Morgunblaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 48
Seigla nefnist sýning sem The Icelandic Love Corporation/ Gjörningaklúbburinn, sem skipaður er myndlistarkon- unum Eirúnu Sigurðardóttur og Jóní Jónsdóttur, opnar í NORR11 á Hverfisgötu 18 í dag milli kl. 14 og 17. Sýningin er á vegum Listvals og stendur til 1. mars. Vegna samkomutakmarkana verða verkin einn- ig aðgengileg á vefnum listval.is. Á sýningunni má sjá annars vegar „einstök nælonsokkabuxnaþrykk þar sem hinn margslungni vísinda- og félagsvefur nælonsins fær að njóta sín í öllum sínum fjölbreytileika og leik- gleði og hins vegar veggverkið Seiglu sem býr yfir aðdáunarverðri aðlögunarhæfni og styrk þar sem fín- legir nælonsokkar mynda eina heild sem inniheldur hnefastórt grjót í hverri tá. Nælonsokkabuxurnar, olíu- litir Gjörningaklúbbsins, koma beint úr iðrum hins kvenlæga veruleika þar sem efniviðurinn, nælonið, býr yfir eiginleikum úthalds, þolgæðis og þrautseigju,“ segir í tilkynningu frá sýningarhaldara. Gjörningaklúbburinn sýnir Seiglu LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 15. DAGUR ÁRSINS 2022 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.268 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Kristján Jónsson íþróttafréttamaður Morgunblaðsins segir í grein um hollenska landsliðið í handknattleik að hann sé mjög forvitinn að sjá hvernig Guðmundur Guð- mundsson landsliðsþjálfari ætli að stöðva hættuleg- ustu leikmenn Hollendinga í leiknum á EM í Búdapest annað kvöld. Erlingur Richardsson hafi unnið frábært starf sem þjálfari hollenska liðsins. »40 Hvernig á að stöðva Hollendinga? ÍÞRÓTTIR MENNING útgáfa hafi viljað gefa bókina út. Bókin fjallar um Fjólu, fimm ára stúlku með fæðuofnæmi. Vandamálið er útskýrt á jákvæðan hátt og lögð áhersla á það sem Fjóla getur gert en ekki það sem henni er bannað að gera. „Ég útskýri alvarleika fæðu- ofnæmis en geri það á jákvæðan hátt og myndirnar eru bjartar og fal- legar. Boðskapurinn er, að þótt ég sé með ofnæmi get ég gert allt það sama og aðrir krakkar og læt það ekki stoppa mig. Þegar ég kynnist nýjum vinum segi ég þeim frá of- næminu. Það er ekki smitandi, þeir þurfa ekki að vera hræddir og við höldum áfram að leika okkur. Eftir matinn þurfa allir að þvo sér vel um hendurnar, það er betra fyrir alla og getur sérstaklega hjálpað hafi ein- hver borðað eitthvað sem hann er með ofnæmi fyrir. Ofnæmi getur verið lífshættulegt en óþarfi er að það skapi hræðslu heldur þarf fólk að læra að lifa með því. Fjóla er til dæmis í fótbolta, fimleikum og úti á róló, tekur með sér nesti í flotta nest- isboxinu sínu og er kát og glöð.“ Harpa Rut segir skemmtilegt og uppörvandi að hafa fengið jákvæð viðbrögð frá ókunnugu fólki. „Fjöl- skylda og vinir eru alltaf til staðar, styðja og hrósa, en mér þykir sér- staklega vænt um að hafa fengið hrós frá öðrum í svipuðum sporum og ég er í. Það er mjög gefandi og skemmtilegt að finna að ég hjálpi öðrum með bókinni.“ Bókin er sniðin að börnum í leik- skóla og börnum í 1.-3. bekk grunn- skólans. „Ég er ótrúlega stolt af bók- inni og það kemur til greina að gefa hana út í öðrum löndum til að fleiri fái notið boðskaparins,“ segir Harpa Rut. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Fyrir nýliðin jól gaf LEÓ bókaútgáfa út barnabókina Fjóla er með ofnæmi. Harpa Rut Hafliðadóttir, höfundur hennar, segir viðtökurnar hafa farið fram úr björtustu vonum og hún hafi í huga að fylgja henni eftir með bók með mataruppskriftum fyrir þá sem eru með ofnæmi. „Söguhetjan Fjóla bakar með mömmu sinni og ein uppskrift er í bókinni en gaman væri að gefa út sérstaka Fjólu-uppskriftabók.“ Hafdís Edda Ragnarsdóttir, eldri dóttir Hörpu Rutar, greindist fyrst með matarofnæmi tveggja mánaða gömul. „Ég var með hana á brjósti og eftir því sem greindum ofnæmis- tilvikum fjölgaði þurfti ég stöðugt að taka fæðu úr mataræði mínu.“ Engar barnabækur á íslensku hafi verið til um efnið og því hafi hún pantað átta erlendar bækur, þegar dóttirin hafi verið þriggja ára, til þess að lesa fyr- ir stúlkuna. „Þessar bækur voru all- ar leiðinlegar, niðurdrepandi og fórnarlambsmiðandi með gráum myndum. Ég má ekki borða kökuna. Ég er svo mikið fórn- arlamb. Og svo fram- vegis. Ég vildi ekki lesa þetta fyrir barnið mitt því hún átti ekki meira bágt en til dæmis börn með gler- augu. Allir þurfa að kljást við eitthvað og mig langaði til þess að lesa fyrir hana eitt- hvað jákvætt og uppbyggjandi en fræðandi um leið. Svo ég ákvað bara að skrifa söguna sjálf, opnaði Word og byrjaði að semja.“ Gefandi að hjálpa öðrum Katla Sóley, yngri dóttirin, var ný- fædd þegar Harpa Rut byrjaði að skrifa í fæðingarorlofinu, en dæt- urnar eru nú þriggja og sjö ára. „Þá hugsaði ég með mér að svona bók gæti líka gagnast öðrum, ræddi hugmyndina við fjölskyldu og vini og boltinn fór að rúlla.“ Parið Hrefna Lind Einarsdóttir, æskuvinkona hennar, og Pétur Stefánsson hafi fallist á að myndskreyta bókina og setja hana upp. Hún hafi fengið styrki frá Astma- og ofnæmisfélag- inu og Góða hirðinum og LEÓ bóka- Gerir út á jákvæðnina - Harpa Rut vill gefa barnabók sína um ofnæmi út erlendis Frá kynningunni Hafdís Edda, Fjóla, Katla Sóley og Harpa Rut.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.