Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 29.01.2022, Side 8

Morgunblaðið - 29.01.2022, Side 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2022 Ríkisútvarpið hefur stundum áhuga á því þegar stóttvarna- reglur eru brotnar en stundum er það alveg áhugalaust. Dæmi um það er nýleg athöfn á Bessastöðum þar sem sóttvarnir voru ekki í samræmi við reglur. Hrafnar Viðskipta- blaðsins viku að þessu og sögðu að greiðlega gengi „fyrir Ríkisútvarpið að fá undanþágur frá ríkjandi sótt- varnatakmörkunum þegar svo ber undir“. - - - Hrafnarnir sögðust hafa fylgst með athöfninni en „tóku eftir að fjöldi manns var á Bessastöðum í grímulausri gleði. Forsetaritari sagði í fjölmiðlum að samkoman bryti ekki í bága við sóttvarnareglur því RÚV væri með undanþágu – væntanlega vegna þjóðhagslegs mikilvægis samkomunnar.“ - - - Ennfremur sagði í Viðskipta- blaðinu: „Þetta er ekki fyrsta undanþágan sem RÚV fær. Í fyrra fengu Eurovision-farar heimild frá sóttvarnalækni, ólíkt íslensku ól- ympíuförunum, til að fara óbólusett- ir til Hollands. Því fór sem fór. Hrafnarnir klóruðu líka um það í vikunni að RÚV hefði ákveðið að fresta forkeppni Eurovision um eina viku að fengnum ráðleggingum sótt- varnalæknis. Þetta þýðir að stjórn- endur RÚV hafa greiðari aðgang að upplýsingum um afnám sóttvarna- aðgerða en aðrir.“ - - - Enn er óútskýrt hvernig á því stóð að sóttvarnir voru í ólagi á Bessastöðum á dögunum, hver ber á því ábyrgð eða hver veitti undan- þágu hafi það verið gert. Hvers vegna var framkvæmdin með þess- um hætti og hvers vegna fást engar skýringar? Hvað þarf að fela? STAKSTEINAR Karen Elísabet Halldórsdóttir í 1. sæti sjálfstæðismanna í Kópavogi Karen Elísabet Halldórsdóttir bæjarfulltrúi sækist eftir 1. sæti sjálfstæðismanna í Kópavogi. Hún er með BA gráðu í Sálfræði og meistaragráðu í Mannauðsstjórnun og starfar sem skrifstofustjóri samhliða störfum bæjarfulltrúa. „Ég óska eftir stuðningi í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi þann 12. mars nk. Undanfarin átta ár hef ég starfað sem bæjarfulltrúi í bæjarstjórn Kópavogs. Á þeim tíma hef ég tekið að mér ýmis trúnaðarstörf í þágu bæjarbúa og aflað mér víðtækrar þekk- ingar á öllum málaflokkum í rekstri bæjarins. Mér þykir vænt um bæjarfélagið og fólkið sem hér býr, ég vil sjá blómlegt mannlíf ásamt því að bærinn haldi áfram á þeirri vegferð að bæta þjónustu við bæjarbúa. Ég vil leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi til sigurs næsta vor og tel að reynsla mín og þekking muni nýtast í komandi sveitastjórnarkosningum“. Karen Elísabet sinnir ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Kópavog. Hún er varaformaður bæjarráðs, formaður velferðaráðs, lista- og menningarráðs og öldungaráðs. Einnig hefur hún setið í ráðgjafa- nefnd Jöfnunarsjóðs Sambands íslenskra sveita- félaga í tæp átta ár og fjögur ár í stjórn Strætó. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Þrjú tilboð bárust Ríkiskaupum vegna útboðs á smíði nýs hafrann- sóknaskips fyrir íslenska ríkið. Öll eru frá skipasmíðastöðvum á Spáni. Lægsta tilboðið er frá Astileros Armon Vigo-skipasmíðastöðinni í Vígó og nemur það 33,45 milljónum evra, jafnvirði 4,8 milljarða íslenskra króna. Þetta kemur fram í opnunar- skýrslu sem birt hefur verið á vef Ríkiskaupa en tilboðin voru opnuð í október á síðasta ári. Þá býðst skipasmíðastöðin Gond- an við Vegadeo í Asturías-héraði til að smíða skipið fyrir 35,5 milljónir evra, 5,1 milljarð íslenskra króna, en hæsta tilboðið nam 38,9 milljónum evra, jafnvirði 5,6 milljarða króna, og er það frá Construcciones Navales P. Freire í Vígó á Spáni. Ríkiskaup hafa ekki lagt mat á tilboðin. Alþingi samþykkti einróma á sér- stökum hátíðarfundi á Þingvöllum sumarið 2018 í tilefni 100 ára full- veldisafmælis að smíða nýtt hafrann- sóknaskip í stað Bjarna Sæmunds- sonar sem er rúmlega hálfrar aldar gamall. Samþykkt var að ríkið léti 3,5 milljarða króna renna til hönn- unar og smíði nýja skipsins. Hitt skip Hafró, Árni Friðriksson, sem var smíðað árið 2000, verður áfram í rekstri. Tilboð í smíði rannsóknaskips birt - Þrjú tilboð frá Spáni - Lægsta til- boðið nam jafnvirði 4,8 milljarða króna Tölvuteikning/Skipasýn Nýtt skip Vonast er eftir að rann- sóknaskipið verði tilbúið eftir 2 ár. Fyrirtækið Qair Iceland ehf. hefur hug á að reisa vindorkugarð í landi Hvamms í Norðurárdal í Borgar- firði. Garðurinn verður austan við Baulu og liggja mörk hans við hring- veginn norður í land. Hann er nefnd- ur Múli. Fyrirtækið hefur kynnt matsáætl- un sem er fyrsta stig umhverfismats fyrir verkefnið og gefst almenningi og lögboðnum umsagnaraðilum kostur á að koma athugasemdum á framfæri. 13-17 stórar vindmyllur Áformað er að reisa 13-17 vind- myllur í vindorkugarði sem tekur yf- ir rúmlega 3.500 hektara svæði. Áætluð framleiðslugeta er 78-95 megawött. Vindrafstöðvarnar eru stórar, hver hreyfill með þremur spöðum er 110 til 170 metrar í þver- mál og gera má ráð fyrir að spaði í hæstu stöðu nái upp í um 200 metra frá jörðu. Gert er ráð fyrir að vind- orkugarðurinn Múli verði byggður upp í einum áfanga. Vindorkugarðurinn mun ná að hluta yfir Hvammsmúla. Á honum eru aflíðandi hlíðar með birkikjarri. Hringvegurinn liggur meðfram suð- urjaðri þróunarsvæðisins. Nokkur bóndabýli og sumarhús eru í jaðri svæðisins, auk fáeinna býla innan svæðis. Þess má geta að unnið er að um- hverfismati fyrir annan vindorku- garð skammt frá Hvammi, á Grjót- hálsi sem er hinum megin við dalinn. Sá garður yrði mun minni. Hann er í landi Hafþórsstaða í Norðurárdal og Sigmundarstaða í Þverárhlíð. helgi- @mbl.is Vindorkugarður austan við Baulu - Umhverfismat hafið fyrir Múla í Norðurárdal Vindrafstöð Qair framleiðir endur- nýjanlega orku víða um heim.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.