Morgunblaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2022
- heimili, hönnun, tíska
og samkvæmislífið
Lífstílsvefurinn okkar
- fylgt landsmönnum í 10 ár
SMARTLAND
MÖRTUMARÍU
Vertu með
á nótunum
Bandaríski píanóleikarinn Ruth
Slenczynska, sem talin var undra-
barn í bernsku, sendir í mars frá sér
nýja plötu hjá Decca sem nefnist My
Life In Music. Á plötunni leikur hún
verk eftir Sergej Rakhmanínov og
Frederic Chopin sem hún tók upp í
sumar. Frá þessu greinir BBC.
Slenczynska, sem fagnar 97 ára af-
mæli sínu í dag, var aðeins fjögurra
ára þegar hún kom fyrst fram opin-
berlega og var vegna hæfileika sinna
líkt við Mozart. Tónleikar hennar eru
„mögnuð upplifun,“ skrifaði The New
York Times á sínum tíma. Slenc-
zynska þreytti frumraun sína í Berlín
aðeins sex ára og ári síðar í París.
Talið er að hún sé síðasti eftirlifandi
nemandi Rakhmanínovs. Hún gerðist
svo fræg að leika fjórhent með Harry
S. Truman og lék við innsetningar-
athöfn Johns F. Kennedys.
Slenczynska fæddist í Kaliforníu
og er dóttir fiðluleikarans Josefs
Slenczynskis sem starfaði við Tón-
listarskólann í Varsjá fram að fyrri
heimsstyrjöld. Eftir að fjölskyldan
fluttist til Bandaríkjanna einsetti
hann sér að gera dóttur sína að
undrabarni og beitti hana tilheyrandi
hörku til að ná markmiði sínu.
„Ástæða þess að hæfni mín kom fólki
á óvart var að pabbi lét mig æfa í níu
klukkutíma á dag,“ skrifaði Slenc-
zynska í ævisögu sinni Forbidden
Childhood sem út kom 1957. Aðeins
15 ára flúði hún að heiman og sleit öll
tengsl við föður sinn. Hún menntaði
sig í sálfræði, en hætti þó aldrei að
leika á píanóið og kom aftur fram á
tónleikum 1951 og fór næstu árin í
reglulegar tónleikaferðir um Banda-
ríkin. Í framhaldinu tók hún upp tíu
plötur hjá útgáfufyrirtækinu Decca.
Árið 1961 gaf hún út kennslubókina
Music at Your Fingertips: Aspects of
Pianoforte Technique sem enn er
notuð til kennslu, en sjálf kenndi hún
um árabil við Southern Illinois-
háskólann. Þegar öllu var skellt í lás
2020 vegna heimsfaraldursins tók
hún upp nokkrar sónötur Beethovens
og deildi á youtube-rás sinni til að
minnast 250 ára afmælis tónskálds-
ins.
Píanisti Ruth Slenczynska.
Fyrrverandi undra-
barn með nýja plötu
- Ruth Slenczynska 97 ára í dag
Sýningin Augnablik af handahófi
verður opnuð í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur í dag og er hún
byggð upp á sjónrænum þáttum
sem safnað er saman úr safneign
Ljósmyndasafns Reykjavíkur og
textum sem fengnir eru úr prent-
uðum ritum, eins og segir í til-
kynningu. Sýningin er þannig
sögð tilbúningur þar sem
sýningarstjórinn Yean Fee Quai
stilli saman raunverulegum ljós-
myndum og ótengdum bókmennt-
um.
Sex og hálf milljón ljósmynda
„Á síðustu 40 árum hefur Ljós-
myndasafn Reykjavíkur safnað
meira en sex og hálfri milljón ljós-
mynda. Í safneigninni eru myndir
teknar af atvinnuljósmyndurum og
áhugamönnum sem hafa náð að
mynda það sem fyrir augu ber,
atburði og uppákomur, fræga
einstaklinga jafnt og alþýðufólk,
venjur, hversdagsleg fyrirbæri og
allt það sem hægt er að ná á
mynd. Safnið fær ljósmyndir og
filmur frá einstaklingum, fyrir-
tækjum og stofnunum, sem berast
í kössum og skjalaskápum og hafa
fyrir löngu fyllt takmarkað
geymslurými þess,“ segir í til-
kynningu.
Samræmi eða ósamræmi
Í tilkynningunni segir einnig að
myndavefur safnsins, sem
aðgengilegur er á heimasíðu Ljós-
myndasafnsins, sé lagður til
grundvallar sýningargerðinni.
„Þegar myndir eru sóttar á
myndavefinn með hjálp ákveðinna
leitarorða, birtast ófyrirséðar
samsetningar ljósmyndaðra
augnablika. Hvert þeirra er ein-
stakur fjársjóður og þau tengjast í
gegnum orð við myndaleit.
Öfugt við myndavefinn, sem
notast við algóritma, var leitað á
gamla mátann að texta til notk-
unar með myndunum – brot úr
textum úr útgefnu efni, sem ýmist
kallast á við, eða renna saman við
sjónrænu frásögnina. Hvort sem
það eru myndirnar sem mynda
samhljóm við textana, eða orðin
sem vísa í myndirnar, kallar þessi
meðvitaða tilraun fram samræmi
eða ósamræmi þarna á milli,“ seg-
ir í tilkynningu.
Sýningin er hluti af Ljósmynda-
hátíð Íslands og má finna dagskrá
hennar á www.tipf.is.
Ljósmynd/Eggert Claessen, úr safni Soffíu Jónassen Claessen (1873-1943)
Sjálfsmynd Ljósmynd tekin um 1900, ungur karlmaður tekur mynd af sjálf-
um sér í spegli. Ungi maðurinn er Eggert Claessen og sennilega tók hann
myndina með myndavél unnustu sinnar og síðar eiginkonu, Soffíu.
Ófyrirséðar samsetningar
ljósmyndaðra augnablika
- Augnablik af handahófi í Ljósmyndasafni Reykjavíkur
Hannah Gutierrez-Reed, umsjónar-
maður skotvopna og skotfæra á
tökustað kvikmyndarinnar Rust,
þar sem leikarinn Alec Baldwin
skaut óvart kvikmyndatökustjór-
ann Halynu Hutchins til bana í
fyrra, hefur höfðað mál gegn fyrir-
tækinu sem útvegaði vopnin og
skotfærin fyrir myndina. Fyrir-
tækið nefnist PDQ Arm & Prop og
eigandi þess er Seth nokkur Kenn-
ey. Í málsókninni er því haldið fram
að kassar sem áttu að innihalda
púðurskot og voru merktir eftir því
hafi einnig innihaldið raunveruleg-
ar byssukúlur.
Á vef The Guardian segir að
Gutierrez-Reed og tökuliðið hafi
treyst því að í kössunum væru
aðeins púðurskot en Baldwin skaut
tveimur skotum að tökustjóranum
og leikstjór-
anum, Joel
Souza. Souza var
fluttur á sjúkra-
hús með skotsár
en Hutchins lést.
Seth Kenney
hafði mánuði
fyrr unnið með
föður Gutierrez-
Reed, Thell
Reed, að annarri kvikmynd í Texas.
Kenney er sagður hafa leyft leik-
urum að skjóta alvöruskotum á
skotsvæði og tekið með sér byssu-
skot þaðan sem mögulega enduðu á
tökustað Rust. Kenney hefur haldið
því fram að þetta hafi hann ekki
gert. Auk þess hafi verið gengið úr
skugga um að skotin á tökustað
Rust væru púðurskot.
Umsjónarmaður skotvopna höfðar mál
Halyna Hutchins
Tónlistarmaðurinn Kanye West er
grunaður um að hafa ráðist á
mann í fyrradag í Los Angeles.
Árásin var gerð að næturlagi en
West var þó ekki handtekinn, að
því er fram kemur í frétt á vef
Variety um málið. Talsmaður lög-
reglunnar segir árásina hafa átt
sér stað klukkan þrjú um nótt,
skammt frá klúbbinum Soho
Warehouse. Vefurinn TMZ greindi
fyrstur frá henni og sagði málið
til rannsóknar sem líkamsárás.
Var þar einnig birt myndband af
West öskrandi
og greinilegt að
hann er að
ásaka einhvern
um ummæli sem
voru honum lítt
að skapi. West
hefur komist í
kast við lögin
áður því hann
réðst á ljós-
myndara á flugvelli árið 2014 og
reyndi að ná af honum myndavél-
inni.
Kanye West grunaður um líkamsárás
Kanye West
Þáttaröðin Svörtu sandar hefur
verið valin sem eitt af sjö verk-
efnum sem frumsýnd verða utan
heimlands síns á kvikmyndahátíð-
inni í Berlín, Berlinale, í febrúar
en umsóknir berast jafnan fyrir
um 200 verkefni ár hvert víða að
úr heiminum. Hátíðin er ein sú
virtasta í heimi og eftirsóttur sýn-
ingavettvangur.
Í umsögn dómnefndar segir um
þáttaröðina að persónusköpun í
henni sé djúp og óvenjulegur snún-
ingur tekinn á hina hefðbundnu
leit að sökudólgi í glæpaseríu með
því að láta persónulegt líf og erfið-
leika persóna vega þyngra en mál-
ið sjálft sem er til rannsóknar.
Áferð þáttanna og náttúrufegurð
Íslands geri
verkefnið líka
einstakt. Þátta-
röðin hefur nú
verið seld til sýn-
inga í Kína,
Ástralíu, Belgíu,
Finnlandi, Hol-
landi og Indlandi
og má búast við
að fleiri lönd
bætist við.
Baldvin Z er leikstjóri þáttanna og
með aðalhlutverk í þeim fara Aldís
Amah Hamilton, Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir, Ævar Þór Bene-
diktsson og Þór Tulinius. Þættirnir
hófu göngu sína á Stöð 2 um jólin í
fyrra.
Þáttaröðin Svörtu sandar á Berlinale
Aldís Amah
Hamilton