Morgunblaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2022 E60 Íslensk hönnun og framleiðsla frá 1960 Mikið úrval lita bæði á áklæði og grind. Sérsmíðum allt eftir pöntunum. Stóll E60 orginal kr. 44.100 Retro borð 90 cm kr. 163.300 (eins og á mynd) Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is É g hef teiknað frá því ég man eftir mér. Nánast einvörðungu hesta árum saman, en ég prófaði reyndar að teikna götu- og húsa- myndir þegar ég var unglingur í Frakklandi,“ segir Sigríður Ævars- dóttir, eða Sigga eins og hún er alltaf kölluð, en hún tekur að sér að teikna myndir af dýrum fyrir þá sem þess óska. ,,Ég fór svo að prófa að teikna og mála kindur og geitur fyrir ein- hverjum árum þegar ég málaði póstkort fyrir hana Jóhönnu geita- bónda á Háafelli til að selja í búð- inni sinni. Upp úr þessu fór ég að leika mér að því að mála forystu- hrútana mína og þá uppgötvaði ég hversu gaman er að mála sauðfé, eitthvað sem ég hafði aldrei látið mér detta í hug. Ótrúlegt hvað verður úr kindum þegar maður tek- ur þær út úr hópnum og laðar fram þeirra séreinkenni og smáatriði,“ segir Sigga og bætir við að ekki sitji kindurnar fyrir hjá henni. ,,Ég teikna og mála eftir ljós- myndum, enda hef ég aldrei tekið þetta alvarlega eða litið á mig sem myndlistarmann. Þegar ég var í MH tók ég alla myndlistaráfanga sem voru í boði og prófaði síðar að fara á námskeið hjá Myndlistar- skólanum, en mér fannst það svo leiðinlegt að ég hætti,“ segir Sigga og hlær. ,,Ég hef bara gert þetta eins og mér sýnist, eins og mig langar að gera þetta. Fyrst og fremst hef ég teiknað með blýanti, hef aðeins prófað kol og sneri mér svo að vatnslitunum eftir að ég fattaði þá. Í fjölda ára, á meðan krakkarnir voru litlir og enginn tími eða að- staða, þá sinnti ég þessu ekkert. Fyrir þremur árum fór ég að fikta við þetta aftur. Ég er með geitur og forystufé og býð upp á afþrey- ingu í kringum það, það er að segja geitalabb á sumrin, og þá fór ég að mála þau. Ég leitaði ráða hjá vini mínum, Bjarna Þór listamálara, spurði hann hvernig ég ætti að bera mig að. Hann var ekkert að flækja þetta og sagði mér að nota bara nógu stóran pensil og mikið vatn. Ég hef ekki náð að fylgja því ráði, var búin að koma mér upp að- ferð þar sem ég jafnvel nota minnsta mögulega pensilinn og óskaplega lítið vatn. En ég er bara sátt við útkomuna.“ Fékk kartöflur í staðinn Sigga segir ástæðu þess að hún fór aftur af stað að mála núna fyrst og fremst vera vegna bókar sem hún og maður hennar, Bene- dikt Líndal, gáfu saman út fyrir jól- in og heitir Tölum um hesta. ,,Ég málaði þær myndir sem prýða bókina og til að fylgja henni eftir þá bauð ég hestamyndirnar úr henni til sölu. Í leiðinni bauð ég fram krafta mína, ef fólk vildi láta mig mála fyrir sig myndir af sínum hestum. Það þróaðist svo út í að mála önnur dýr, kindur, geitur, hrúta, hunda, ketti og fugla, hvaða dýr sem er,“ segir Sigga og bætir við að hún leggi mest upp úr því að ná augunum réttum þegar hún teiknar eða málar skepnu. „Öllu máli skiptir að augun séu eins og þau eru á fyrirmyndinni, að það séu þessi ákveðnu augu en ekki einhver önnur. Augun verða ein- hvers konar miðja sem ég get svo leikið mér í kringum.“ Stundum gerir Sigga skemmti- leg skipti, hún málaði t.d. mynd af fagurlega ferhyrndum hrúti sveit- unga síns sem lét hana fá kartöflur í staðinn. ,,Þetta var uppáhaldshrútur frá Snartarstöðum í Lundarreykjadal, hann hét Himpigimpi, af því hann hagaði sér alla tíð mjög furðulega. Þetta eru merkilegar skepnur, líka í ljósi nýlegra frétta þar sem fannst ónæmi gegn riðu í ferhyrndri kind. Margir hafa litið á ferhyrnt fé sem gallað fé, en í fjölbreytileikanum felast tækifæri og þar geta verið eftirsóknaverðir eiginleikar sem við töpum ef við ræktum hann í burtu og einsleitnin ræður ríkjum. En ég mundi ekkert vilja láta svona hrút hlaupa á mig, hann gæti rekið mann í gegn með hornunum,“ segir Sigga og hlær. Sigga er mikið fyrir skepnur, hún heldur hesta, geitur og for- ystufé. Hún segir nauðsynlegt að hafa tilfinningu fyrir dýrinu ef það á að skila sér sannfærandi á blað. ,,Sumir horfa á hóp af hestum með sama hætti og margir horfa á hóp af hvítum kindum, finnst allir eins, en ef þú ert skepnumanneskja þá sérðu að hver einasti einstakl- ingur hefur sína sérstöðu og ég reyni að fanga hana í myndunum.“ Ferhyrntur Þessi hrútur heitir Himpigimpi. Fagur fákur Sigga er lagin að teikna hesta.Hundur Sigga teiknar hvaða dýr sem er. Tilfinning fyrir dýrinu nauðsynleg Sigríður Ævarsdóttir tek- ur að sér að teikna mynd- ir af dýrum fyrir þá sem þess óska, hesta, kindur, geitur, hrúta, hunda, ketti og fugla, hvaða dýr sem er. ,,Ég fór að leika mér að því að mála for- ystuhrútana mína og þá uppgötvaði ég hversu gaman er að mála sauðfé,“ segir Sigga. Listakona Sigga einbeitt við vinnu sína að teikna mynd af krumma. Bæjarblaðið Mosfellingur stóð nýlega í sautjánda sinn fyrir vali á Mosfell- ingi ársins. Í ár er það hvunndagshetjan Elva Björg Pálsdóttir, for- stöðumaður félagsstarfs eldri borgara í Mos- fellsbæ, sem er Mosfell- ingur ársins 2021. ,,Ég vil tileinka öllum eldri borg- urum í Mosfellsbæ þessa viðurkenningu,“ segir hún þegar hún fréttir að und- irskriftalistar hafi gengið manna á milli með áskor- un um að velja hana Mos- felling ársins. „Ég finn fyrir þakklæti í mínu starfi á hverjum degi og það eru sannkölluð for- réttindi að vinna með eldri borgurum. Hjá okkur er gleði alla daga og á bak við hvert andlit býr svo mikil saga sem gam- an er að fræðast um. Það er ekki sjálfgefið að vinna við það sem gefur manni svona mikið í lífinu. Mitt starf er fólgið í því að vera eldra fólkinu innan handar enda er ég fyrst og fremst að vinna fyrir þau. Þau eiga jafnan frumkvæðið að því sem þau vilja gera og í sameiningu setjum við upp skemmtilega dagskrá. Það er auðvitað krefjandi á tímum Covid að halda starfseminni gangandi en við höfum náð að halda okkar striki ótrúlega vel í gegnum þetta allt sam- an. Stjórnvöld eru líka búin að greina það að mikilvægara sé að halda úti starfsemi þessa aldurshóps en að setja á frost. Tómstundir eru ekki bara fyrir fólk sem vill sitja og prjóna. Það er svo margt hægt að gera og öll viljum við verða gömul og búa vel í haginn fyrir okkur.“ Elva Björg valin Mosfellingur ársins Ánægð Elva Björg tekur við viðurkenningu úr höndum Hilmars Gunnarssonar, ritstjóra Mosfell- ings. Styttan er eftir Þóru Sigurþórsdóttur. Ljósmynd/Raggi Óla Finnst sannkölluð forréttindi að vinna með eldri borgurum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.