún Ásla AtladóttirFaxaflóahafnir sf. í samstarfi við Arkitektafélag Íslands hafa auglýst eftir teymi til að vinna þróunaráætl- un fyrir Gömlu höfnina í Reykjavík. Markmið verkefnisins er að móta framtíð Gömlu hafnarinnar og marka framtíðarstefnu svæðisins. Svæðið kallast alla jafna Gamla höfnin innan Faxaflóahafna. Mörk þess eru Harpa og Austurbakki til suðausturs og Geirsgata/Mýrar- gata. „Við mörk svæðisins eru stór nýbyggingarsvæði, Hafnartorg, Austurhöfn, Vesturbugt, Alliance- reitur og Héðinsreitur, auk þess eru á teikniborðinu breytingar við Toll- húsið og Grófina,“ segir í auglýs- ingu um samkeppnina á vef Faxa- flóahafna. Við Gömlu höfnina er að finna starfsemi af margvíslegum toga. Auk fiskvinnslu má nefna veitinga- starfsemi og söfn. Hafsækin starf- semi hefur breyst mikið undanfarin ár og áratugi og nú er ekki talin þörf á jafn miklu landrými fyrir haf- sækna starfsemi á aðliggjandi lóð- um og áður. Ekki er gert ráð fyrir íbúðabyggð á skipulagssvæðinu. Í auglýsingunni eru tiltekin nokk- ur atriði sem leitað er eftir. Meðal annars á að tryggja áfram haf- sækna starfsemi á svæðinu. Bæta á nýtingu innan lóða og endurnýta byggingar. Leggja skal áherslu á vistvænar og blágrænar lausnir og vönduð almenningsrými. Skipulag skal taka mið af hækkun yfirborðs sjávar og tækifæri til landfyllinga verði metin. Skilafrestur umsókna er til mið- nættis 3. febrúar nk. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Gamla höfnin Mikið hefur breyst síðan höfnin var tekin í notkun fyrir rúm- lega eitt hundrað árum. Faxaflóahafnir ætla að þróa hana til framtíðar. Móta framtíð hafnarinnar - Augum er beint að Gömlu höfninni Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það hefur aldrei nein skýring komið fram á því hvers vegna þetta var gert og ég held að það sé alveg ljóst að þarna voru lög brotin,“ segir Ein- ar S. Ágústsson húsgagnasmiður. Einar hefur lagt fram kæru til um- hverfis- og skipulagssviðs Reykja- víkurborgar vegna þeirrar fram- kvæmdar Orkuveitu Reykjavíkur að tæma með varanlegum hætti stíflu- lón ofan við Árbæjarstíflu í lok árs 2020. Í kærunni segir að lónið hafi verið tæmt fyrirvaralaust, án sam- ráðs við íbúa „og í andstöðu við fyrir- liggjandi deiliskipulag án þess að lögboðin leyfi til þessarar fram- kvæmdar hafi legið fyrir“. Einar býr skammt frá stíflunni og hefur lengi gert. Hann leggur kær- una fram í eigin nafni en segir að hann komi fram fyrir hönd margra sem gert hafi athugasemdir við þessa framkvæmd á sínum tíma. Í kærunni segir að fjarlæging lónsins án deiliskipulagsbreytingar sé í andstöðu við lög og gildandi deiliskipulag, bæði það sem tók gildi í desember 2020 og eldra deiliskipu- lag enda hafi lónið verið á skipulags- uppdráttum áratugum saman. „Það að Orkuveita Reykjavíkur hafi tekið sér það vald að eyða þessu andliti og sérkenni Elliðaárdals og breyta þannig varanlega landslagi dalsins, umhverfi borgaranna og vin- sælasta útivistarsvæði Reykjavíkur er fullkomlega óásættanlegt. Auk þess er þetta í algerri andstöðu við gildandi lög og meginsjónarmið um skipulag borga varðandi breytingar á landslagi og mannvirkjum,“ segir í kæru Einars. Ósáttur við borgarstjórann Hann segir að fólk sem býr í Árbæ og labbar reglulega um svæðið sé sammála um að tæming lónsins hafi verið mistök. „Það eru allir sammála um það sem sjá svæðið nú og hafa séð svæðið áður. Ég verð að viður- kenna að ég hef orðið fyrir vonbrigð- um með mann sem segist vera Árbæingur, alinn hér upp. Hann er í forsvari í borginni en þykist ekkert vita um þetta. Eitthvað myndu nú miðbæjarbúar segja ef Tjörnin væri allt í einu tæmd. Ég held að Dagur og félagar myndu ekki samþykkja það.“ Kærir tæmingu lónsins - Óánægja íbúa með að lón ofan Árbæjarstíflu hafi verið tæmt árið 2020 skilar kæru - Í andstöðu við deiliskipulag Morgunblaðið/Eggert Umdeilt Árbæjarlón var tæmt árið 2020 og var framkvæmdin umdeild. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is „Ársreikningaskrá sendi í morgun tilkynningu til 58 félaga þar sem þessum félögum var veittur fjög- urra vikna frestur til að skila inn ársreikningi eða eftir atvikum sam- stæðureikningi,“ segir á vef Skatts- ins í gær. Þar kemur fram að þessum 58 fé- lögum verði mögulega slitið ef þau skila ekki fullnægjandi ársreikn- ingi eða samstæðureikningi innan þess fjögurra vikna frests sem þeim er gefinn. Sinni félögin ekki þessari áskor- un mun ársreikningaskrá senda héraðsdómi kröfu um skipti á búi viðkomandi félags og verða engir frekari frestir veittir. Skatturinn hefur af þessu tilefni einnig birt minnisblað þar sem far- ið er yfir hvernig staðið er að kröfugerð um slit félaga. Í lögum um ársreikninga kemur fram að ef ársreikningi eða samstæðureikn- ingi hefur ekki verið skilað innan sex mánaða frá því að almennur frestur til skila rann út skal árs- reikningaskrá krefjast skipta á búi viðkomandi félags. „Þegar auglýs- ing um skiptalok hefur verið birt í Lögbirtingablaði er viðkomandi fé- lag afskráð úr fyrirtækjaskrá,“ segir á minnisblaði Skattsins. 58 félögum verður mögulega slitið - Hafa ekki skilað ársreikningum Morgunblaðið/sisi Skatturinn 58 félög fá fjögurra vikna frest til að bæta ráð sitt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.