Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 29.01.2022, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.01.2022, Blaðsíða 1
Áttræðurskýjum ofar Skopmynd-in á að bíta Fá dæmi, ef nokkur, eru um að menn séu með atvinnuflugmannsréttindi og að skrifa út nemendur áttræðir eins og Hallgrímur Jónsson, Moni, á Akureyri. Flugið greip hann heljartökum í æsku enda voru flugkapparnir nyrðra ígildi Hollywoodstjarna. Moni er hvergi nærri hættur að fljúga enda aldrei of seint að taka framförum í þessu lífi. 12 30. JANÚAR 2022SUNNUDAGUR Höfum misstbörn úr Covid Björn HeimirÖnundarsoner nýr skop-myndateiknariSunnudags-blaðsins. 6 og 8 Innri og ytri bataganga Tolli Morthens og ArnarHauksson fóru á fjalliðAconcagua í Argentínutil að safna fé fyrirBatahús. Ferðin reyndiverulega á andleganstyrk þeirra en þeir erunú komnir heimreynslunni ríkari. 20 Barnagjörgæslulæknirinn Ásdís Finnsdóttir Wagner sér umveikustu börnin í Kansas City. 8L A U G A R D A G U R 2 9. J A N Ú A R 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 24. tölublað . 110. árgangur . HEKLA · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · hekla.is/mitsubishisalur Tryggðu þér nýjan tengiltvinnbíl á frábæru verði, frá aðeins 5.970.000 kr. til afhendingar strax. Komdu í heimsókn og prufukeyrðu Eclipse Cross. Mitsubishi Eclipse Cross PHEV Nýja ljósið í skammdeginu Til afhendingar strax ! ÞÝÐINGAR- MIKILL FYRIR LISTASÖGUNA HEFUR SINNT UM 1.300 KÖTTUM KISUKOT 2BIRGIR ANDRÉSSON 34 Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Verðbólga hefur ekki mælst hærri hér á landi síðan í apríl 2012. Þetta staðfestir nýjasta mæling Hagstof- unnar. Á sama tíma og fasteigna- markaðurinn knýr hækkanahrinu sem staðið hefur sleitulaust síðan í janúar í fyrra bendir margt til þess að enn meiri verðhækkanir séu í spil- unum. Ein stærsta heildsala landsins, Danól, tilkynnti viðskiptavinum sín- um í fyrradag að sykur myndi frá næstu mánaðamótum hækka um 12%. Ástæðan er sögð mikil hækkun á heimsmarkaðsverði sykurs. Fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins staðfest- ir að meðalverð fyrirtækisins á sykri hafi hækkað um 26% frá því í janúar í fyrra en að fyrirtækið geri allt sem í þess valdi stendur til þess að stilla hækkunum í hóf. Hið sama segir framkvæmdastjóri Nathan & Olsen, sem einnig flytur inn mikið magn sykurs. Allra leiða sé leitað til að hagræða við innkaup en lítt verði við stöðuna ráðið. Sömu sögu sé að segja af mörgum innflutn- ingsvörum, ekki síst þeim sem teng- ist hrávöruframleiðslu líkt og sykur. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands mun tilkynna um vaxta- ákvörðun sína 9. febrúar næstkom- andi en þá verða 12 vikur liðnar frá síðustu ákvörðun. Þegar nefndin til- kynnti 17. nóvember síðastliðinn að meginvextir bankans skyldu vera 2% stóð verðbólga í 4,5%, þ.e. 1,2 pró- sentustigum undir núverandi verð- bólgumælingu. Í nýrri skýrslu Jak- obsson Capital kemur fram að ef vextir hækka á komandi mánuðum og krónan styrkist, sem margt bend- ir til að muni gerast, taki ferðaþjón- ustan flugið, verði húsnæðisverð hátt, jafnvel í samanburði við „olíu- borgir“ Noregs. Gríðarlegar hækkanir - Danól hækkar verð á sykri um 12% - Verðbólga ekki verið hærri síðan í apríl 2012 - Húsnæðisverð hækkar og hækkar MVerðhækkanir … »11 og 16 Öllum sóttvarnaráðstöfunum verður aflétt um miðjan mars, gangi vænt- ingar um þróun faraldursins og stöðu heilbrigðiskerfisins eftir. Ný reglugerð heilbrigðisráðherra tók gildi á miðnætti. Auk þess tilkynnti ríkisstjórnin sex til átta vikna aflétt- ingaáætlun. Náist hjarðónæmi eftir tæpa tvo mánuði marki það endalok faraldursins hér á landi. »4 Morgunblaðið/Eggert Frelsi Öllum sóttvarnaráðstöfunum verður aflétt á sex til átta vikum. Sjáum fram á frelsi í mars Flugmaðurinn Hallgrímur Jónsson, gjarnan kallaður Moni, er enn með annan fótinn skýjum ofar og með gilt atvinnuflugmannsskírteini – sem hlýtur að vera einsdæmi hér á landi en hann verður áttræður eftir rúma viku. „Ég þori ekki að fullyrða um það,“ segir Moni, „en læknirinn sem skoðaði mig síðast kvaðst ekki þekkja annað dæmi. Páll vinur minn Halldórsson í Reykjavík er tveimur dögum yngri en ég en hann þyrfti að þreyta próf hjá mér til að endurnýja flugmannsskírteinið sitt.“ Það líst honum víst ekkert á. „Þegar Palli frétti það sagði hann: Nei, þá er ég frekar hættur að fljúga!“ Ítarlega er rætt við Mona í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Morgunblaðið/Árni Sæberg Enn að Moni kennir enn þá flug. Áttræður atvinnu- flugmaður Íslenska karlalandsliðið í handknattleik mátti sætta sig við sjötta sætið á Evrópumótinu í Búda- pest eftir ósigur í framlengdum spennutrylli gegn Norðmönnum í gær, 33:34, þar sem úrslitin réðust á síðustu sekúndu framlengingar. Óhætt er að segja að íslensku leikmennirnir hafi gefið allt sitt í leikinn eins og aðra á mótinu en aldrei var hægt að stilla upp sterkasta liðinu í síðustu fimm leikjunum. »32-33 Ljósmynd/Szilvia Micheller GÁFU ALLT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.