Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 29.01.2022, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 29.01.2022, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2022 ALLT ALMENNT HÚSAVIÐHALD OG JARÐVINNA SMÍÐAVINNA • MÚRVINNA • MÁLNINGARVINNA DRENLAGNIR • HELLULAGNIR ÞJÓNUSTUM EINSTAKLINGA, HÚSFÉLÖG OG FYRIRTÆKI faglist@faglist.is Afsláttætti líkur eftir helgi 20% Afsláttur Sleepy.is - Ármúli 17 - s:620 7200 SÍÐASTI SÉNS! Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Innkaupa- og framkvæmdaráð Reykjavíkurborgar ákvað á síðasta fundi sínum að taka tilboði lægst- bjóðanda, Rafal ehf. að upphæð tæp- ar 75 milljónir króna, í vinnu við uppsetningu lýsingar og við- burðabúnaðar í Laugardalshöll. Elsti hluti Laugardalshallar hefur verið lokaður sem íþrótta- og við- burðahús síðan 11. nóvember 2020. Þá varð heitavatnsleki sem eyðilagði parketgólfið. Leggja þurfti nýtt parket og sú ákvörðun var tekin að nota tækifærið og setja upp lýsingu sem uppfyllir nútímakröfur við íþróttakeppni og notkun hússins sem fjölnota húss. Verkið hefur dregist von úr viti vegna þess að út- boð hafa verið kærð, tilboð voru svo há að þeim var hafnað af borginni eða hvort tveggja. Keppni og æfing- ar hafa ekki verið í húsinu vel á ann- að ár sem hefur verið bagalegt fyrir þau íþróttafélög og landslið sem þar hafa æft og keppt. Þetta nýjasta útboð var það síð- asta og því ekkert sem stendur í vegi fyrir því að klára verkið. „Þetta er mikil hamingja fyrir alla,“ segir Birgir Bárðarson, framkvæmda- stjóri Íþrótta- og sýningarhall- arinnar ehf., sem rekur Laugardals- höllina. Birgir segir að verktakinn sé byrjaður að koma með tæki og tól inn í húsið og stefni að því að hefja framkvæmdir 7. febrúar. Verktími er áætlaður til 15. maí. Skrúfa á upp- hengibúnaðinn upp í kúluþakið og nota þarf stórar og þungar vinnu- lyftur, enda lofthæðin 22 metrar. Að þessu verki loknu verður hafist handa við að leggja parketið, sem löngu er búið að kaupa. Það verk mun taka þrjá mánuði. „Við verðum komnir í gang lok ágúst eða byrjun september ef allar áætlanir stand- ast,“ segir Birgir. Sem kunnugt er hefur Höllin ver- ið notuð til fjöldabólusetninga vegna kórónuveirunnar. Birgir segir að vonandi verði áfram hægt að nota húsið fyrir bólusetningar þótt unnið sé að viðgerðum á elstu Höllinni. Húsakynni Laugardalshallarinnar séu alls 21 þúsund fermetrar og hægt að nota t.d. frjálsíþróttahöllina og anddyrið. Morgunblaðið/Eggert Höllin Stólarnir hafa verið fjarlægðir og stórar vinnulyftur komnar í þeirra stað. Uppsetning ljósa hefst 7. febrúar. Lokasprettur viðgerða á Höllinni hefst fljótlega - Vatnsleki eyðilagði parket - Ekki æft né keppt í rúmt ár Hætt er að selja nærsýnisgleraugu í verslunum Flying Tiger Copen- hagen á Íslandi. Þarna ræðir um svonefnd mínus-gleraugu, eins og margir grípa til við lestur, handa- vinnu og slíkt. „Nú er verið að herða Evrópureglur á þann hátt að aðeins megi selja gleraugu þess- arar gerðar í sérverslunum og heil- brigðisstarfsfólk þurfi að vera nærri í ferlinu,“ sagði Arnar Þór Óskarsson framkvæmdastjóri við Morgunblaðið. Verslanir fyrir- tækisins eru alls fimm; þrjár á höf- uðborgarsvæðinu, ein á Akureyri og sú fimmta á Selfossi. „Við verðum áfram með gler- augu við fjarsýni, en nærsýnisgler- augu bjóðast okkur ekki lengur hjá birgjum. Raunar eru gleraugu vara sem alltaf hefur verið stór í sölu hjá okkur og verður væntanlega áfram. Við áttum til talsvert af nær- sýnisgleraugum, lager sem nú er uppurinn svo nú þarf fólk að leita annað,“ segir Arnar Þór. sbs@mbl.is AFP Gleraugu Sjónin er sögu ríkari. Nærsýnis- gleraugu eru farin úr Tiger - Lager uppurinn Útför Bjarna Haraldssonar, kaup- manns á Sauðárkróki og heiðurs- borgara Skagafjarðar, fór fram frá Sauðárkrókskirkju í gær. Að athöfn lokinni ók líkfylgdin frá kirkjunni norður Aðalgötu og líkbíllinn stað- næmdist um stund fyrir utan búðina hans Bjarna, sem faðir hans, Har- aldur Júlíusson, stofnaði árið 1919. Bjarni starfaði í versluninni frá unga aldri og rak hana einn frá 1970 og fram undir það síðasta. Bjarni lést 17. janúar sl., á 92. aldursári. Með ökuferðinni í gær vildi fjöl- skylda Bjarna gefa honum færi á að kasta hinstu kveðju á búðina og fá lengri ökuferð í leiðinni, en Bjarni var mikill bílaáhugamaður og starf- aði sem bílstjóri í áratugi. Frá búð- inni var ekinn rúnturinn til baka um Aðalgötu og þaðan upp í kirkjugarð á Nöfunum. Sr. Gísli Gunnarsson í Glaumbæ jarðsöng og félagar úr Karlakórnum Heimi sungu, undir stjórn Stefáns R. Gíslasonar. Líkmenn voru ættingjar og vinir Bjarna. Ljósmynd/Óli Arnar Brynjarsson Síðasta bílferð Bjarna Haralds- sonar kaupmanns á Sauðárkróki Sprenging varð í íhlutum á tengi- virki Landsnets á Nesjavöllum í gærmorgun með þeim afleiðingum að þrjár af fjórum aflvélum Nesja- vallavirkjunar slógu út. Engin slys urðu á fólki en slökkviliðið var kallað út til að reykræsta. Aftengja þurfti fjórðu vélina svo starfsfólk Orku náttúrunnar gæti athafnað sig við tengivirkið þar sem sprengingin varð. Skerða þurfti afhendingu raf- magns til Norðuráls. Heildar- afkastageta á heitu vatni á höfuð- borgarsvæðinu skertist um 30 prósent, enda var engin framleiðsla á Nesjavöllum. Þá kom högg á dreifikerfi hitaveitunnar með þeim afleiðingum að leki kom að annarri Reykjaæðinni, sem flytur vatn frá Mosfellsbæ til borgarinnar. Hita- veitugeymar á Reynisvatnshæð tæmdust og loka þurfti fyrir heitt vatn í Lindum, Smára og vesturbæ Kópavogs og Garðabæjar, utan Urr- iðaholts og Holtsbúðar, milli klukk- an tvö og sex í gær. Þá var útlit fyrir að fleiri hverfi yrðu heitavatnslaus og send var út tilkynning þess efnis, en svo varð ekki. Fjölmörg hverfi á höfuðborgarsvæðinu, sem fengu vatn frá virkjununum, voru færð yfir á vatn úr borholum á lághitasvæðum í Reykjavík og Mosfellsbæ. Tókst þá loks að koma þremur af fjórum afl- vélum aftur í gang fyrir kvöldið. Félagið sér fram á fulla afkastagetu innan tíu daga, þegar viðgerð á fjórðu vélinni ætti að vera lokið. Sprenging á Nesja- völlum - Tókst að koma 3 af 4 aflvélum í gang

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.