Morgunblaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 15.01.2022, Blaðsíða 19
Árlegur hátíðisdagur í trúarbrögðum hindúa á Indlandi, makar sankranti, sem svo er nefnd- ur, var haldinn í gær. Tugþúsundum saman flykktust sanntrúaðir hindúar að ánni Ganges og böðuðu sig þar í samræmi við aldagamlar hefðir. Á þessum degi er haldið upp á hækk- andi sól og vetur kvaddur og sólguðinum þakkað fyrir hlýja geisla. Mismunandi er þó eftir landshlutum á Indlandi hvernig deginum er fagnað. Í Gujarat og Maharashtra setja lit- ríkir flugdrekar svip sinn á daginn þar sem jafnt ungir sem aldnir taka þátt í flugdreka- leikjum. Í Punjab safnast fólk saman við stóran varðeld og hendir sælgæti, sykurreyr og hrís á eldinn samkvæmt því sem lesa má á íslenska trúarbragðavefnum. Makar sankranti, árleg trúarhátíð hindúa, haldin á Indlandi Baða sig og fagna hækkandi sól AFP FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2022 Öflug netárás var í gær gerð á vefsíð- ur og tölvukerfi margra mikil- vægustu stofnana og ráðuneyta Úkraínu. Lágu margir opinberir vefir niðri eftir árásina. Bandaríkjamenn lýstu því yfir í gærkvöldi að þeir hefðu heimildir um að Rússar væru að undirbúa skemmdarverk til þess að gefa þeim átyllu til að ráðast inn í Úkraínu. Stjórnvöld segja að svo virðist sem hökkurunum hafi ekki tekist að kom- ast yfir persónuleg gögn eða eyði- leggja kerfin. Hið gagnstæða var þó fullyrt í orðsendingu sem hakkararn- ir skildu eftir á vef utanríkisráðu- neytisins í gærmorgun, en þar sagði að öllum þjóðskrárgögnum landsins hefði verið eytt og upplýsingar sem náðst hefðu yrðu birtar opinberlega. Líklega frá Rússlandi „Búið ykkur nú undir það versta og verið óttaslegin!“ sagði í orðsending- unni. Ekki er ólíklegt að hakkararnir séu frá Rússlandi eða hafi notið að- stoðar þaðan. Mjög mikil spenna er í samskiptum Úkraínu og Rússlands og óttast stórnvöld í Kænugarði að Rússar hyggist ráðast inn í landið á hverri stundu. Evrópusambandið hefur fordæmt árásina og sagði Josep Borrell, utanríkismálastjóri þess, að Úkraínumenn fengju alla nauðsyn- lega aðstoð netöryggissveita ESB vegna málsins. Borell sagði að ekki væri hægt að fullyrða hver stæði að baki árásinni, en auðvelt væri að geta sér til um hverjir hefðu verið að verki. Margar árásir undanfarið Hakkarar, sem njóta verndar stjórnar Pútíns í Rússlandi, hafa margsinnis gert netárásir á Úkraínu en aldrei jafn alvarlega og viðamikla og nú. Viðræður vesturveldanna og Rússlandsstjórnar um málefni Úkra- ínu undanfarna daga hafa engum árangri skilað og er talið líklegt að árásin tengist því. Jen Psaki, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, sagði svo síðar um daginn, að Bandaríkjamenn hefðu fengið vitn- eskju um að Rússar hefðu þegar sent skemmdarverkamenn til Úkraínu, sem hefðu það hlutverk að valda usla í austurhluta landsins, þar sem rúss- neskumælandi aðskilnaðarsinnar fara með völd. Rússar neituðu þeim ásökunum. AFP Spenna Úkraínskir hermenn sjást hér á heræfingu vegna stríðshættunnar. „Búið ykkur nú undir það versta“ - Öflug netárás gerð á Úkraínu - Bitnaði á mörgum mikilvægum stofnunum Óvissa ríkti í gær um þátttöku serbnesku tennis- stjörnunnar No- vaks Djokovic á opna ástralska mótinu í Mel- bourne, sem hefst á mánudag- inn, eftir að ríkis- stjórn landsins ógilti landvistarleyfi hans. Ákvörðuninni hefur verið vís- að til dómara og er úrskurðar að vænta mjög fljótlega. Þegar Djokovic kom til landsins í síðustu viku var honum tilkynnt að hann gæti ekki haldið ferðinni áfram þar sem hann uppfyllti ekki skilyrði stjórnvalda um bólusetn- ingu við kórónuveirunni. Djokovic flaggaði hins vegar jákvæðu PCR- prófi frá því í desember og sagðist vera laus við veiruna og fékk stuðn- ing dómara við það sjónarmið sem ríkisstjórnin hefur nú ógilt og segir að enginn mannamunur verði gerð- ur hvað sóttvarnareglur áhrærir. ÁSTRALÍA Óvissa um þátttöku Djokovic á mótinu Novak Djokovic Einn drukknaði en þrjátíu var bjargað þegar bátur með flótta- fólk innanborðs fékk á sig brotsjó í Ermarsundi, skammt undan strönd Frakk- lands í gær. Fólk- ið var að reyna að komast til Bretlands að því er frönsk stjórn- völd segja. Hinn látni var um tví- tugt með súdanskt ríkisfang. Á síðasta ári komust um 28 þús- und flóttamenn Ermarsundsleiðina til Bretlands og hafa aldrei verið fleiri. Mikil spenna ríkir í sam- skiptum Breta við Frakka af þess- um sökum. Seint í nóvember drukknuðu 27 flóttamenn við til- raun til að komast yfir Ermar- sundið til Bretlands. Glæpagengi í Frakklandi aðstoða flóttafólkið og taka háar greiðslur fyrir það. ERMARSUND Einn drukknaði en 30 var bjargað Flóttafólk kemur til Bretlands. Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Breska forsætisráðuneytið sendi í gær frá sér afsökunarbeiðni til Elísabetar 2. Englandsdrottningar, eftir að þarlendir fjölmiðlar greindu frá því að ráðuneytið hefði staðið fyr- ir tvennum mismunandi veisluhöld- um hinn 16. apríl í fyrra, kvöldið áður en útför Filippusar, hertoga af Edin- borg, fór fram. Daily Telegraph greindi fyrst frá málinu, en í frétt blaðsins kom fram að veislurnar tvær voru til heiðurs tveimur starfsmönnum ráðuneytis- ins sem voru að halda til annarra starfa. Stóð gleðskapurinn yfir í báð- um veislum fram undir morgun, á sama tíma og þjóðarsorg hafði verið lýst yfir og strangar samkomutak- markanir voru í gildi. Talsmaður forsætisráðherra sagði að það væri „mjög eftirsjárvert“ að veislurnar hefðu farið fram meðan þjóðin syrgði Filippus, og því hefði ráðuneytið sent frá sér afsökunar- beiðni beint til drottningarinnar. Boris Johnson forsætisráðherra mun þó ekki hafa afhent beiðnina, en hann mætti í hvorugan gleðskapinn. Ekki er vitað hvort hann hafi vitað af því að það stæði til að halda veisl- urnar tvær. Fimm lýst yfir vantrausti Mikill þrýstingur hefur verið á Johnson að segja af sér embætti, eft- ir að í ljós kom að hann sótti veislu, sem haldin var í garði Downing- strætis 10 í maí 2020, en hann sagði í fyrirspurnatíma breska þingsins, að hann hefði talið að um vinnutengdan atburð væri að ræða. Fleiri veisluhöld í forsætisráðu- neytinu hafa vakið athygli breskra fjölmiðla, og hafa nú að minnsta kosti fimm af þingmönnum Íhalds- flokksins lýst yfir vantrausti á John- son. Ákveði 49 þingmenn flokksins til viðbótar að gera hið sama þarf að efna til leiðtogakjörs í flokknum. Biðja Elísabetu afsökunar - Starfslið forsætisráðuneytisins hélt tvö mismunandi teiti kvöldið fyrir útför Filippusar - Ekki vitað hvort Johnson vissi af veislunum - Hitnar undir honum AFP Útförin Einungis 30 manns máttu mæta í útför Filippusar vegna Covid-19.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.