Morgunblaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2022 Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Haustið 2018 hóf ljósmyndarinn Einar Falur Ingólfsson skrásetn- ingu sjónrænnar dagbókar sem átti að ná yfir átján mánuði. Með þess- ari dagbók var markmiðið að fanga líf listamannsins og draga fram samspil menningar ólíkra heims- hluta, heimalandsins Íslands og gamalla menningarkjarna í fjar- lægum löndum. Þegar síga fór á seinni hluta tímabilsins skall Covid- -19-heimsfaraldurinn á og mánuð- irnir átján urðu tuttugu því áhrif faraldursins á líf Einars og fjöl- skyldu hans urðu mikilvægur hluti dagbókarinnar. Ljósmyndir úr þessari sjónrænu dagbók má finna á sýningunni Um tíma – Dagbók tuttugu mánaða (About Time – Diary of Twenty Months) sem verður opnuð í dag, laugardaginn 15. janúar, í BERG Contemporary, Klapparstíg. Opið verður á milli kl. 13 og 17 þann dag en sýningin stendur yfir til og með 26. febrúar. Einar Falur hefur nokkrum sinn- um í gegnum tíðina fengist við þetta form, hina sjónrænu dagbók, og skrásett þannig ólík tímabil í lífi sínu. Að þessu sinni leitast ljós- myndarinn við að fanga bakgrunn sinn í íslenskri menningu, samspil heimalandsins og ólíkra menning- arheima, Indlands, Ítalíu og Egyptalands, auk þess sem hann skrásetur þessa miklu umbrotatíma og áhrif breytinganna sem fylgdu heimsfaraldrinum á líf sitt og fjöl- skyldunnar. Varanasi, Róm og Egyptaland Á sýningunni mætast ólíkir menningarheimar enda settu ferða- lög ljósmyndarans svip sinn á dag- bókina. „Hann kaus að starfa í Var- anasi, elstu og helgustu borg Ind- lands þar sem hvarvetna má sjá og skynja þykk lög tímans; í Rómar- borg á Ítalíu, þar sem evrópsk menning miðalda var á margan hátt mótuð, þar á meðal vestræn mynd- list; og í Egyptalandi, þar sem enn fleiri menningarlegar rætur sam- tímans má finna, með endalausum tímalögum,“ segir í kynningartexta um sýninguna. „Á ferðum sínum, jafnt um heimaland sitt sem í hinum lönd- unum þremur, leitaði Einar Falur markvisst í verk margra annarra listamanna, á í samtali við og vísar jafnvel í þau. Í Róm vann hann til að mynda markvisst út frá verkum málarans Caravaggios (1571-1610) og ljósmyndaranna Roberts Turn- bull Macpherson (1814-1872) og Joels Sternfeld (f. 1944).“ Í borginni Varanasi á Indlandi myndaði Einar ungling sem heldur á logandi eldspýtum. Guðmundur Andri Thorsson leggur út af þessari mynd í texta sem hann skrifaði um sýninguna: „Þó að ljósmyndin frysti augnablik og geri það eilíft þá er hún aldrei alveg eins í augum okkar – því að augu okkar eru aldrei alveg eins. Fyrst sýnist okkur að dreng- urinn sé að gefa okkur fokkmerki en þegar við lítum aftur á myndina heldur hann á ljósi. Næst þegar við horfum sjáum við að hann horfir ekki til okkar heldur á ljósið. Þetta er ljós heimsins. Nei þetta er kerti og það á í vændum að slokkna. Nei, þetta eru eldspýtur og brenna hratt. Þetta er eldurinn og strákurinn er Prómeþeifur. Nei hann er æskan og þetta er vonarljósið og hann mun lýsa okkur leið út úr myrkrinu. Hann er lífið sjálft og dauðinn þarna við hliðina á honum. Það er hann alltaf.“ Guðmundur Andri heldur áfram: „Allt býr innra með okkur, allt sem við höfum reynt og séð. Sumarið og veturinn, rjóðrið og berangurinn, hiti og kuldi, mannhaf og einvera, skarkali og þögn. Líf og dauði. Því að tíminn er marglaga hringrás; við göngum um götur í Kolkata með minningu frá Egilsstaðaflugvelli innra með okkur og ökum um Fells- strönd á meðan fyrir hugskots- sjónum blasa tröppur í hofi í Var- anasi. Stundir okkar eru strengir sem óma innra með okkur, stundum einn og einn og hér og nú, stundum allir í senn, stundum í hljómi, þar og þá, stundum mishljóma, hér og þá og þar og nú.“ Á sýningunni kallast á ferðaminn- ingar og íslenskur veruleiki. Hin fjarlægu lönd og innblásturinn það- an speglast í kyrrðinni heima fyrir. Minningar um líflegar og litríkar borgir ylja þegar einveran tekur við, strengirnir halda áfram að óma. Þessi vaggandi kyrrstaða Hengirúm við sumarbústað fjöl- skyldunnar, Skógarsel, varð Einari oft að myndefni þessa tuttugu mán- uði. Þær myndir fanga árstíðaskipt- in og verða að ákveðnum leiðarvísi, jafnvel haldreipi, í gegnum tímabil- ið. „Hengirúmið – þessi vaggandi kyrrstaða – er vettvangur hrað- fleygra hugsana sem þeytast milli hvelfinga í heilabúinu en hugurinn er í hvíld á meðan líkaminn berst áfram hratt í léttivagninum,“ segir í texta Guðmundar Andra. Rjóðrið sem geymir hengirúmið kallar Ein- ar griðastað sinn. Myndirnar tuttugu af griða- staðnum mynda tilkomumikla heild. Vetur, sumar, vor og haust koma saman og gefa til kynna gang tím- ans á meðan myndefnið, rjóðrið, kallar á vissa ró, vissa kyrrstöðu. „Og svo hægir á öllu. Það geisar sótt um veröldina og hlutskipti okk- ar er skyndilega að híma í einangr- un í okkar afmarkaða rými án þess að vita hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Þá er gott að hafa aðgang að öðrum rýmum á öðrum tímum, finna golu á vanga og sól í sinni við það eitt að handleika mynd. Því að tíminn er marglaga hring- rás. Og á meðan stundirnar líða, hægt og skrykkjótt eða geigvænlega hratt, út á hlið og afturábak eða með í rykkjum í allar áttir, en ævinlega þó í áttina að hinum óhjákvæmilegu og innbyggðum endalokum – þá færir lífið okkur hvert undrið af öðru. Við hvert fótmál. Í hverju augnabliki. Séum við reiðubúin að lifa með augun opin,“ skrifar Guð- mundur Andri að lokum. Sýningin Um tíma – Dagbók tutt- ugu mánaða verður sem áður segir opnuð 15. janúar. Jafnframt gefur listamaðurinn út bókverk, sem bæði er á íslensku og ensku. Samhliða því að mynda sjónrænu dagbókina setti Einar Falur hana saman og gaf út, jafnt og þétt, í 14 tölusettum bók- verkum í litlu upplagi. Kjarni þeirra kemur saman í bókinni Um tíma – Dagbók tuttugu mánaða (About Time – Diary of Twenty Months). Tuttugu mánuðir festir á filmu - Sýning á ljósmyndum Einars Fals Ingólfssonar, Um tíma, opnuð í BERG Contemporary í dag - Fangaði tuttugu mánuði af lífi sínu, samspil menningarheima og umbrotatíma í sjónrænni dagbók Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Griðastaður Ljósmyndarinn í BERG Contemporary við myndir sínar af rjóðrinu við sumarbústað fjölskyldunnar. Ljósmynd/Einar Falur Prómeþeifur? Ljósmynd Einars Fals, frá Varanasi á Indlandi. Konurnar sem skipuleggja RVK Feminist Film Festival (RFFF) segjast ekki af baki dottnar þrátt fyrir frestun hátíðarinnar og stöð- una í heimsfaraldrinum og halda í dag, laugardag, pallborðsumræður með nokkrum erlendum kvik- myndagerðarkonum. Þær eru leik- stýrurnar Natalija Avramovic frá Serbíu, Sol Berruezo Pichon Riv- iére frá Argentínu og Uisenma Borchu frá Þýskalandi og Mong- ólíu. „Þær eiga það allar sameig- inlegt að hafa ætlað að sýna kvik- myndir sínar á hátíðinni núna í janúar, en vegna samkomutak- markana hefur hátíðinni verið frestað um óákveðinn tíma,“ segir í tilkynningu. ,,Okkur fannst það að fresta há- tíðinni vera það eina rétta í stöð- unni. Okkur finnst mikilvægt að fleiri geti komið saman og notið þess sem við ætlum að bjóða upp á,“ er haft eftir Sólrúnu Freyju Sen, verkefnastjóra hjá RFFF, en skipuleggjendur hátíðarinnar miða við að 50 megi koma saman og verða nýjar dagsetningar opinber- aðar þegar það er leyfilegt. ,,Eftir að ákvörðun hafði verið tekin um að fresta hátíðinni kom upp sú hugmynd að bjóða leikstýr- unum að koma samt til landsins í boði RFFF og taka þátt í pall- borðsumræð- unum. Natalija, Sol og Uisenma tóku því allar mjög vel og verða í hópi kyn- systra sinna í kvikmyndabrans- anum hér á landi. Þegar slakað hefur verið á sam- komutakmörkunum geta hátíðar- gestir séð kvikmyndirnar The Spring poem eftir Nataliju, Mama mama mama eftir Sol og Don’t look at me that way eftir Uisenmu,“ segir í tilkynningu. Íslenskar kvikmyndagerðarkonur taka einnig þátt í pallborðsumræð- unum, þær Ísold Uggadóttir, Magnea B. Valdimarsdóttir og Helga Rakel Rafnsdóttir og hefjast þær kl. 12. Eftir hlé verða svo pall- borðsumræður kvenkyns framleið- enda um áskoranir í kvikmynda- geiranum vegna heimsfaraldursins og mun Sara Nassim, framleiðandi Dýrsins, taka þátt með Kiddu Rokk frá Polorama og Ragnheiði Erlingsdóttur, framkvæmdastjóra Zik Zak. Í lok dags mun Steven Meyers sitja fyrir svörum en hann mun leiða kvikmyndanám við Listaháskóla Íslands. Mun hann upplýsa viðstadda um fyrirkomulag þess. Í tilkynningu segir að vegna stöðunnar í faraldrinum ætli skipu- leggjendur RFFF ekki að bjóða áhorfendum að mæta á staðinn og þess í stað verði pallborðsumræð- urnar teknar upp í Norræna hús- inu og streymt á öllum helstu miðl- um hátíðarinnar. Frekari upplýsingar má finna á rvkfemfilmfest.is/. Pallborðsumræður RFFF - Leikstýrur sem áttu að sýna kvik- myndir sínar Uisemna Borchu Natalija Avramovic Sol Berruezo Pichon Riviére Þuríður Helga Kristjánsdóttir, framkvæmda- stjóri Menning- arfélags Akur- eyrar, MAK, hefur sagt starfi sínu lausu, að því er fram kemur í tilkynningu. Þur- íður hefur gegnt því starfi í sex ár og segir í tilkynningu að sá tími hafi verið ævintýralegur. „Þegar ég hóf störf var félagið í afar þröngri fjárhagsstöðu og mikil starfsmannavelta. Með samhentu átaki mín og starfsfólks tókst að snúa þessari stöðu við hratt og örugglega,“ er haft eftir Þuríði og að nú sé hugurinn farinn að leita annað. Að sögn formanns MAK, Evu Hrundar Einarsdóttur, verður staða framkvæmdastjóra auglýst í lok mánaðarins. Segir starfi sínu lausu hjá MAK Þuríður Helga Kristjánsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.