Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 29.01.2022, Síða 2

Morgunblaðið - 29.01.2022, Síða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2022 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Þórður Tómasson, safnvörður í Skógum undir Eyjafjöllum, er látinn, 100 ára að aldri. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Suðurlands á Selfossi sl. fimmtudag, 27. janúar. Þórður var fæddur 28. apríl 1921, sonur Tómasar Þórðar- sonar (1886-1976) og Kristínar Magnús- dóttur (1887-1975) bænda í Vallnatúni undir Vestur- Eyjafjöllum. Þórður, sem var ann- ar í aldursröð fjögurra systkina, hóf sem unglingur að safna munum og minjum; verkfærum og öðrum grip- um úr bændasamfélaginu. Eftir utanskólalestur lauk Þórður gagnfræðaprófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1941 en sneri þá á heimaslóð. Byggðasafnið í Skógum var sett á laggirnar árið 1949, sama ár og starfsemi Héraðs- skólans í Skógum hófst. Í nóvember umrætt ár flutti Þórður muni þá sem hann hafði safnað heima í Vallnatúni að Skógum, en fyrsta sýning byggðasafnsins var í kjallara þá ný- reistrar skólabyggingar. Þórður var safnvörður Byggða- safnsins í Skógum frá stofnun þess og starfaði þar vel fram á 21. öldina. Var líf og sálin í starfi safnsins; leið- sagði gestum sem komu víða frá í veröldinni en Þórður var sjálfmenntaður, mæltur á mörg tungu- mál. Fyrsta safnahúsið í Skógum var reist 1954-1955 en í dag eru hús Skógasafns alls fimmtán. Þar eru tugir þúsunda muna, sem sýna vel breytingar á verkháttum á Íslandi á 20. öld og þróun ís- lenskrar menningar yfir langan tíma. Á síð- ari áratugum hefur í Skógum verið lögð áhersla á að safna og sýna minjar sem tengjast sam- göngum, svo sem vegagerð, fjar- skiptum og slíku. Þórður var organisti kirkju undir Eyjafjöllum og sinnti auk þess trún- aðarstörfum í héraði. Eftir hann liggja fjöldamörg rit um söguleg efni. Á aldarafmæli sínu sendi hann frá sér bókina Stóraborg, staður mannlífs og menningar. Þar segir frá Stóruborg undir Eyjafjöllum, en úr bæjarhólnum þar sem brimaði á bjargaði Þórður fjölda merkra muna. Þórður var ókvæntur og barnlaus, en hélt heimili í Skógum með Guð- rúnu systur sinni og fjölskyldu hennar. Útför Þórðar fer fram í kyrrþey, að hans eigin ósk. Jarðsett verður í Ásólfsskála undir Vestur- Eyjafjöllum. Andlát Þórður Tómasson GOLF Á TENERIFE Í FEBRÚAR ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 GOLF@UU.IS ÆFÐU SVEIFLUNA Í SÓL Spilaðu 18 holur á hverjum degi ef þér svo sýnist á glæsliega golfvellinum Las Americas á Tenerife. Eins getur þú spilað golf á komu- og brottfarardegi, enda innifalið í þessum golfferðum. Gist er á Hótel Gara Suites sem er 4 stjörnu íbúðahótel á Playa de las Americas sem er staðsett alveg við Las Americas golfvöllinn. Umhverfið í hótelinu er notalegt, tvær sundlaugar í garðinum. Þú ræður svo lengdinni á þinni golfferð til Tenerife. INNIFALIÐ Í EL PLANTIO FERÐUNUM BEINT FLUG GISTING Á GARA SUITES 18 HOLUR Á HVERJUM DEGI INNRITUÐ TASKA 20 KG OG HANDFARANGUR FLUTNINGUR Á GOLFSETTI ÍSLENSK FARARSTJÓRN GOLFTÍÐIN HEFST NÚNA! ÞÚ VELUR LENGDINA Á ÞINNI FERÐ VERÐDÆMI FRÁ 199.900 KR. Á MANN M.V. 4 FULLORÐNA Í 5 DAGA FERÐ 9. - 14. FEBRÚAR ERTU MEÐ HÓP?SENDU OKKUR PÓST ÁHOPAR@UU.IS Fyrsta þota Icelandair í nýjum bún- ingi lenti í myrkri um klukkan 18 í gærkvöldi á Reykjavíkurflugvelli. Með nýju litaþema vill Icelandair koma anda Íslands á framfæri. „Þar sem við eyðum umtals- verðum tíma fljúgandi um loftin blá, lá beinast við að horfa til himins og landsins úr lofti þegar velja átti nýja liti, meðal annars til norðurljós- anna,“ segir á heimasíðu félagsins um hið nýja útlit vélanna. Allar vélar flotans munu skarta nýju útliti bráð- lega. Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 2006 sem útliti þeirra er breytt. Vél- in á myndinni er TF-ICE af gerðinni Boeing 737 MAX 8. Flaug hún til landsins frá Norwich í Bretlandi. Litirnir í stélum vélanna verða fimm. karitas@mbl.is Búninga- skipti hjá Icelandair Morgunblaðið/Árni Sæberg Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri „Það má segja að undanfarin tíu ár hafi verið gefandi en líka afskaplega krefjandi og oft og tíðum mjög erfið. Þetta er ekki allt eintóm gleði og kettlingaknús, þessu fylgir margt sem erfitt er að takast á við,“ segir Ragnheiður Gunnarsdóttir sem stýrir starfsemi Kisukots á Akureyri. Tíu ár eru í dag, 29. janúar, frá því hún hóf starfsemina á heimili sínu sem hún hefur aðlagað starfseminni. Á þeim áratug sem liðinn er hefur hún tekið á móti um 1.300 köttum, hlúð að þeim og komið þeim inn á heimili. Ragnheiður segir að erfiðast sé að fá inn til sín illa farna ketti eða veika ketti og það sé æv- inlega svo að ekki sé hægt að bjarga öllum þótt reynt sé til hins ýtrasta. „Það tekur virkilega á í hvert einasta sinn sem ekki tekst að bjarga einhverri kisunni. Það hafa ófá tárin fallið yfir örlögum þeirra. En vissulega eru gleðistund- irnar margar og sem betur fer komast flestir kettirnir á góð heimili þar sem vel er hugsað um þá og þeir fá að blómstra. Það er alltaf ynd- islegt að fá fréttir af þessum köttum og sjá hve vel fer um þá. Þær kisur sem haft hafa við- komu hér hjá mér eiga alltaf hluta af hjarta mínu,“ segir Ragnheiður. Þetta vatt upp á sig Hún hefur alla tíð verið mikill kattavinur. Fyrir áratug var mikið um villiketti á Akur- eyri, þeir héldu sig í kringum bryggjur niðri við sjó og víðar. Á árinu 2011 tók gildi ný reglugerð um kattahald í höfuðstað Norður- lands en samkvæmt henni átti að skrá ketti, greiða gjald og eins var sett hámark, þrír kett- ir á hvert heimili. Ragnheiður og Arna Ein- arsdóttir vinkona hennar fóru iðulega á þess- um tíma um og gáfu villiköttum að éta, fönguðu þá og létu gelda. „Ég tók stundum með mér kettlinga sem voru í reiðileysi á bryggjunum og þannig fór þessi starfsemi mín af stað. Þetta vatt upp á sig án þess að ég væri með sérstök áform í þá átt, fólk heyrði af þessu og leitaði gjarnan til mín eftir aðstoð við að koma köttum fyrir á nýjum heimilum. Og ég er enn að, tíu árum síðar,“ segir Ragnheiður sem alla tíð hefur sinnt þessum málaflokki af hug- sjón og í sjálfboðavinnu. Hún nefnir að aldrei hafi staðið til að vera með kettina heima hjá sér svona lengi. „Það er löngu kominn tími til að finna aðra húsnæðis- lausn og ég er þegar farin að huga að því.“ Að jafnaði koma um 100 til 150 kettir á ári í Kisukot og dvelja í lengri eða skemmri tíma. Auk kattanna hefur Ragnheiður einnig tekið á móti margs konar gæludýrum öðrum, fuglum, hömstrum, naggrísum og kanínum. Kisukot hefur um árabil unnið ötullega að málefnum er snerta ketti í bæjarfélaginu, en Ragnheiður segist aldrei hafa fengið styrki frá bænum. Allir kettirnir eiga hluta af hjarta mínu - Ragnheiður Gunnarsdóttir stýrir starfsemi Kisukots á Akureyri sem er 10 ára í dag - Hefur tekið á móti um 1.300 köttum á áratug - Margar góðar stundir - Þarf að huga að lausn á húsnæðismálum Kattavinur Ragnheiður með skjólstæðinga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.