Morgunblaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2022
Óli Björn Kárason, formaður
þingflokks Sjálfstæðisflokks-
ins, fjallaði um ríkisfyrirtæki í
grein sinni í Morgunblaðinu á
miðvikudag. Þar benti hann á að
ríkið er umsvifamikill eigandi
fyrirtækja „sem
mörg eru stór á ís-
lenskan mæli-
kvarða, um-
svifamikil og í
beinni eða óbeinni
samkeppni við
einkaaðila“. Hann
vísaði í þessu sam-
bandi til skýrslu fjármála- og
efnahagsráðuneytisins um þetta
efni þar sem fram komi að ríkið
eigi alfarið eða ráðandi hlut í 42
ríkisfélögum af ýmsu tagi og að
fjöldi stöðugilda væri vel á sjötta
þúsund.
- - -
Óli Björn benti á að ríkið hefði
í „gegnum áratugina sem
betur fer látið af margvíslegri at-
vinnustarfsemi, s.s. skipaútgerð,
sementsverksmiðju, síldarbræðslu
og bókaútgáfu“. Nú þykir sjálf-
sagt að ríkið hafi hætt slíkri
starfsemi, en það þótti ekki sjálf-
sagt á sínum tíma.
- - -
Ýmis starfsemi ríkisins er enn í
samkeppni við einkaaðila og
ýmis ríkisfélög keppa í það
minnsta að hluta til við einkafyr-
irtæki. Ríkisútvarpið er augljóst
dæmi um slíkt fyrirtæki og senni-
lega kemur að því að sá rekstur
mun þykja jafn furðulegur og
bókaútgáfa ríkisins eða skipaút-
gerð.
- - -
Telji ríkið nauðsynlegt að
halda úti ákveðnum þætti af
starfseminni sem óvíst er að
einkaaðilar myndu sinna, svo sem
tiltekinni þáttagerð, þá er einfalt
að bjóða slíka starfsemi út og
greiða einkaaðilum fyrir fram-
leiðsluna. Með því móti mætti
framleiða mun meira efni fyrir
minna fé en nú fer í Rúv.
Óli Björn Kárason
Úrelt ríkisfélög
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Ríkiskaup auglýstu í fyrrahaust eftir hugmyndum
um nýtingu og líklegt söluverðmæti varðskipanna
Týs og Ægis. Þau eru ekki lengur í notkun og
verða seld ef viðunandi boð fást.
Gögn bárust frá tveimur aðilum í skipin. Þetta
staðfestir Sara Lind Guðbergsdóttir, starfandi
forstjóri Ríkiskaupa. Seljendur skipanna, Land-
helgisgæslan og fjármála- og efnahagsráðuneytið,
fara nú yfir innkomin gögn og meta hvort grund-
völlur sé fyrir áframhaldandi samtali. Boðið var
upp á tvær skoðunarferðir í skipin en þátttaka í
þeim var fremur dræm. Sara Lind segir að það
skýrist mögulega af ástandinu í samfélaginu og
árstíma.
Bæði skipin eru smíðuð í Danmörku. Varðskipið
Ægir var smíðað í Álaborg 1968 og er 70,1 metri
að lengd og 10 metrar á breidd. Týr var smíðaður í
Árósum 1975 og er 71,5 metrar að lengd og 10
metrar á breidd. Ægir fór í sína síðustu löggæslu-
og eftirlitsferð um miðin sumarið 2015 og Týr í
nóvember í fyrra. Bæði skipin liggja nú í höfn í
Reykjavík.
Í byrjun árs 2021 gáfu fjögur fyrirtæki sig fram
þegar Ríkiskaup höfðu óskað eftir tilboðum og
góðum hugmyndum um nýtingu Ægis. Meðal hug-
mynda var að nýta skipið fyrir snjóflóðasafn á
Flateyri. Ekkert varð af sölu skipsins í það skiptið.
sisi@mbl.is
Tvö „tilboð“ bárust í Tý og Ægi
Morgunblaðið/G.Rúnar
Til sölu Týr og Ægir hafa lokið þjónustu sinni.
Reykjavíkurborg, í samvinnu við
Arkitektafélag Íslands, hefur á vefn-
um utbodsvefur.is óskað eftir um-
sóknum arkitekta/hönnunarteyma
um þátttöku í hönnunarsamkeppni
vegna breytinga og endurbóta á
Grófarhúsi við Tryggvagötu.
Í húsinu eru nú Borgarbókasafn-
ið, Ljósmyndasafn Reykjavíkur og
Borgarskjalasafn. Húsið var upphaf-
lega byggt 1931 sem vörugeymsla
fyrir skipadeild SÍS eftir teikn-
ingum Guðjóns Samúelssonar. Árið
1995 var það klætt með lituðum stál-
plötum.
Samkeppnin nær yfir endurbætur
á ytra byrði hússins, þar sem borgin
óskar eftir að færa bygginguna nær
upprunalegu útliti, breytingar á
innra skipulagi og innréttingum í
núverandi byggingu bókasafnsins og
innra skipulagi viðbyggingar. Að
auki nær hún til mögulegra lausna á
aðkomu og aðstöðu við húsið.
Gert er ráð fyrir því að Borgar-
skjalasafn verði flutt á nýjan stað.
Könnunarviðræður hafa staðið yfir
við Framkvæmdasýslu ríkisins um
hugsanlega sameiginlega byggingu
fyrir Þjóðskjalasafn og Borgar-
skjalasafn.
Um er að ræða hönnunarsam-
keppni með forvali. Öllum er frjáls
þátttaka í forvalinu og markmið
samkeppninnar er að fá bæði reynd
og reynsluminni hönnunarteymi til
að koma með áhugaverðar tillögur
að hönnun framtíðarbókasafns mið-
borgarinnar, segir í lýsingu á sam-
keppninni. Fimm teymi verða valin í
forvalinu og boðið að taka þátt í
samkeppninni. Þau fá hvert um sig
5.000.000 kr. án vsk. til að vinna til-
lögur fyrir samkeppnina.
Umsóknum skal skila inn eigi síð-
ar en á hádegi 10. febrúar nk.
sisi@mbl.is
Grófarhús fært nær
upprunalegu útliti
- Reykjavíkurborg
hefur auglýst hönn-
unarsamkeppni
Morgunblaðið/sisi
Grófarhús Þar er að finna aðsetur
nokkurra safna Reykjavíkurborgar.